Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Blaðsíða 60
60 menning 20. apríl 2018
Frank-N-Furter
2018 Páll Óskar Hjálmtýsson
Páll Óskar hefur svo
sannarlega farið um víð-
an völl síðan hann lék
Frank-N-Furter í upp-
setningu Menntaskól-
ans við Hamrahlíð árið
1991. Söngvarinn hefur
sérhæft sig bæði í ball-
öðum og stuðlögum, plöturn- ar
seljast enn eins og eldheitar lummur og
ávallt áreiðanleg aðsókn á tónleika hans og
dansleiki.
1995 Helgi Björnsson
Helgi steig aftur á sviðið
árið 1995 eftir góða
fjarveru þegar hann
hreppti hlutverk Frank-
N-Furters. Ferill hans
hefur verið pakkaður og
fjölbreyttur í gegnum árin
og heldur skemmtikrafturinn upp á sex-
tugsafmæli sitt á þessu ári, með risatónleik-
um í Laugardalshöll í september.
Rocky
2018 Arnar Dan
Kristjánsson
Arnar Dan hóf störf hjá
Borgarleikhúsinu strax
eftir að hann útskrifaðist úr
leiklistardeild Listaháskóla Íslands. Í kjöl-
farið hefur hann farið með hlutverk í ýms-
um sýningum, þar á meðal í Línu langsokk
og Mamma Mia!
1995 Björn Ingi Hilmarsson
Björn Ingi hefur haldið sér
uppteknum á sviðinu
bæði á Íslandi og í Sví-
þjóð. Hann hefur sett
upp barnasýningar og
starfar í fræðsludeild
Þjóðleikhússins.
Brad
2018 Haraldur Ari
Stefánsson
Fyrsta stóra tækifæri
Haralds Ara var stórt
hlutverk í unglinga-
myndinni Óróa frá 2010.
Fimm árum síðar útskrif-
aðist hann úr The Royal Central School of
Speech and Drama í London og hefur tekið
þátt í fjölda stuttmynda og tónlistarmynd-
banda.
1995 Hilmir Snær Guðnason
Árið 2000 hlaut Hilm-
ir Snær Stefaníustjak-
ann fyrir leiklistarstörf
sín en hefur í gegnum
árin hlotið Grímuverð-
laun og Edduverðlaun
auk þess að hafa hlotið
Menningarverðlaun DV
í leiklist fyrir titilhlutverkið í
Hamlet. Nýlega sást til hans í kvikmyndinni
Fullir vasar og verður hægt að sjá hann á
næstunni í vísindaskáldsögunni South of
Hope Street og The Velvet Gentlemen, en
báðar myndir eru eftir leikstýruna Jane
Spencer.
Janet
2018 Þórunn Arna Kristjánsdóttir
Þórunn útskrifaðist frá leik-
listardeild Listaháskóla
Íslands vorið 2010 og
var þá ráðin til Þjóð-
leikhússins. Hún hef-
ur leikið í sjónvarps-
þáttunum Hæ Gosi og
Stelpurnar og í kvik-
myndunum Málmhaus og
Blóðberg. Þórunn fór jafnframt með
hlutverk í sýningunni H an incident í Belg-
íu. Þórunn var tilnefnd til Grímuverðlauna
árið 2013 fyrir aðalhlutverkið í Karma fyr-
ir fugla og sömuleiðis söngvari ársins 2016
fyrir sýninguna Mamma Mia!
1995 Valgerður Guðnadóttir
Valgerður hefur hlotið
Grímuna og Íslensku leik-
listarverðlaunin, sem
Söngvari ársins 2009
fyrir hlutverk sitt sem
María í Söngvaseiði.
Valgerður var einn
söngvaranna í Perlu-
portinu hjá Íslensku óper-
unni 2011 og söng hlutverk Mercedes í
Carmen haustið 2013. Þar að auki er hún
lykilmeðlimur Óperudrauganna, sem verða
með sína þriðju nýárstónleika í Hörpu
þetta ár.
