Ægir - 01.07.2017, Blaðsíða 62
62
Fjarðanet, sem er hluti af Hampiðjan Group, rekur alhliða veiðarfæraþjón-ustu á þremur stöðum á landinu, á Ísa-
firði, Akureyri og í Neskaupstað og er einnig
með víðtæka þjónustu við fiskeldi, rekur
þvottastöð fyrir fiskeldispoka á Reyðarfirði
og selur vörur til fiskeldis. Fyrirtækið starf-
rækir einnig skoðunarstöðvar fyrir gúmmí-
björgunarbáta í Neskaupstað og á Ísafirði.
„Við leggjum mikla áherslu á hönnun og
þróun veiðarfæra og vinnum sífellt að því
að betrumbæta veiðarfæri sem eru í notkun
eða koma með nýjar lausnir,“ segir Jón Einar
Marteinsson framkvæmdastjóri en Fjarða-
net kynnir ýmsar nýjungar í hönnun og þró-
un veiðarfæra á sjávarútvegssýningunni.
„Öll okkar þróunar- og hönnunarvinna
er í nánu samstarfi við sjómenn og útgerðir,
sem er algjört skilyrði fyrir jákvæðri fram-
þróun að okkar mati, jafnframt því sem við
förum reglulega með módel í tilraunatank
til að prófa hugmyndir okkar við raunað-
stæður.“
Nýjungar í botnvörpum
Nýjasta hönnun Fjarðanets er nýtt fiskitroll
sem þeir kalla víðvörpuna, þar sem það er
með mun breiðari opnun en flest troll sem
verið hafa í notkun til þessa. Víðvarpan er
framleidd úr bæði hefðbundnu PE neti og
nýju neti frá Hampiðjunni, sem kallast
„Advant“ og er hægt að fá hana í tveimur
mismunandi gerðum; annars vegar þar sem
netið snýr á hefðbundinn hátt og hins vegar
sem T90 troll með þverneti. Hönnun og
prófanir á nýju botnvörpunni hafa staðið yfir
í þó nokkurn tíma og er búið að fara með
hana í nokkrar ferðir í tilraunatank.
„Víðvarpan hefur verið þróuð í samvinnu
við sjómenn á skipum HB Granda og Sam-
herja en hugsunin með henni var að reyna
að nálgast með einu trolli, eins og hægt
væri, þá breidd á veiðisvæði sem næst með
tveimur trollum. Það hefur okkur tekist,
veiðisvæðið stækkar verulega með notkun
viðvörpunnar og mælingar frá skipum sem
nota trollið staðfesta mælingar okkar úr til-
raunatankinum,“ segir Jón Einar. Þá megi
einnig nefna að Blængur NK sé með breytt
fiskitroll frá Fjarðaneti sem gefið hafi góða
raun. „Það sem við gerðum þar var að
stækka H-toppinn sem hann var með fyrir
og nota nýja Advant netið frá Hampiðjunni.
Trollið hefur komið mjög vel út hjá Blæng
og eru þeir mjög ánægðir.“
Ný gerð þorskpoka með Quick línum
reynist vel
Í samvinnu við sjómenn á skipum Samherja
og HB Granda og Hampiðjuna hefur Fjarða-
net einnig þróað nýja gerð af þorskpoka
sem reynst hefur mjög vel. Pokinn er T90
poki, þar sem netinu er snúið um 90 gráður
frá því sem hefðbundið er og það fellt á nýja
gerð af lykkjulínum, sem Hampiðjan hefur
þróað. Útkoman er í stuttu máli sú að
möskvarnir opnast betur og gegnum-
streymi í pokanum er meira en áður. Þá
heldur pokinn lögun sinni betur og ekki
þrengir eins mikið að fiskinum og í hefð-
bundnum pokum.
„Fiskurinn syndir bara rólegur í pokanum
þegar togað er og kemur ferskur og sprikl-
andi inn á dekk. Stærðin á fiskinum er jafn-
Víðvarpan er nýjasta hönnun Fjarðanets í fiskitrollum. Hér er verið að prófa
módel í tilraunatanki en mikið er lagt upp úr því að þróa nýjar hugmyndir í
samstarfi við sjómenn og útgerðir og prófa þær við raunaðstæður.
Jón Einar Marteinsson, framkvæmdastjóri Fjarðanets er bjartsýnn á framtíðina enda
hefur nýjungum fyrirtækisins í þróun veiðarfæra verið vel tekið og verkefnastaðan góð.