Ægir - 01.07.2017, Side 100
100
Ég er búinn að fá ágæta reynslu á skipið í þessum fyrstu túrum og hér um borð eru allir alsælir. Þetta er gjörbreyting í
aðbúnaði fyrir áhöfnina frá gamla Ásbirni og
svo er það sjálfvirknin í vinnslunni og
tæknilausnirnar um borð. Þetta er frábært,“
segir Friðleifur Einarsson skipstjóri á Engey
RE 91, nýjasta ferskfiskskipi HB Granda hf.
Skipið kom hingað til lands í janúar síðast-
liðnum og var fyrst af þremur samskonar
togurum sem fyrirtækið lætur smíða fyrir
sig hjá Celiktrans-skipasmíðastöðinni í
Tyrklandi. Skipin eru hönnun frá Alfreð Tul-
inius, skipaverkfræðingi hjá Nautic ehf. Þau
eru 58 metra löng og 13 metra breið en auk
Engeyjar RE tók HB Grandi á móti Akurey AK
í byrjun sumars og fær þriðja skipið, Viðey
RE undir árslok.
Sjálfvirkasti ferskfisktogari heims
Þegar heim var komið tók við lokaáfanginn í
smíði Engeyjar RE á Akranesi, þ.e. uppsetn-
ing fiskvinnslubúnaðar á milliþilfar skipsins
og lestarkerfi sem hvergi hefur sést í togara
í heiminum hingað til. Lestin er fullkomlega
sjálfvirk og mannshöndin kemur þar hvergi
nærri, hvorki við lestun úti á sjó né við lönd-
un að loknum veiðiferðum. Auk heldur er
vinnslukerfið frá Skaganum 3X þannig að
fiskurinn er fullkældur niður í mínus 0,1
gráðu áður en hann fer í lestina og því þarf
ekki að ísa í kerin með hefðbundum hætti.
Með öðrum orðum er Engey RE búin mestu
sjálfvirkni sem sést hefur í ferskfisktogara í
heiminum hingað til.
Engey RE 91 er rúmlega 55 metrar að
lengd og 13,5 á breidd. Ganghraði skipsins er
13 hnútar og hefur það 45 tonna togkraft.
Fiskvinnslusvæði er 265 fermetrar en lest
rúmar 635 ker, 440 lítra.
„Loksins kominn með alvöru spil“
Fyrstu prufutúrar voru farnir snemma
sumars og síðan fór skipið í fyrstu veiðiferð-
irnar eftir miðjan ágúst og var aflinn í fyrstu
tveimur túrunum samanlagt rösklega þrjú
hundruð tonn. Friðleifur skipstjóri segir við
því að búast að fyrstu túrana þurfi til að
slípa vinnsluferlið og fínstilla kerfi skipsins.
„Það tekur sinn tíma að læra á þetta allt,
bæði í vinnslunni og fyrir okkur í brúnni.
Skipið er vel búið nýjustu tækni, hvert sem
litið er,“ segir Friðleifur. Í fyrstu túrunum var
aflinn blandaður, bæði togað á karfamiðum
suður af Reykjanesi og á þorskmiðum úti
fyrir Vestfjörðum. En hvað er það sem Frið-
leifi þykir sjálfum mest um vert í þessu nýja
skipi.
„Frá mínum bæjardyrum þá eru það
spilbúnaðurinn. Hann er gjörólíkur því sem
maður hefur átt að vernjast í skipstjórn fram
að þessu. Það má kannski orða það einfald-
lega þannig að nú sé maður loksins kominn
með alvöru spil í hendurnar. Bæði er það
hversu öflug þau eru og líka þessi sjálfvirkni
í stjórnbúnaði. Breytingin í þessum efnum
frá gamla Ásbirni er mjög mikil,“ segir Frið-
leifur og nefnir einnig mannlausu lestina og
aðra byltingarkennda þætti í aflameð-
höndluninni um borð.
Hin byltingarkenndi ferskfisktogari, Engey RE 91, hefur lokið fyrstu veiðiferðum
„Allir alsælir um borð“
segir Friðleifur Einarsson, skipstjóri
Friðleifur Einarsson í brúnni á Engey.
Systurskipin Engey RE og Akurey AK í höfninni á Akranesi. Engey er nú kominn í fullan
rekstur en unnið er að uppsetningu vinnslubúnaðar og lestarkerfis í Akurey.