Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Blaðsíða 58
58 menning 20. apríl 2018
Í
slenska heimildamyndin
„Mirgorod, í leit að vatnssopa“
eftir Einar Þór Gunnlaugs-
son var sýnd á Indlandi á kvik-
myndahátíðinni Global India
International Film Festival. Þetta
er fyrsta kvikmyndahátíðin sem
myndin hefur verið sýnd á og
hlaut hún þar verðlaun fyrir bestu
leikstjórn.
„Þetta er auðvitað bara frábært,“
segir Einar um óvæntu verðlaun-
in. „Það voru engin stór plön með
þessa mynd frá byrjun, en hún
er nokkurn veginn eins og vatnið
sjálft, finnur sinn eigin farveg.“
Heimildamyndin, sem nú er
aðgengileg á VOD, sýnir óþekkt-
ar hliðar á landi sem kennt er við
stríð og fjallar um smáborg sem
er um 300 kílómetrum frá átaka-
svæðunum í austri. Kvikmynda-
gerðarmenn heimsækja borgina
til að kynnast frægu vatni sem
er kennt við hana og skilja hvers
vegna hún var einn helsti heilsu-
bær Sovétríkjanna sálugu. Á
ferðinni hitta þeir heimamenn og
flóttamenn frá átakasvæðunum í
Donetsk.
„Þetta er sérhæfð mynd,“ bætir
Einar við. „Þetta snýst um menn-
ingu og ferðir. Myndin á eftir að
leita í þann flokk.“
Einar útskrifaðist frá London
Film School árið 1992 og fór síðan
í meistaranám í City University í
London. Þaðan útskrifaðist hann í
listrænni stjórnun og stefnumörk-
un árið 2001. Kvikmyndagerðar-
maðurinn ætlaði að taka sér hlé
frá kvikmyndagerð þegar verk-
efnið varð skyndilega til. „Þetta
einhvern veginn æxlaðist,“ seg-
ir hann. „Eitt leiddi af öðru og
borgin hjálpaði okkur að brjóta ís-
inn. Hún var mjög til í þetta.“
Þróun myndarinnar og undir-
búningur voru styrkt af utanrík-
isráðuneytinu og Kvikmynda-
sjóði, en framleiðsla var studd af
Mirgorod-borg og með framlög-
um og aðstoð einstaklinga í kvik-
myndagerð. Einar segir að ferl-
ið við að gera myndina hafi verið
algjörlega vandræðalaust, þótt
landið eigi í stríði.
Næsta verkefni Einars er mynd
um sögu íslenskra vita. „Hana
vonumst við til að klára í lok árs.
Ótrúlega spennandi fyrirbæri, ís-
lenskir vitar. Spennandi tímar
fram undan.“ n
Tómas Valgeirsson
Heimildamynd Einars Þórs vekur athygli á Indlandi
Hlýtur verðlaun fyrir bestu leikstjórn Úr heimilda-myndinni
Mirgorod.
Þ
jóðþekkti leikarinn Ólafur
Darri Ólafsson hefur lengi
haft nóg á sinni könnu, í
innlendum verkefnum sem
og erlendum. Bráðlega mun hann
sjást í glænýrri seríu af Ófærð en
seinna á árinu skjóta upp kollinum
í myndum á borð við Fantastic Be-
asts: The Crimes of Grindelwald,
The Spy Who Dumped Me og ekki
síst hákarlamyndinni The Meg
með Jason Statham.
Hlutverk okkar ástsælasta leik-
ara eru fjölbreytt bæði í kvikmynd-
um og sjónvarpsþáttum. Þar hefur
Ólafur Darri einnig deilt skjánum
með nokkrum af stærstu stjörnum
samtímans. Þá þýðir ekki annað en
að renna aðeins yfir rullurnar og
raða þeim eftir tímalínu og skoða
hin mörgu andlit Ólafs Darra. n
Tómas Valgeirsson
Hin mörgu andlit Ólafs Darra
Seiðkarl, risi og Amish-bóndi:
Fetar í kunnugleg spor Contraband (2012)
Ólafur Darri lét sig að sjálfsögðu ekki vanta þegar Baltasar Kormákur tók upp á því að
endurgera spennutrylli Óskars Jónassonar, Reykjavík-Rotterdam. Contraband var fyrsta
stóra Hollywood-verkefni bæði Ólafs og Balta. Leikarinn gengur undir nafninu Olaf í
endurgerðinni og þykir undarlega fámáll. Það fer engu að síður vel um hann á meðal
manna eins og Mark Wahlberg, Ben Foster, Lukas Haas, J.K. Simmons og fleiri.
Uppsprengt
gestahlutverk
True Detective (2014)
„Það er djöfull innra með þér, litli maður.
