Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Blaðsíða 46
20. apríl 2018KYNNINGARBLAÐHjólreiðar
Við opnuðum þessa verslun nú í vor og ákváðum í upphafi að beita annarri nálgun en flestar
verslanir. Við horfðum dálítið til
Apple-búðanna þegar við vorum að
hanna þetta, til dæmis hvað varðar
upplifun viðskiptavina. Við vildum að
þetta væri staður þar sem fólk gæti
notið þess að ganga um og skoða og
þreifa á vörunum, eða setjast niður
og fá sér kaffi og spjalla. Í stað þess
að afgreiðsluborðið sé lína á milli
viðskiptavina og verslunarinnar,“ segir
Bjarni Birgisson hjá Peloton, Kletta-
görðum 23. Peloton er sérverslun og
þjónustufyrirtæki fyrir hjólreiðafólk
sem getur þar keypt fyrsta flokks
reiðhjól og aukahluti, auk þess að
fá viðgerðarþjónustu á vel búnu
reiðhjólaverkstæði. Síðast en ekki síst
eru það hjólafötin sem Peloton leggur
mikið upp úr.
„Við viljum fá fólk hingað í heim-
sókn og spjall. Við erum með mikla
reynslu af öllum tegundum hjólreiða,
bæði alls konar keppnishjólreiðum,
fjallahjólreiðum og ýmsu fleiru. Við
gefum fólki góð ráð og hjálpum því
að komast að niðurstöðu, hvort sem
um er að ræða hjólakaup, viðgerðir,
fatnað eða aukahluti,“ segir Bjarni.
Góður staður fyrir
konur
Peleton er hjól-
reiðaverslun sem
leggur sérstaka
áherslu á að koma til
móts við konur um leið
og öllum öðr-
um hópum er að sjálfsögðu sinnt líka:
„Við höfum lagt mikið upp úr
hjólafatnaði sem hentar konum um
leið og við erum líka með mikið af
hjólafötum fyrir karla. Íslendingar
kaupa mikið af hjólavörum á netinu,
meðal annars fatnaðinn, og þá mátar
maður ekki. Konur kunna að meta það
að geta komið hingað og mátað fötin
til að vera vissar um að þau passi.
Hjólaföt eru afar mikilvæg, sérstak-
lega í íslenskri veðráttu þar sem mað-
ur þarf að vera tilbúinn í hvað sem er.
Einhver sagði að vonda veðrið væri
bara á tveimur stöðum, í anddyrinu
áður en maður fer út og svo í kollinum
á manni. Þegar út er komið og fólk er
vel búið þá skiptir veðrið ekki máli.“
Verðið sem Peloton býður er líka
mjög samkeppnishæft og er stefna
fyrirtækisins að bjóða sambærilegt
verð og í öðrum Evrópulöndum. „Sá
ósiður hefur lengi tíðkast hér á landi
að leggja of mikið á vörur. En það er
ekki alltaf hægt að skýla sér á bak við
flutningskostnað. Það kostar til dæm-
is ekkert meira að flytja reiðhjól sem
framleitt er í Kína til Danmerkur en til
Íslands,“ segir Bjarni.
Bjarni segir að hjólreiðar hafi
framan af verið frekar karllægt
sport en það sé að breytast og
sífellt fleiri konur séu komnar á fullt
í hjólasportið. „Konur verða oft mjög
hrifnar af þessu sporti og svo draga
þær vinkonur sínar með. Við leggjum
áherslu á að bjóða upp á gott úrval
af hjólum sem henta konum og góða
ráðgjöf við að velja rétta hjólið miðað
við reynslu og fyrirhugaða notkun.
Þess má geta að í sumar styðjum við
keppnislið í hjólreiðum sem skipað
verður konum. Það er hið glæsilega
Team Peloton Royal, sem kennt er við
Royal-búðinginn fræga sem hefur
verið heimilsvinur allra landsmanna til
fjölda ára.“
Peloton ætlar líka að bjóða upp
á hjólreiðahópferðir frá versluninni
í sumar og verða þetta ólíkar ferð-
ir sem henta mismunandi hópum.
„Þetta er mjög algengt framtak hjá
hjólaverslunum víða um heim. Við
sjáum fyrir okkur eins til tveggja tíma
hjólatúr og svo sest fólk á eftir, fær
sér kaffi og spjallar saman,“ segir
Bjarni.
Hægt verður að fylgjast með
þessari dagskrá á heimasíðu Peloton,
peloton.is, og á Facebook-síðunni
https://www.facebook.com/peloton-
iceland/.
Peloton er sem fyrr segir til húsa
að Klettagörðum 23. Opið er þriðju-
daga-föstudaga frá 16 til 19 og
laugardaga frá 11 til 15. Lokað er
sunnudaga og mánudaga.
Vöruúrvalið í Peloton
– nokkur dæmi
Hjól:
n Bianchi, götu- og fjallahjól
n BMC, götu og fjallahjól
n Yeti, fulldempuð fjallahjól
n Factor, götuhjól í sérpöntun
eingöngu
n 3T, götuhjól
Fatnaður
n Yeti, fjallahjólafatnaður
n FIBR – danskur framleiðandi
með götuhjólafatnað
n VOID – sænskur framleiðandi
með götu- og fjallahjólafatnað
n Bioracer – bjóða m.a. upp á sér-
merktan liðsfatnað sem hefur
verið vinsæll í WOW Cycloton
undanfarin ár.
Fylgihlutir, gjarðir og fleira
n ENVE – Starfsfólk Peloton er
mjög stolt af þessu merki og að
þessar vörur séu loksins fáan-
legar á Íslandi (www.enve.com)
n 3T
n Black
n SH+ – hjálmar og gleraugu -
m.a. gleraugu með linsu sem
breytir um lit við mismundi
birtuskilyrði; hentar frábærlega
í íslenskri veðráttu
Hjólreiðafólki þykir
gaman að koma í Peloton
Magnús Fjalar
Guðmunds-
son, kaffisér-
fræðingur
Peloton