Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Blaðsíða 44
20. apríl 2018KYNNINGARBLAÐHjólreiðar
Áður en þessi mikla hjólabylting varð hérna fyrir nokkrum árum þá voru nánast allir á
fjallahjólum, hvort sem hjólað var á
malbiki, möl eða öðru undirlagi. Það
var lítið annað í boði. Svo gerist það
fyrir nokkrum árum að það verður
sprenging í hjólreiðum og við förum
að sjá alls konar útgáfur. Við erum
með blendingshjól sem eru nær
fjallahjólum og svo erum við með
borgarhjólin. Cyclocross-hjól hafa
síðan verið afar vinsæl undanfarin ár.
Þannig hefur úrvalið aukist í sam-
ræmi við ólíkar þarfir,“ segir Finnbogi
Llorens hjá Ellingsen.
Eins og Finnbogi bendir á eru
fjallahjól í raun ætluð fyrir utanvega-
hjólreiðar, á grófu undirlendi, möl og
mold, til dæmis. Aðrar gerðir henta
hins vegar til hjólreiða á malbiki, síðan
eru keppnis- og æfingahjól annar
flokkur. Enn fremur þurfa börn sínar
gerðir af hjólum. Allar þessar þarfir
og fleiri til uppfyllir hjóladeild Elling-
sen með samstarfi við hinn þekkta
framleiðanda Merida, en öll hjól sem
seld eru í Ellingsen eru undir því
merki.
„Sumir líta eingöngu á hjólreiðar
sem líkamsrækt og eru jafnvel að æfa
og keppa. Svo eru aðrir sem koma
ekki nálægt slíku en líta á reiðhjól
sem samgöngutæki. Við uppfyllum
þarfir allra hjólreiðahópa enda hefur
Merida að kjörorði að bjóða upp á hjól
fyrir alla,“ segir Finnbogi.
Merida er gamalgróið merki og var
áður hjólaverksmiðja sem framleiddi
hjól fyrir alþjóðleg hjólamerki. „Upp
úr 1988 fara þeir að framleiða hjól
undir sínu eigin merki. Það merki er
núna eitt af þeim stóru í heiminum
með dreifingu í 77 löndum. Þetta eru
gæðahjól,“ segir Finnbogi.
Meirihluti hjólakaupenda í Ellingsen
er fjölskyldufólk enda hefur verslunin
ávallt gefið sig út fyrir að vera útivist-
arverslun fjölskyldunnar. Mikið úrval
er af barnahjólum, þar á meðal þríhjól
og sparkhjól. Einnig býður Ellingsen
upp á klassísk borgarhjól, sem eru í
gömlu klassísku útliti og með körfu
framan á stýrinu.
Auk reiðhjólanna fást allir varahlut-
ir og aukabúnaður fyrir hjólreiðar í Ell-
ingsen. Þar má nefna reiðhjólahjálma,
pedala, standara, hjálpardekk fyrir
barnahjól, sýnileikaföt og ótal margt
fleira.
Einnig býður Ellingsen upp á við-
gerðarþjónustu fyrir Merida-reiðhjól,
hvort sem það er stilling á gírum,
viðgerðir á bremsum eða stærri
viðgerðir.
Úrvalið er hægt að skoða á vefsíð-
unni ellingsen.is. Ellingsen er til húsa
að Fiskislóð 1, 101 Reykjavík. Opið er
mánudaga–fimmtudaga frá 10 til 18,
föstudaga frá 10–19, laugardaga frá
11–18 og sunnudaga frá 13–17.
Þess má geta í lokin að núna
standa yfir Sumardagar í Ellingsen og
er 20% afsláttur af öllum reiðhjólum.
ELLingSEn:
Merida-reiðhjól fyrir alla
Finnbogi