Ég kann ekki við andlitið á þér. Mig
langar til þess að gera ýmislegt við það.
Ef ég sé þig aftur þá geng ég frá þér.“
Þessa ræðu á Ólafur við stórleikarann
Matthew McConaughey í fyrstu þáttaröð
True Detective. Leikarinn kemur fram í
einum þætti en tíminn er vel nýttur.
Risamynd Spielbergs The BFG (2016)
Ekki eru margir íslenskir leikarar sem geta sagst hafa verið teiknaðir upp að hluta til með
tölvum. Við tökur á fjölskyldumyndinni The BFG frá Steven Spielberg fer Ólafur með
hlutverk ágenga risans Mademasher. Leikarar í hlutverki risa voru kvikmyndaðir með
svokallaðri „motion capture” tækni, sem byggist á því að leikarar búa til hreyfingarnar,
sem síðan eru færðar í tölvu og kvikaðar. Ólafur slæst þarna í för með mönnum í líkingu
við grínistana Jemaine Clement, Bill Hader og Óskarsverðlaunahafann Mark Rylance.
Í miðjum klíðum
Zoolander 2 (2016)
Það er ekkert grín að vera staddur í
hópkynlífssenu með Owen Wilson,
Susan Sarandon og fleiri fjörugum, áður
en Kiefer Sutherland ræðst inn, vansæll
og sár. Leikarinn skreytir rammann vel
með gervi sínu í gríninu. Passaðu bara að
hnerra ekki, þá gætirðu misst af Darra.
Í kröppum dansi við ofurhákarl The Meg (2018)
Íslendingar og hákarlar fara alltaf vel saman. Í spennumyndinni The Meg er okkar maður
genginn til liðs við fjölbreyttan hóp, leiddur af harðjaxlinum Jason Statham. Persóna Darra
í myndinni gengur undir nafninu „Veggurinn“, en þá er bara að sjá hvort hans bíði örlög sem
minnisstætt hákarlafóður. Það væri nú einhver heiður af því.
Bóndi góður Banshee (2015)
Íslenskir Banshee-aðdáendur fengu óvæntan glaðning þegar Ólafur birtist í annarri seríu
bandaríska sjónvarpsþáttarins. Þar lék hann Jonah Lembrecht, Amish-bónda og kennara í
þorpi sínu og stal heldur betur senunni.
Gott að eiga góðan Vin að
The Last Witch Hunter (2015)
Árið 2016 mætti Ólafur Darri sjálfum Vin
Diesel í ævintýramyndinni The Last Witch
Hunter. Þar birtist hann áhorfendum fúl-
skeggjaður og alvörugefinn sem seiðkarlinn
Belial, aldagamall þorpari sem tekkst
hressilega á við Diesel. Myndin hlaut reyndar
afleita dóma, en ólíklegt þykir að myndin hafi
farið í vinnslu með gagnrýnendur í huga, eins
og flest annað sem Vin Diesel kemur að.
Á heimavelli í „Grænlandi“
The Secret Life of Walter Mitty (2013)
Leikarinn þótti sérlega eftirminnilegur í
gamanmyndinni The Secret Life of Walter
Mitty, sem Ben Stiller lék í, leikstýrði og tók
upp að stórum hluta hér á landi. Ekki nóg
með það að ágætur kafli myndarinnar gerist
á Íslandi, með þessa fínu landslagskynningu
í þokkabót, heldur gegnir klakinn einnig
hlutverki Grænlands og Afganistan. Ólafur
leikur sauðdrukkinn þyrluflugmann sem
kennir Stiller eitt og annað um íbúa Græn-
lands, þótt þeir séu ekki nema átta talsins.
Herra „Ólafssont“
Lady Dynamite (2016-2017)
Bandarísku gamanþættirnir Lady Dynamite
duttu inn á Netflix í fyrra en er leikarinn
kominn á meðal grínista eins og Andy
Samberg, David Spade, Judy Greer og Jenny
Slate. Ólafur, sem titlaður er reyndar „Ólafur
Darri Ólafssont” í upphafstextanum, leikur
kærasta Mariu Bamford sem þættirnir fjalla
um. Ólafi brá nokkrum sinnum fyrir í fyrstu
seríunni en var áberandi í öllum átta þáttum
annarrar seríu.
Tveir alvarlegir á tali
A Walk Among the Tombstones (2014)
Það er ekkert grín að hóta Liam Neeson, en
það er eitt af því sem Ólafur fær tækifæri til
þess að gera í þessum ágæta dramatrylli.
Ólafur leikur hinn sárþjáða Jonas Loogan,
sem geymir mikilvægar upplýsingar sem
gagnast í morðrannsókn sem persóna
Neeson stýrir. Ólafur sér síðan um að kveðja
myndina með eftirminnilegum hætti.