Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Blaðsíða 18
18 sport 20. apríl 2018
M
argir Íslendingar hafa
setið eftir með sárt ennið
þegar þeir hafa reynt að
verða sér úti um miða
á leiki Íslands á Heimsmeistara-
móti karla í knattspyrnu í sumar.
Sérstaklega hefur fólki gengið erf-
iðlega að tryggja sér miða á leik
Íslands og Argentínu sem verð-
ur fyrsti leikur liðsins á stærsta
sviðinu, stuðningsmenn Íslands
fá 8 prósent af þeim miðum sem
eru í boði á leikinn. Það fá því
aðeins rúmlega 3.600 íslenskir
stuðningsmenn miða með þess-
um hætti á fyrsta leikinn, á vell-
inum verða þó talsvert fleiri Ís-
lendingar. KSÍ fékk mikið magn
af miðum en mikil leyndarhyggja
ríkir yfir því hversu margir þeir
miðar eru. Stjórnarfólk, starfsfólk,
leikmenn og síðast en ekki síst
styrktaraðilar KSÍ fá talsvert mikið
magn af miðum.
Hafði ekki áhrif á fjölda miða til
stuðningsmanna
Þrátt fyrir að KSÍ hafi fengið mikið
magn af miðum til að deila út til
þessara aðila hafði það ekki áhrif
á fjölda miða sem fór til stuðn-
ingsmanna. „Miðasala til stuðn-
ingsmanna Íslands og þeir mið-
ar sem KSÍ fær til úthlutunar frá
FIFA tengjast ekki á neinn hátt,
þ.e. KSÍ fær enga miða af þeim
8% sem eru til sölu fyrir stuðn-
ingsmenn Íslands,“ sagði Klara
Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ
þegar við sendum henni fyrir-
spurn um málið. „Úthlutunin frá
FIFA er í tvennu lagi, annars vegar
miðar sem hvert sérsamband fær
til afnota og hins vegar sölumiðar.
Þó að KSÍ hefði ekki tekið neinn
miða fyrir sambandið þá hefði
það ekki fjölgað miðum í sölu til
stuðningsmanna Íslands,“ sagði
Klara enn fremur.
KSÍ neitar að gefa upp
Klara neitar að gefa upp hversu
margir miðar fara til styrktar-
aðila KSÍ og hvað leikmenn
liðsins fá marga miða á mann.
KSÍ á sér marga stóra styrktar-
aðila og hafa heyrst sögur þess
efnis að sumir af þeim fái um
og yfir 100 miða á leiki Íslands á
HM, um það vill KSÍ ekkert segja
og á meðan verða það bara sögu-
sagnir. Einnig hefur heyrst að
leikmenn liðsins fái í kringum 8
miða á mann á hvern leik, það
gera 184 miða á leik. Eins og með
styrktaraðila KSÍ neitar Klara að
svara því. „Fjöldi miða til bak-
hjarla og leikmanna er trúnað-
armál,“ sagði Klara en leikmenn
íslenska liðsins áttu eins og aðrir
auðveldara með að fá fleiri miða
á leiki á Evrópumótinu í Frakk-
landi.
Starfsfólk fær 2 miða
Starfsfólk á skrifstofu KSÍ getur
fengið miða á leiki Íslands fyrir sig
og einn gest, stjórnarfólk KSÍ hef-
ur hins vegar getað fengið 4 miða
á leiki ef eftir því hefur verið sóst.
„Starfsfólk KSÍ getur fengið 2 miða
á mann á 1–2 leiki, fyrir sig og sinn
gest,“ sagði Klara. Stuðningsmenn
Íslands á fyrsta leiknum gegn
Argentínu verða líklega fleiri en
5 þúsund, þrátt fyrir að almennir
stuðningsmenn hafi aðeins getað
sótt um rúmlega 3.600 miða. n
Trúnaðarmál hvað styrktar-
aðilar fá marga miða á HM
n KSÍ hefur marga miða á sínum höndum n Leikmenn fá færri miða en á EM
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Sætoppur ehf. l Lónsbraut 6 l 220 Hafnarfirði l Sími 551 7170 l www.saetoppur.is