Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Blaðsíða 33
 20. apríl 2018 KYNNINGARBLAÐ Hjólreiðar Mamma veit best er heilsu-búð og heildsala með há-gæða bætiefni, matvörur og snyrtivörur þar sem áhersla er lögð á hollustu og umhverfisvæna framleiðsluhætti. Mamma veit best er með verslanir að Laufbrekku 30 (Dalbrekkumegin) í Kópavogi og að Njálsgötu 1 í Reykjavík. Auk má finna ítarlegar upplýsingar og vefverslun á síðunni mammaveit- best.is. Vegan Í þessari umfjöllun stiklum við á stóru í ríkulegu heilsuvöruúr- vali verslunarinnar og nefnum til sögunnar nokkrar vörur. Fyrst er að nefna vegan-línuna hjá Mamma veit best: Frá Garden of Life fæst stórsnið- ugt bætiefni fyrir þá sem eru á vegan-mataræði, en það er „raw“ járn með B12, fólati og C-vítamíni. Þeir sem eru á vegan-mataræði þurfa sérstaklega að huga að því að fá nóg af járni og B12-vítamíni. Járn er vissulega að finna víða í jurtaríkinu en B12 getur verið erf- iðara að fá úr jurtafæði í nægilegu magni. Einnig er fáanlegt D3- vítamínsprey frá Garden of Life. Við hér á norðurhveli jarðar líðum mörg skort á D-vítamíni vegna skorts á sólarljósi og það er alvarlegt þar sem D-vítamín er lík- amanum nauðsyn- legt til fjölda starfa. D-vítamín er meðal annars mikilvægt fyrir beinheilsu, hjarta- og æðakerfi og ónæmiskerfi. Flestar tegundir af vegan D-vítamíni er D2-vítamín, sem nýtist líkam- anum ekki jafn vel og D3. D3 er það form sem líkam- inn býr til í húðinni þegar á hana skín sól og það er bæði talið öruggara og virkara til inntöku en D2-formið. Frá Garden of Life kemur líka „raw“ vegan-prótín með vinveittum gerlum, ensímum og vítamínum. Í hverjum skammti er að finna 17 grömm af prótíni og ekki ögn af við- bættum sykri. Prótínið er laust við öll aukaefni og er frábært fyrir þá sem fá ekki nóg prótín úr fæðunni eða vilja bæta prótíni í þeytinginn. Frá Garden of Life fást einnig ýmiss konar fjölvítamín og næringar- drykkir. Dr. Mercola framleiðir gæða prótínduft sem hentar vel í þeytinginn, enda er það bæði bragðgott og seðjandi. Í hverjum skammti er að finna 12 grömm af prótíni og er duftið algerlega sykur- laust og laust við öll aukaefni. Vegan-lífsstíllinn nær ekki ein- göngu yfir mataræði heldur forðast þeir sem eru vegan einnig allar vörur sem eru fram- leiddar með dýraafurð- um eða eru prófaðar á dýrum. Margar sápur eru til dæmis framleiddar úr dýrafeiti og margar snyrti- vörur eru prófaðar á dýrum. Hjá Mamma veit best fást frábærar líf- rænar, vegan- og „fair-trade“-sáp- ur og húðvörur frá Dr. Bronner's. Sápurnar má jafnt nota í sturtunni, í þvottavélina sem og í öll heimilis- þrif. Þær eru mildar og henta allri fjölskyldunni enda innihalda þær engin kemísk efni. Slökun magnesíum vinnur gegn streitu Slökun magnesíum er frábær vara frá Mamma veit best sem vinn- ur gegn streitu, svefntruflunum, fótaóreið og hægðatregðu. Slökun magnesíum hentar fólki á öllum aldri en skammtastærðir geta verið mismunandi eftir þörfum hvers og eins. Ef um börn ræðir er best að fá ráðleggingar frá fagaðilum en Slökun er ekki ætluð ungabörnum. Slökun magnesíum er einfalt að nota, duftið er einfaldlega leyst upp í vatni og drukkið. Það fæst í 5 mismunandi bragðtegundum svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Slökun magnesíum er laust við öll aukaefni. Það er sykur- laust og sætt með stevíu. Mykind-bætiefnalínan Mykind-bætiefnalínan frá Garden of Life er lífræn, vegan og laus við öll aukaefni. Bara það besta fyrir þig og móður jörð! Mykind-línan var var hönnuð með það að leiðarljósi að velja aðeins bestu mögulegu hráefnin og meðhöndla þau þannig að næringin skilaði sér sem best. Gæði bætiefna skipta öllu máli. Þau sem eru búin til úr fæðu eins og þessi er líklegra að líkaminn nái að nýta að fullu. Öll línan er 100% vegan og inni- heldur því engar dýraafurðir. Meira að segja D3- og B12-vítamínin eru vegan en þessi tvö er oft erfitt að fá vegan í bestu formunum. MAMMA VEit BESt: Það besta fyrir þig og móður jörð Magnesíum hefur mörgum mikilvægum hlutverkum að gegna í líkamanum og kemur við sögu í yfir 300 efnahvörfum. Sem dæmi um hin mörgu hlutverk magnesíum má nefna: n Nauðsynlegt fyrir eðlilega vöðvavirkni – einkum vöðvaslökun n Nauðsynlegt fyrir eðlilega taugavirkni – einkum taugaslökun n Ómissandi þáttur orkuvinnslu í hverri einustu frumu líkamans n Nauðsynlegt fyrir eðlilega starfsemi hjarta og æðakerfis – leikur t.d. mikilvægt hlutverk í að viðhalda eðlilegum blóðþrýstingi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.