Morgunblaðið - 30.11.2017, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2017
Opið alla
daga til
jóla
Fallegar jólagjafir
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun
Eitt af því sem Jóhanna Sigurð-ardóttir vill bersýnilega fegra
með nýútkominni ævisögu sinni er
myndin sem fólk hefur af henni eftir
Icesave-málið. Ríkisstjórn hennar
reyndi ítrekað að
þvinga Icesave-
samningum upp á
þjóðina, en þjóðin
hafnaði þeim jafn-
harðan.
Í bókinni kveinkarhún sér undan því
að hafa þurft að
glíma við þetta erfiða
mál og fer svo þá leið
að kenna öðrum um.
Þeir sem fá að sitjauppi með Icesave-málið í bók Jó-
hönnu eru Steingrímur J. Sigfússon
og Svavar Gestsson, sem fenginn var
til að semja um lausn málsins.
Jóhanna segir að Steingímur hafifarið með málið og segir að hann
hafi ákveðið að ráða Svavar til að
stýra samningaviðræðunum en bætir
við að það hafi verið „hik“ á sér með
það, en sér hafi fundist rétt að láta
Steingrím ráða þessu.
Síðar segir í bókinni að eftir á aðhyggja megi „líka kalla það af-
drifarík mistök hjá Steingrími að
ráða pólitískan fóstra sinn, Svavar
Gestsson, sem aðalsamningamann“.
Nú er það vissulega svo að Stein-grímur og Svavar bera sína
ábyrgð í málinu og er hún ekki lítil.
En að forsætisráðherra reyni með
þessum hætti að víkja sér undan
ábyrgð er hvorki sanngjarnt né stór-
mannlegt.
Ekkert bendir til að Jóhanna hafiverið ósátt við að fara þá ógæfu-
leið sem farin var, nema eftiráskýr-
ingar ævisögunnar.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Hvorki sanngjarnt
né stórmannlegt
STAKSTEINAR
Steingrímur J.
Sigfússon
Veður víða um heim 29.11., kl. 18.00
Reykjavík 2 súld
Bolungarvík 2 súld
Akureyri -1 heiðskírt
Nuuk 1 snjókoma
Þórshöfn 1 léttskýjað
Ósló 0 skýjað
Kaupmannahöfn 2 léttskýjað
Stokkhólmur 3 skýjað
Helsinki 3 skýjað
Lúxemborg 0 rigning
Brussel 3 skúrir
Dublin 4 léttskýjað
Glasgow 2 skýjað
London 5 skýjað
París 3 skýjað
Amsterdam 4 þoka
Hamborg 4 skýjað
Berlín 1 léttskýjað
Vín 2 rigning
Moskva -3 alskýjað
Algarve 19 heiðskírt
Madríd 9 léttskýjað
Barcelona 11 skýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 11 rigning
Aþena 12 heiðskírt
Winnipeg 0 alskýjað
Montreal 4 alskýjað
New York 7 þoka
Chicago 4 heiðskírt
Orlando 26 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:44 15:50
ÍSAFJÖRÐUR 11:19 15:25
SIGLUFJÖRÐUR 11:03 15:07
DJÚPIVOGUR 10:21 15:12
Framkvæmdir við gerð Dýrafjarðar-
ganga eru komnar á ágætt skrið og
nú er búið að bora um 600 metra af
þeim 5.300 metrum sem göngin
verða. Það er um 11% heildarlengd-
inni. Að undanförnu hefur fram-
gangurinn gjarnan verið 65-75 metr-
ar á viku og er það í samræmi við
áætlanir, að sögn Eysteins Dofra-
sonar hjá Suðurverki.
Það eru Suðurverk og tékkneska
fyrirtækið Metrostav sem hafa
gangagerðina með höndum. Verka-
skiptingin er gróflega sú að Tékk-
arnir sjá um að sprengja bergfyll-
urnar út en Íslendingar annast aðra
vinnu. Um 60 manns vinna við fram-
kvæmdina, og á verkstað á hverjum
tíma eru um 2/3 af þeim mannskap
en þriðjungur þá í fríi. Borað er í
fjallið úr Arnarfirði, þar sem vinnu-
búðum hefur verið komið upp. Þaðan
frá verður borað fjóra kílómetra inn í
fjallið en það sem upp á vantar verð-
ur tekið Dýrafjarðarmegin frá.
Heildarkostnaður við göngin, sem
eru 5,6 km löng með vegskálum, er
áætlaður um 13 milljarðar króna. Í
þeirri tölu er kostnaður við gerð
tveggja nýrra vegarkafla, tæpir 5
kílómetrar í Dýrafirði og um þrír í
Arnarfirði að viðbættum tveimur
brúm. Allt þetta á að vera tilbúið
haustið 2020. sbs@mbl.is
Komnir 600 metra í Dýrafjarðargöngum
11% af heildarlengd 60 starfsmenn
í gengi Borað Arnarfjarðarmegin frá
Ljósmynd/Guðmundur Rafn
Dýrafjarðargöng Borað og sprengt
inni í fjallinu vestur á fjörðum.
Ljósin á Ham-
borgartrénu
verða tendruð kl.
17:00 laugardag-
inn 2. desember
n.k. en tréð er
staðsett á Mið-
bakka Reykjavík-
urhafnar. Allt frá
árinu 1965 hafa
góðir vinir í Hamborg sent jólatré til
Íslands.
Við athöfnina munu fulltrúar frá
Hamborg flytja stutt ávarp um leið
og þeir afhenda gjöfina. Kristín Soffía
Jónsdóttir, formaður Faxaflóahafna
sf., þakkar fyrir jólatréð fyrir hönd
hafnarinnar. Herbert Beck sendi-
herra Þýskalands á Íslandi, ávarpar
gesti ásamt dr. Sverri Schopka, full-
trúa Þýsk-Íslenska félagsins í Þýska-
landi. Að athöfn lokinni er gestum
boðið í heitt súkkulaði í Hafnarhús-
inu. Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur
jólalög.
Jólatréð er tileinkað íslenskum tog-
arasjómönnum sem sigldu til Ham-
borgar með fisk eftir seinni heim-
styrjöldina. Sjómennirnir gáfu
svöngu og ráðlausu fólki á hafn-
arsvæðinu súpu á meðan verið var að
landa úr togaranum. sisi@mbl.is
Jólaljósin
tendruð
Hamborgartréð í
hálfa öld við höfnina