Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Page 46
 20. apríl 2018KYNNINGARBLAÐHjólreiðar Við opnuðum þessa verslun nú í vor og ákváðum í upphafi að beita annarri nálgun en flestar verslanir. Við horfðum dálítið til Apple-búðanna þegar við vorum að hanna þetta, til dæmis hvað varðar upplifun viðskiptavina. Við vildum að þetta væri staður þar sem fólk gæti notið þess að ganga um og skoða og þreifa á vörunum, eða setjast niður og fá sér kaffi og spjalla. Í stað þess að afgreiðsluborðið sé lína á milli viðskiptavina og verslunarinnar,“ segir Bjarni Birgisson hjá Peloton, Kletta- görðum 23. Peloton er sérverslun og þjónustufyrirtæki fyrir hjólreiðafólk sem getur þar keypt fyrsta flokks reiðhjól og aukahluti, auk þess að fá viðgerðarþjónustu á vel búnu reiðhjólaverkstæði. Síðast en ekki síst eru það hjólafötin sem Peloton leggur mikið upp úr. „Við viljum fá fólk hingað í heim- sókn og spjall. Við erum með mikla reynslu af öllum tegundum hjólreiða, bæði alls konar keppnishjólreiðum, fjallahjólreiðum og ýmsu fleiru. Við gefum fólki góð ráð og hjálpum því að komast að niðurstöðu, hvort sem um er að ræða hjólakaup, viðgerðir, fatnað eða aukahluti,“ segir Bjarni. Góður staður fyrir konur Peleton er hjól- reiðaverslun sem leggur sérstaka áherslu á að koma til móts við konur um leið og öllum öðr- um hópum er að sjálfsögðu sinnt líka: „Við höfum lagt mikið upp úr hjólafatnaði sem hentar konum um leið og við erum líka með mikið af hjólafötum fyrir karla. Íslendingar kaupa mikið af hjólavörum á netinu, meðal annars fatnaðinn, og þá mátar maður ekki. Konur kunna að meta það að geta komið hingað og mátað fötin til að vera vissar um að þau passi. Hjólaföt eru afar mikilvæg, sérstak- lega í íslenskri veðráttu þar sem mað- ur þarf að vera tilbúinn í hvað sem er. Einhver sagði að vonda veðrið væri bara á tveimur stöðum, í anddyrinu áður en maður fer út og svo í kollinum á manni. Þegar út er komið og fólk er vel búið þá skiptir veðrið ekki máli.“ Verðið sem Peloton býður er líka mjög samkeppnishæft og er stefna fyrirtækisins að bjóða sambærilegt verð og í öðrum Evrópulöndum. „Sá ósiður hefur lengi tíðkast hér á landi að leggja of mikið á vörur. En það er ekki alltaf hægt að skýla sér á bak við flutningskostnað. Það kostar til dæm- is ekkert meira að flytja reiðhjól sem framleitt er í Kína til Danmerkur en til Íslands,“ segir Bjarni. Bjarni segir að hjólreiðar hafi framan af verið frekar karllægt sport en það sé að breytast og sífellt fleiri konur séu komnar á fullt í hjólasportið. „Konur verða oft mjög hrifnar af þessu sporti og svo draga þær vinkonur sínar með. Við leggjum áherslu á að bjóða upp á gott úrval af hjólum sem henta konum og góða ráðgjöf við að velja rétta hjólið miðað við reynslu og fyrirhugaða notkun. Þess má geta að í sumar styðjum við keppnislið í hjólreiðum sem skipað verður konum. Það er hið glæsilega Team Peloton Royal, sem kennt er við Royal-búðinginn fræga sem hefur verið heimilsvinur allra landsmanna til fjölda ára.“ Peloton ætlar líka að bjóða upp á hjólreiðahópferðir frá versluninni í sumar og verða þetta ólíkar ferð- ir sem henta mismunandi hópum. „Þetta er mjög algengt framtak hjá hjólaverslunum víða um heim. Við sjáum fyrir okkur eins til tveggja tíma hjólatúr og svo sest fólk á eftir, fær sér kaffi og spjallar saman,“ segir Bjarni. Hægt verður að fylgjast með þessari dagskrá á heimasíðu Peloton, peloton.is, og á Facebook-síðunni https://www.facebook.com/peloton- iceland/. Peloton er sem fyrr segir til húsa að Klettagörðum 23. Opið er þriðju- daga-föstudaga frá 16 til 19 og laugardaga frá 11 til 15. Lokað er sunnudaga og mánudaga. Vöruúrvalið í Peloton – nokkur dæmi Hjól: n Bianchi, götu- og fjallahjól n BMC, götu og fjallahjól n Yeti, fulldempuð fjallahjól n Factor, götuhjól í sérpöntun eingöngu n 3T, götuhjól Fatnaður n Yeti, fjallahjólafatnaður n FIBR – danskur framleiðandi með götuhjólafatnað n VOID – sænskur framleiðandi með götu- og fjallahjólafatnað n Bioracer – bjóða m.a. upp á sér- merktan liðsfatnað sem hefur verið vinsæll í WOW Cycloton undanfarin ár. Fylgihlutir, gjarðir og fleira n ENVE – Starfsfólk Peloton er mjög stolt af þessu merki og að þessar vörur séu loksins fáan- legar á Íslandi (www.enve.com) n 3T n Black n SH+ – hjálmar og gleraugu - m.a. gleraugu með linsu sem breytir um lit við mismundi birtuskilyrði; hentar frábærlega í íslenskri veðráttu Hjólreiðafólki þykir gaman að koma í Peloton Magnús Fjalar Guðmunds- son, kaffisér- fræðingur Peloton

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.