Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Page 44
 20. apríl 2018KYNNINGARBLAÐHjólreiðar Áður en þessi mikla hjólabylting varð hérna fyrir nokkrum árum þá voru nánast allir á fjallahjólum, hvort sem hjólað var á malbiki, möl eða öðru undirlagi. Það var lítið annað í boði. Svo gerist það fyrir nokkrum árum að það verður sprenging í hjólreiðum og við förum að sjá alls konar útgáfur. Við erum með blendingshjól sem eru nær fjallahjólum og svo erum við með borgarhjólin. Cyclocross-hjól hafa síðan verið afar vinsæl undanfarin ár. Þannig hefur úrvalið aukist í sam- ræmi við ólíkar þarfir,“ segir Finnbogi Llorens hjá Ellingsen. Eins og Finnbogi bendir á eru fjallahjól í raun ætluð fyrir utanvega- hjólreiðar, á grófu undirlendi, möl og mold, til dæmis. Aðrar gerðir henta hins vegar til hjólreiða á malbiki, síðan eru keppnis- og æfingahjól annar flokkur. Enn fremur þurfa börn sínar gerðir af hjólum. Allar þessar þarfir og fleiri til uppfyllir hjóladeild Elling- sen með samstarfi við hinn þekkta framleiðanda Merida, en öll hjól sem seld eru í Ellingsen eru undir því merki. „Sumir líta eingöngu á hjólreiðar sem líkamsrækt og eru jafnvel að æfa og keppa. Svo eru aðrir sem koma ekki nálægt slíku en líta á reiðhjól sem samgöngutæki. Við uppfyllum þarfir allra hjólreiðahópa enda hefur Merida að kjörorði að bjóða upp á hjól fyrir alla,“ segir Finnbogi. Merida er gamalgróið merki og var áður hjólaverksmiðja sem framleiddi hjól fyrir alþjóðleg hjólamerki. „Upp úr 1988 fara þeir að framleiða hjól undir sínu eigin merki. Það merki er núna eitt af þeim stóru í heiminum með dreifingu í 77 löndum. Þetta eru gæðahjól,“ segir Finnbogi. Meirihluti hjólakaupenda í Ellingsen er fjölskyldufólk enda hefur verslunin ávallt gefið sig út fyrir að vera útivist- arverslun fjölskyldunnar. Mikið úrval er af barnahjólum, þar á meðal þríhjól og sparkhjól. Einnig býður Ellingsen upp á klassísk borgarhjól, sem eru í gömlu klassísku útliti og með körfu framan á stýrinu. Auk reiðhjólanna fást allir varahlut- ir og aukabúnaður fyrir hjólreiðar í Ell- ingsen. Þar má nefna reiðhjólahjálma, pedala, standara, hjálpardekk fyrir barnahjól, sýnileikaföt og ótal margt fleira. Einnig býður Ellingsen upp á við- gerðarþjónustu fyrir Merida-reiðhjól, hvort sem það er stilling á gírum, viðgerðir á bremsum eða stærri viðgerðir. Úrvalið er hægt að skoða á vefsíð- unni ellingsen.is. Ellingsen er til húsa að Fiskislóð 1, 101 Reykjavík. Opið er mánudaga–fimmtudaga frá 10 til 18, föstudaga frá 10–19, laugardaga frá 11–18 og sunnudaga frá 13–17. Þess má geta í lokin að núna standa yfir Sumardagar í Ellingsen og er 20% afsláttur af öllum reiðhjólum. ELLingSEn: Merida-reiðhjól fyrir alla Finnbogi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.