Ægir - 01.07.2017, Síða 86
Ný tölvustýrð
flökunarvél frá Curio
Það hefur verið góður gangur í þessu hjá okkur undanfarin ár og viðtökur markaðarins framar vonum. Langmest
af okkar framleiðslu fer á markað erlendis
og við erum að bæta þar þjónustu okkar
með opnun útibúa í bæði Skotlandi og Nor-
egi. Við verðum á Íslensku sjávarútvegssýn-
ingunni í Kópavogi og þar munum við svipta
hulunni af nýrri tölvustýrði flökunarvél sem
við köllum Curio 4011,“ segir Elliði Hreins-
son, framkvæmdastjóri Curio í Hafnarfirði.
Verkefnið að gera góðar vélar enn
betri
Á sýningunni í Laugardalshöll sl. haust
frumsýndi Curio nýja roðdráttarvél sem
nefnist Curio 2031 en sala á henni hefur
gengið mjög vel og þurfa starfsmenn Curio
að hafa sig alla við til að anna eftirspurn. El-
liði segir Curio í sífelldri vöruþróun og
tækniframfarir stöðugar. Hann segir hlut-
verk fyrirtækisins vera það að gera góðar
vélar enn betri og þá sé horft til margra
þátta, bæði afkasta vélanna og getu þeirra
og nýtingu hráefnis jafnframt því sem miklu
máli skipti hvernig útlit vörunnar sé þegar
flökin koma úr flökunarvélunum.
„Þetta er þáttur sem enn meira er horft
til með aukinni vinnslu á ferskmarkaði. Á
sýningunni núna erum við m.a. með Curio
4011, sem er ný tölvustýrð flökunarvél með
snertiskjá þar sem valið er um fiskteg-
undir þannig að hún sker
fiskinn með hlið-
sjón af tegund
og stærð.
Einnig eru í
vélinni inn-
byggðar mynda-
vélar svo hægt sé
að fylgjast með
flökun. Þetta
býður m.a. upp á
fínstillingar á
skurðarferlum án
þess að stoppa þurfi
vélina. Skjámyndakerfið býður
upp á aukna möguleika varðandi viðhald og
þjónustu en hægt er að fylgjast með álagi á
mótorum og hita ásamt stöðu öryggis-
nema. Einnig er boðið upp á uppskriftakerfi,
þannig að hafi vélin verið stillt eftir ákveð-
inni fisktegund þá er hægt að kalla þá still-
ingu fram aftur, næst þegar sú fisktegund
er í vinnslu. Vélin býður líka upp á netteng-
ingu þannig að við getum aðstoðað við bil-
anagreininingu og stillingar yfir netið,“ segir
Elliði ennfremur.
Starfsstöðvar í Hafnafirði, á Húsavík
og í Skotlandi
Aðalstöðvar Curio eru við Eyrartröð 4 í
Hafnarfirði en að auki er rekið útibú á Húsa-
vík og í Skotlandi. Curio framleiðir flökunar-
vélar, hausara, roðflettivélar og brýningar-
vélar og er vélbúnað fyrirtækisins að finna í
fiskvinnslum um allt land en stærstur hluti
framleiðslunnar er þó seldur til erlendra
fiskvinnslna og útgerða eins og
áður sagði.
„Við byrjuðum hægt og rólega fyrir
norðan og réðum þar einn starfsmann
fyrir fjórum árum. Nú erum við þar með
þjónustudeild og framleiðslu í 800 m2 hús-
næði þar sem eru fjórir starfsmenn og fyrir-
hugað að ráða þrjá til viðbótar á næstu
mánuðum. Til að mæta kröfuhörðum mörk-
uðum erlendis erum við einnig að færa út
kvíarnar. Í borginni Peterhead í Skotlandi
höfum við verið með sölu- og þjónustudeild
en erum nú að opna þar framleiðsludeild
einnig, m.a. til að geta betur sinnt vara-
hluta- og viðgerðarþjónustu. Þá er fyrirhug-
að að opna útibú í Tromsö í Noregi en við
höfum verið að auka markaðshlutdeild okk-
ar þar í landi verulega.“
Mun betri aflameðhöndlun en áður
„Á þeim árum sem ég hef verið í þessu hef
ég séð miklar framfarir í meðhöndlun afla
allt frá því fiskur kemur úr sjó, þ.e. í blóðg-
un, kælingu, aflameðferð og öllum frágangi
til frekari vinnslu. Okkar vélbúnaður kemur
auðvitað við sögu í vinnslunni á þessum afla
þar sem allt miðast við að á endanum verði
til enn betri og verðmætari afurðir. Ég er
ekki í vafa um að að íslenskur sjávarútvegur
hefur mikið forskot hvað hráefnismeð-
höndlun í hvítfiskvinnslunni varðar saman-
borið við það sem almennt þekkist erlend-
is.“
curio.is
Elliði Hreinsson, framkvæmdastjóri Curio í Hafnarfirði sem
vart hefur undan að framleiða vélbúnað í fiskvinnslur hér
heima og erlendis.
Roðdráttarvélin, Curio C2031,
var til sýnis á sýningunni í Laug-
ardalshöll sl. haust og hún selst
jafnt og þétt.
86