Riff-Raff
2018 Björn Stefánsson
Björn Stefánsson, bet-
ur þekktur sem Bjössi
í Mínus, hefur lengi
starfað sem tónlistar-
maður og þá helst sem
trommuleikari. Björn
útskrifaðist frá leiklistar-
skólanum Film og Teaterskolen Holberg og
hefur verið að spreyta sig mikið í leiklist að
undanförnu, þar á meðal í kvikmyndinni
Rökkur og mun næst sjást áberandi í
nýjasta verki Baldvins Z, Lof mér að falla.
1995 Björn Jörundur Friðbjörnsson
Stofnmeðlimur og söngv-
ari hljómsveitarinnar Ný
dönsk. Í leiklist er Björn
Jörundur hvað þekkt-
astur fyrir hlutverk
sín í Sódómu Reykja-
vík og Englum alheims-
ins. Björn vakti einnig
athygli í fyrra með sjónvarpsþáttunum Líf
eftir dauðann, þar sem hann lék miðaldra
poppara og Eurovision-lagahöfund.
Sögumaður
2018 Valur Freyr
Einarsson
Valur Freyr hlaut
Grímuverðlaunin fyrir
leik sinn í sviðssýningunni
Tengdó auk þess að vera valinn leikskáld
ársins 2012, en meðal sviðsverkefna Vals
má nefna Litlu hryllingsbúðina, Elsku barn,
Dúkkuheimili, Njálu og Af ástum manns og
hrærivéla, sem hann leikstýrði.
1995 Davíð Þór Jónsson
Skemmtikrafturinn, rit-
höfundurinn og fyrr-
um Radíusbróðirinn
Davíð Þór er prestur í
Laugarneskirkju. Hann
er útskrifaður guð-
fræðingur og hefur gegnt
mörgum starfstitlum í gegn-
um árin. Hefur hann starfað sem raddleikari,
þýðandi, spurningahöfundur og ljóðskáld.
Eddie
2018 Valdimar Guðmundsson
Venjan hefur lengi verið sú
að tónlistarmaður leiki
mótorhjólagarpinn
Eddie í Rocky Horror,
en forsprakki hljóm-
sveitarinnar Valdi-
mar hefur vakið mikla
lukku síðustu árin sem
básúnuleikari, söngvari og lagasmiður.
1995 Sigurjón Kjartansson
Sigurjón hefur lengi ver-
ið maður margra titla;
tónlistarmaður, út-
varpsmaður, hand-
ritshöfundur og gam-
anleikari. Hann er
meðlimur íslensku rokk-
hljómsveitarinnar HAM og
var einn af lykilmeðlimum Fóstbræðra og
Svínasúpunnar.
Magenta
2018 Brynhildur Guðjónsdóttir
Ferill Brynhildar hefur
gengið eins og í sögu frá
því að hún birtist fyrst í
litlu hlutverki í íslensku
költ-myndinni Nei er
ekkert svar. Leikkon-
an er fædd í Svíþjóð og
hóf nám í Guildhall School
of Music and Drama í London
árið 1998 og lék sitt fyrsta hlutverk á sviði við
Royal National Theatre. Veturinn 2011–2012
var Brynhildur rannsóknarnemandi við Yale
School of Drama í Bandaríkjunum þar sem
áhersla var lögð á leikritun.
1995 Halldóra Geirharðsdóttir
Halldóra hefur lengi ver-
ið ein af ástsælustu
leikkonum landsins og
hefur eldmóður henn-
ar til leiklistar ekkert
minnkað frá því hún
útskrifaðist úr leiklistar-
skóla Íslands árið 1995.
Rocky Horror
á íslensku sviði þá og í dag
S
ýningin The Rocky Horror Show er
í fullum gangi í Borgarleikhúsinu
við góðar undirtektir. Þessi frægi og
kostulegi söngleikur hefur lengi ver-
ið vinsælt viðfangsefni hjá leikhúsum. Sýn-
ingin er nú sett upp í Borgarleikhúsinu en
margir Íslendingar muna eftir sýningunni
sem Baltasar Kormákur setti upp í Loftkast-
alanum árið 1995. Leikhópurinn þá var alls
ekkert síðri en sá sem prýðir sviðið í Borg-
arleikhúsinu í dag. Skoðum hverjir gegndu
hvaða hlutverkum fyrir 18 árum síðan.
Tómas Valgeirsson