Ægir - 01.07.2017, Page 82
82
Fyrirtækið KAPP ehf. kynnir OPTIM-ICE ísþykknibúnað sinn í bás B 20 á Ís-lensku sjávarútvegssýningunni en fyr-
irtækið hefur selt yfir 300 kerfi til útgerða
víða um heim. „Á þessari sýningu munum
við kynna þær frábæru lausnir sem við
bjóðum í kælingu á matvælum, einkum
fiski, en við teljum að þær séu þær bestu og
hagkvæmustu sem til eru á markaðnum í
dag. Hin snögg kæling, strax eftir að fiskur
er dreginn úr sjó, tryggir ferskleika hráefnis-
ins mun lengur en áður var og lengir þar
með hillutíma afurðanna eftir að í verslanir
er komið,“ segir Heimir Halldórsson þjón-
ustustjóri hjá KAPP ehf.
Þrautreyndur búnaður
KAPP ehf. er í eigu hjónanna Freys Friðriks-
sonar og Elfu Hrannar Valdimarsdóttur en
þau sameinuðu fyrirtækin Kapp ehf. og Op-
timar Ísland ehf. í ársbyrjun 2016 og nefndu
þá fyrirtækið Optimar-Kapp ehf. Nú hefur
nafninu verið breytt í KAPP ehf. Auk fram-
leiðslunnar á OPTIM-ICE ískrapakerfunum
rekur KAPP véla- og renniverkstæði og
býður til sölu og útleigu kæli- og frysti-
vagna en sá þáttur hefur verið vaxandi und-
anfarin misseri.
„Þessi búnaður okkar er orðinn þraut-
reyndur hér á landi enda verið í framleiðslu
allt frá árinu 1998. Mest af framleiðslunni
fer á erlenda markaði og þá til margs konar
fyrirtækja í matvælaiðnaði en á síðustu ár-
um hefur færst í vöxt að búnaðinum sé
komið fyrir í fiskiskipum af öllum stærðum.
Kælivélarnar eru alfarið smíðaðar hér í okk-
ar verksmiðju og við framleiðum þær í
mörgum stærðum, allt frá smærri vélum
fyrir smábáta upp í stór kerfi fyrir stærri
skip. Þá býður KAPP einnig upp á annan
kælitengdan búnað eins og t.d. CARRIER
kæli- og frystivélarnar en fyrirtækið hefur
annast sölu og þjónustu þeim um nokkurt
árabil,“ segir Heimir ennfremur.
Viðhald og þjónusta
„Okkar menn sjá um uppsetningar og við-
hald á ísvélum og búnaði til þeirra, ásamt
frysti- og kælibúnaði, vakúm dælum og
öðrum tengdum búnaði. Við erum ekki að-
eins að selja þessa góðu tækni okkar heldur
sendum við menn út á skipin til að kenna á
búnaðinn við réttar aðstæður og þjónustum
hann hvenær sem á þarf að halda, allan
sólarhringinn ef því er að skipta. Hér er
einnig rekið véla- og renniverkstæði með
þrautreyndu starfsfólki og hægt að bregð-
ast hratt og vel við ef eitthvað bilar hjá okk-
ar viðskiptavinum. KAPP ehf. leggur mikla
áherslu á að eiga alltaf helstu varahluti á
lager þegar þess gerist þörf.“ Heimir bætir
því við að menntun og viðhald þekkingar
starfsmanna skipti miklu máli „enda er þró-
unin á fleygiferð og mikil samkeppni á
þessu sviði frá öflugum aðilum út um allan
heim. Það er því eins gott að vera alltaf á
tánum eins og sagt er.“
Leiga á kæli- og frystivögnum
Eins og áður segir býður KAPP kæli- og
frystivagna til sölu og leigu og rekur tugi
slíkra vagna sem eru hjá aðilum í m.a. flutn-
ingageiranum, útgerðaraðilum og í verslun-
um um land allt. „Þessi þjónusta hefur
mælst vel fyrir og við bjóðum upp á eftirlit
með þessum tækjum allan sólarhringinn.
Með nettengingu fylgjumst við með vögn-
unum í rauntíma og getum strax gripið inn í
og t.d. látið bílstjóra, sem aka flutningabíl-
unum, vita ef eitthvað kemur upp á í bún-
aðinum. Snögg viðbrögð þarna skipta auð-
vitað öllu máli og koma í veg fyrir stórtjón
eins og ljóst má vera.“
KAPP ehf. er til húsa að Miðhrauni 2 í
Garðabæ þaðan sem öll framleiðsla fyrir-
tækisins fer fram svo og sölu- og markaðs-
starf. Þá er fyrirtækið með umboðsaðila er-
lendis, m.a. í Rússlandi og Noregi.
kapp.is
Heimir Halldórsson þjónustustjóri KAPP ehf. við ísþykknibúnað sem verið var að setja saman í verksmiðju fyrirtækisins í Garðabæ
þegar ljósmyndara bar að garði.
KAPP ehf. tryggir
ferskleika hráefnisins
OPTIM-ICE ísþykknivélarnar eru ein af
aðalstoðunum í rekstri KAPP ehf. og
þrautreyndar við erfiðustu aðstæður.