Ægir - 01.07.2017, Síða 148
148
Skipstjórnarskólinn er öflugur skóli sem býður upp á fjölþætt og vandað nám. Jón Hjalti Ásmundsson er skóla-
stjóri Skipstjórnar- og véltækniskólans en
Ægir hafði spurnir af nýjum og fullkomnum
hermum sem teknir hafa verið til notkunar í
skólanum: „Við tökum tvo nýja herma í
notkun nú í haust en áður höfðum við tekið
í notkun nýjan fjarskiptahermi,“ segir Jón
Hjalti en þeir koma í stað fyrri herma sem
þörfnuðust endurnýjunar vegna aldurs.
Hermarnir, sem koma frá Transas, eru nú í
rýmum sem endurnýjuð hafa verið frá
grunni og eru aðstæður allar hinar glæsi-
legustu.
Þrír mismunandi hermar
Um þrjá mismunandi herma er að ræða,
einn er fyrir fjarskipti, annar fyrir vélarúm og
sá þriðji fyrir brú. „Fjarskiptahermirinn sam-
anstendur af tölvubúnaði sem ætlað er að
þjálfa nemendur í notkun fjarskiptabúnaðar
skipa þannig að þeir geti gegnt hlutverki
fjarskiptamanna og öðlast almennt og óta-
markað fjarskiptamannssírteini að lokum.“
„Brúarhermirinn er þrjár brýr, ein er
stærst og er nemandi þar kominn inn í eftir-
líkingu af alvöru brú í skipi með risaskjám
allan hringinn ásamt eftirlíkingu allra
stjórntækja fyrir stýrimann að vinna með.
Svo eru tvær minni brýr sem hafa sambæri-
lega virkni en færri skjái. Í brúarhermum fá
nemendur verklega þjálfun í siglingafræði,
þjálfun í notkun ratsjár til staðsetningar og í
skipaumferð í dimmviðri. Nemendur fá
þjálfun í störfum á stjórnpalli skips og skulu
á grundvelli aðstæðna taka ákvarðanir og
annast vaktstöðu eins og ef viðkomandi
væri um borð í skipi. Nemendur þjálfast
einnig í siglingum milli landa svo og í við-
brögðum við erfiðar eða afbrigðilegar að-
stæður sem kalla á að tilteknum stjórntök-
um sé beitt.“
„Vélarúmshermirinn samanstendur af
tækjabúnaði eins og fyrirfinnst í stjórnrými
vélarúma skipa. Nemendur þjálfast þar í
keyrslu vélarúms og kynnast daglegum
rekstri vélarúms frá köldu skipi til fullrar
aflnotkunar. Nemendur þjálfast í viðbrögð-
um við bilunum, ræsa og reka allan búnað
vélarúmsins með hjálp viðvörunarkerfa
hermisins, bregðast við gangtruflunum,
greina bilanir og koma búnaðinum í rétt
horf,“ segir Jón Hjalti og bendir á að Verk-
menntaskólinn á Akureyri hafi jafnframt
komið sér upp vélarúmshermi. Sambæri-
lega herma er ekki að finna hjá öðrum skól-
um hér á landi.
Hægt að tengja herma saman
Í öllum hermum leggja kennarar fyrir verk-
efni sem taka á mismunandi þáttum í þjálf-
un nemenda og eru þau oft mjög raunveru-
leg. „Hægt er að setja inn allskonar bilanir
og stilla upp ólíkum aðstæðum en svo
verður líka hægt að tengja brúar- og vélar-
úmsherma saman og vinna sameiginlegar
æfingar fyrir bæði stýrimenn og vélstjóra.
Kennsla í hermum fer fram eftir að nem-
endur hafa fengið fræðslu í ýmsum öðrum
áföngum og reynir þá á þekkingu nemenda
sem þeir hafa aflað þar,“ segir Jón Hjalti og
bætir við að einnig verði boðið upp á nám-
skeið sem kennd eru með notkun her-
manna á vegum Endurmenntunarskóla
Tækniskólans . „Meðal þeirra má telja fjar-
skiptanámskeið fyrir ROC og GOC skírteini,
námskeið í ARPA ratsjá og í ECTIS korta-
kerfinu.“
tskoli.is
Jón Hjalti Ásmundsson er að vonum ánægður með nýju hermana en rýmin fyrir þá hafa verið endurnýjuð frá grunni.
Nýjir hermar efla námið