Ægir - 01.07.2017, Side 128
128
Oddi leggur mikla áherslu á að veita sjávarútvegs-fyrirtækjum góða og
hraðvirka þjónustu enda er sam-
starf við sjávarútvegsfyrirtæki
meðal mikilvægustu þátta í
starfsemi fyrirtækisins. Oddi
framleiðir bæði pappa- og
plastumbúðir fyrir sjávarútveginn og flytur
einnig sérstaklega inn umbúðir sem upp-
fylla ítrustu kröfur fyrir ákveðnar vöruteg-
undir, t.d. saltfisk. Auk þess veitir Oddi
einnig alla almenna prentþjónustu enda ein
best búna prentsmiðja landsins.
Þjónustan löguð að
sérþörfum sjávar-
útvegsins
„Framleiðsla
Odda fyrir sjávar-
útveginn er
mjög fjölbreytt
og fylgir þeim
takti sem er í
greininni hverju
sinni. Við erum
stöðugt að þróa
vöruúrval okkar,
bæði í eigin
framleiðslu og í
innfluttum um-
búðum, til að
uppfylla kröfur viðskiptavina,“
segir Kristján Geir Gunnarsson,
framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs Odda. „Sjávarút-
vegsteymið okkar sérhæfir sig í
að koma til móts við þarfir við-
skiptavina í greininni, hvort sem
um er að ræða umbúðir fyrir
vinnsluskip eða landvinnslur, bolfisk-
vinnslur eða uppsjávarframleiðslu. Við erum
eina fyrirtækið á Íslandi sem framleiðir bæði
pappa- og mjúkplastumbúðir fyrir sjávarút-
veginn og sérstaða okkar er enn sterkari
vegna þess hve nálægt viðskiptavininum við
erum.“
Breitt vöruúrval framleitt fyrir
íslenskar aðstæður
Kristján Geir segir að þarfir viðskiptavina í
sjávarútvegi séu ákaflega fjölbreyttar, bæði
hvað varðar umbúðirnar sjálfar, form þeirra
og áprentun. „Við höfum lagt mikla áherslu
á að bæta enn þjónustu okkar við sjávarút-
veginn undanfarin misseri, t.d. með auknum
sveigjanleika í afhendingarhraða og með því
að bjóða breiðara vöruúrval.“ Hann segir að
Oddi bjóði þannig bæði mikið úrval af ís-
lenskum umbúðum úr plasti og pappa sem
eru sérhannaðar fyrir íslenskar aðstæður og
einnig sérvaldar innfluttar umbúðir sem
uppfylla ítrustu kröfur fyrir ákveðnar sjáv-
arafurðir. „Markmið okkar er að bjóða við-
skiptavinum okkar alltaf bestu umbúða-
lausnirnar miðað við kröfur þeirra hverju
sinni til að viðskiptavinir okkar geti boðið
kaupendum og neytendum frábæra vöru
sem kemur á áfangastað í öruggum um-
búðum og frábæru ástandi,“ segir Kristján
Geir.
Mikilvæg áhersla á umhverfis-
og loftslagsmál
Oddi hefur lagt ríka áherslu á umhverfismál
í tugi ára. Kristján Geir segir að fyrirtækið sé
mjög umhverfismiðað í heild og það birtist
m.a. í hráefnisvali og víðtækri endurvinnslu.
„Við leggjum t.d. áherslu á umhverfisvottun
á pappír og pappa sem við notum í okkar
framleiðslu og tökum við plasti frá við-
skiptavinum til endurvinnslu. Allt prent-
verkið okkar er með Svansvottun og mark-
mið okkar er að gera alltaf eins vel og við
getum gagnvart umhverfinu.“
Hluti af umhverfisstefnu Odda er að
fylgjast vel með kolefnisspori umbúða sem
fyrirtækið framleiðir. „Í kjölfar Parísarsam-
komulagsins um loftslagsmál hefur orðið
ákveðin vitundarvakning um þessi málefni.
Það skiptir okkur hjá Odda því miklu máli að
samstarfsaðilar okkar í sjávarútvegi geti
fengið góðar upplýsingar um kolefnisspor
umbúðanna frá okkur sem getur t.d. verið
allt að 93% minna en hjá samkeppnisaðil-
um. Við viljum að viðskiptavinir okkar geti
treyst því að umbúðir frá Odda séu alltaf
framleiddar með eins jákvæðum umhverf-
isáhrifum og mögulegt er.“
oddi.is
Oddi framleiðir bæði pappa og plastumbúðir fyrir sjávarútveg.
Kristján Geir Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri sölu- og markaðssviðs Odda.
Sérstök áhersla á góða
þjónustu við sjávarútveg í
umbúðaframleiðslu Odda