Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Blaðsíða 39
Hjólreiðar 20. apríl 2018 KYNNINGARBLAÐ
„Komdu út með okkur“
Íslandsvinir bjóða upp á hreyfiferðir:
Stærsti hlutinn af þeim ferðum sem við bjóðum upp á fyrir Íslendinga erlendis eru hreyfi-
ferðir,“ segir Brandur Jón Guðjónsson
hjá ferðaskrifstofunni Íslandsvinum,
eða Iceland Explorer, sem stofnuð
var árið 1998. „Aðallega eru það
göngu-, hjólreiða- og skíðaferðir, en
svo förum við með fólk í „hefðbundn-
ar“ ferðir líka“
Boðið er upp á ferðir nánast hvert
sem hugurinn leitar, ef svo ber undir.
„Við höfum fyrst og fremst verið í
suður- og austurhluta Evrópu, og
á þessu ári verðum við með
hjólaferðir til Ítalíu, Austurríkis,
Slóveníu og Króatíu. Og svo er
nýtt á þessu ári að við bjóðum
upp á hjólaferð til Kanada, en sú
ferð verður um verslunarmanna-
helgina.“
Auk hreyfiferða er einnig boðið
upp á skoðunarferðir og sérferðir
fyrir hópa, starfsmannafélög sem
og aðra, í árshátíðar-, helgar- og
borgarferðir. „Þetta er æði fjölbreytt
og í takt við fyrirspurnir sem við fáum
hér inn til okkar,“ en Íslandsvinir sérs-
níða ferðina að óskum viðskiptavina.
„Sem dæmi má nefna að ég er að
fara með 19 manna
hóp í hjólaferð til
Slóveníu í haust
og sú ferð er
ekki auglýst
á heimasíðu
okkar.“
Mikil aukning
er í hjólreiðum
á Íslandi og skilar
það sér í vinsældum
hjólaferða erlendis.
„Fólk vill prufa þessa
skemmtilegu blöndu
af hreyfingu, útiveru,
náttúruskoðun og upplifunum við
mildari veðurfar en hér heima. Við
gerum þá kröfu að fólk hafi hjólað
eitthvað áður til að þekkja hvernig
reiðhjólið virkar og sé vant að sitja á
hjóli í lengri tíma. Það er munur á að
hjóla í korter, hálftíma á dag til og frá
vinnu hér heima og að fara síðan í
slíka ferð þar sem þú ert meira
og minna viðloðandi hjólið allan
daginn, nokkra daga í röð.“
Hjólaferðirnar eru í heild
8–11 daga langar og svo
er það mismunandi hversu
margir hjóladagarnir eru, auk
þess sem að dagleiðirnar eru
mislangar, allt frá 25 km og
upp undir 100 km. Hjól eru
leigð erlendis af samstarfs-
aðilum Íslandsvina á hverjum
stað. „Allir okkar samstarfs-
aðilar bjóða upp á ágætis hjól
sem henta ferðunum okkar vel.
Og þetta eru meira og minna
aðilar sem við höfum unnið
með mörg undanfarin ár og eru orðnir
góðir vinir okkar.“
Misjafnt er milli ferða hvort hjólið
er innifalið í verði ferðanna eða ekki,
en það fer eftir aðstæðum á þeim
stöðum sem ferðast er til. „Svo getum
við nánast alltaf orðið við þeirri beiðni
ef að fólk vill vera á rafhjóli frekar en
venjulegu.“
„Við eigum sístækkandi hóp sem
kemur með okkur reglulega í ferðir,
þau sem oftast hafa komið með okkur
eru t.d. búin að koma í sex mismun-
andi hjólaferðir á undanförnum árum,
auk þess sem mörg eru að koma með
okkur í annað, þriðja eða fjórða skiptið.
Okkur þykir mjög vænt um tryggð
þessara viðskiptavina! Okkar ferðir
eru e.t.v. ekki „ódýrastar“, en þegar allt
sem innifalið er í þeim er tekið með
í reikninginn og sú þjónusta sem við
veitum, þá finnst langstærstum hópi
okkar ánægðu viðskiptavina verðið
hafa verið mjög sanngjarnt.“
Ferðaskrifstofan Íslandsvinir er í
Kringlunni 7, símanúmerið er 510-
9500 og netfang info@explorer.is
Heimasíða: islandsvinir.is og Face-
booksíða: islandsvinir.is
Hjólaferðir
fram undan
Þær hjólaferðir sem Íslandsvinir aug-
lýsa og fram undan eru í ár eru hver
annarri áhugaverðari og fjölbreyttari:
Töfrar Gardavatnsins 2.–9. júní:
Árleg hjólaferð Íslandsvina til Riva del
Garda á Ítalíu þar sem farnar eru mjög
fjölbreyttar dagleiðir við þessa miklu
náttúruperlu.
Kanada – Klettafjöllin og Edmonton
31. júlí–8. ágúst: Leiðin milli Jasper
og Banff um samnefnda þjóðgarða í
stórbrotnum fjallgarði Klettafjallanna
er andleg og líkamleg áskorun.
Perlur Slóveníu 16.–24. ágúst: Hjólað
er um nokkra af fegurstu stöðum
Slóveníu, en landið hefur margoft verið
nefnt „Perla Evrópu“.
Um dali vestur - og út og suður ...
4.–13. september: Hjólað er á sjö dög-
um um fallega dali í Austurríki og Ítalíu,
milli Alpanna í norðri og Dólómítafjall-
anna í suðri.
Kvarnerflóinn í Króatíu 13.–23. sept-
ember: Mikið ævintýri þar sem hjólað
er um nokkrar af stærri eyjum Kvarner-
flóans í Króatíu en búið um borð í báti
sem ferjar þátttakendur á milli eyjanna,
en sá bátur er frátekinn sérstaklega
fyrir þennan hóp.
Dónárdraumur 23. september–1.
október: Árleg hjólaferð Íslandsvina
meðfram Dóná, þar sem hjólað er á sex
dögum um eina fjölförnustu og vinsæl-
ustu hjólreiðaleið Evrópu, frá Passau
í Þýskalandi austur til Vínarborgar í
Austurríki. Létt, en mjög flott ferð!
ÁnæGðIR VIðSKIPtAVInIR KOMA
AFtuR OG AFtuR VEGnA
SAnnGJARnS VERðS OG
VAnDAðRA VInnuBRAGðA.
Ferðastefna Íslands-
vina er skýr hvað
ferðir erlendis varðar
Ferðaskrifstofan Íslandsvinir leitast við
að sérhæfa sig í ferðum sem hreyfa við
hug og hjarta!
Brandur Jón
Guðjónsson.
Stórbrotið landslagið í Klettafjöllunum í Kanada er meginstef hjólaferðar þangað um versl-
unarmannahelgina.
Slappað af á siglingu milli eyja í Kvarner
flóanum í Króatíu.
Glaðbeittur hópur
á bökkum Dónár.