Morgunblaðið - 30.11.2017, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2017
Umsóknarfrestur um starf for-
stjóra Framkvæmdasýslu ríkisins
rann út 20. nóvember. Alls bárust
27 umsóknir og er úrvinnsla hafin,
að því er fram kemur í frétt á
heimasíðu stofnunarinnar.
Skipuð hefur verið ráðgefandi
hæfninefnd sem mun koma að úr-
vinnslu umsókna og mati á umsækj-
endum. Í hæfninefndinni eru Sig-
ríður Sigþórsdóttir arkitekt, Stefán
B. Veturliðason verkfræðingur og
Aldís Stefánsdóttir, sérfræðingur í
fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Með nefndinni starfar einnig Jóna
Björk Sigurjónsdóttir, ráðgjafi hjá
Capacent. Fjármála- og efnahags-
ráðherra skipar í embættið til fimm
ára í senn.
Fráfarandi forstjóri er Halldóra
Vífilsdóttir. Hún hefur ráðið sig til
Landsbankans og mun vinna að
undirbúningi við nýjar höfuð-
stöðvar bankans á Hörpureit.
sisi@mbl.is
Margir vilja stýra
FramkvæmdasýsluSpring Copenhagen hnotubrjótur
Verð 9.900 kr.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Ljósmyndir
Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir passann, ökuskírteinið,
ferilskrána o.fl.
Skjót og hröð
þjónusta
Engar tímapantanir
Góð passamynd
skiptir máli
unnar. Þá má einnig nálgast upp-
lýsingarnar á heimasíðu Sjálfs-
bjargar.
Eldri laugar oft mjög erfiðar
„Meðal þess sem við litum til í
þessari úttekt var hvort við kæm-
umst inn í húsið, hvort til staðar
væri sérstök skiptiaðstaða og hvort
við kæmumst ofan í laugina, annað-
hvort með rampi eða lyftu,“ segir
Bergur Þorri og heldur áfram: „Al-
menningssundlaugar eru fyrir þá
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Sundlaugar á Íslandi eru, þegar á
heildina er litið, ekki nógu aðgengi-
legar. Oft er það þannig að fólk
hreinlega kemst ekki inn í bygg-
inguna, en ef viðkomandi kemst
hins vegar inn, þá lendir sá hinn
sami oft í því að komast ekki ofan í
laugina,“ segir Bergur Þorri Benja-
mínsson, formaður Sjálfsbjargar,
landssambands hreyfihamlaðra, í
samtali við Morgunblaðið, en sam-
bandið fór í sumar af stað með
verkefni sem hefur það að mark-
miði að taka út aðgengi hreyfihaml-
aðra að almenningssundlaugum
víðsvegar um land.
Að sögn Bergs Þorra áttu ekki
öll aðildarfélög Sjálfsbjargar kost á
því að taka þátt í verkefninu, sem
lauk nýverið, og ekki reyndist held-
ur raunhæft að taka út allar sund-
laugar á starfssvæði félaganna sem
þátt tóku. Var aðgengi skoðað í alls
24 sundlaugum og var viðkomandi
sveitarfélögum og forstöðumönnum
sundlauganna send niðurstaða vinn-
einstaklinga sem eru sjálfbjarga og
mjög margir fatlaðir eru það að
miklu leyti, en menn þurfa aftur á
móti ákveðinn aukabúnað til þess
að geta nýtt sér aðstöðuna.“
Aðspurður segir hann flestallar
eldri sundlaugar, þ.e. þær sem
byggðar eru fyrir árið 2000, geta
reynst fötluðum erfiðar. „Það er
t.a.m. engin lyfta ofan í Grafarvogs-
laug og sú sundlaug fór í byggingu
árið 1996,“ segir Bergur Þorri og
bætir við að þær sundlaugar, þar
sem aðstaða sé best samkvæmt út-
tekt Sjálfsbjargar, séu Laugardals-
laug í Reykjavík, Ásvallalaug í
Hafnarfirði, Sundlaugin á Egils-
stöðum, Sundlaug Eyjafjarðarsveit-
ar og Kópavogslaug.
„Við höfum áður tekið út ein-
staka byggingar með þessum hætti,
en þetta er hins vegar í fyrsta
skipti sem við tökum ákveðna teg-
und af mannvirkjum kerfisbundið
út. Á næsta ári höfum við svo í
hyggju að gera slíkt hið sama við
almenningssöfn – það á eflaust eftir
að verða dálítið skrautlegt,“ segir
Bergur Þorri enn fremur.
Flestar lítt aðgengilegar
Sjálfsbjörg kannaði aðstæður í sundlaugum víða um land
Morgunblaðið/Golli
Sund Skoðaðar voru alls 24 laugar.
Austari varnargarðurinn í Víkur-
fjöru, svokallaður sandfangari, er
að verða kominn í fulla lengd. Hann
er þegar byrjaður að vinna sitt verk
því sandur er farinn að lengja fjör-
una út vestan megin garðsins.
Víkurfjara er fyrir opnu hafi og
hefur brim oft brotið land svo þorp-
ið hefur verið talið í hættu auk þess
sem sandur hefur fokið yfir. Sér-
fræðingar Vegagerðarinnar lögðu
til að byggðir yrðu sandfangarar að
erlendri fyrirmynd til að hjálpa
ströndinni við að ná jafnvægi. Til-
raunagarður var byggður við Vík-
urá á árunum 2011 og 2012 og var
honum ætlað að verja ströndina á
milli Víkurár og Reynisfjalls og þar
með fjöruna framan við þorpið.
Ásgeir Magnússon sveitarstjóri
segir að þótt þekkt sé erlendis að
byggja slíka garða til að verja
strandir hafi það, samkvæmt hans
upplýsingum, ekki fyrr verið gert á
sandströnd á móti opnu hafi. Sand-
fangarinn virkaði strax vel og segir
Ásgeir að frá því hann var tilbúinn
hafi ekkert brotnað úr fjörunni og
jafnvægi komist á.
„Það var alltaf ætlunin að byggja
annan garð, ef sá fyrri sannaði gildi
sitt, til að verja fjöruna við iðnað-
arhverfið. Síðan gerðist það í óveðri
sem gekk yfir um mánaðamótin
nóvember og desember 2015 að við
misstum 48 metra af fjörunni sunn-
an við iðnaðarhverfið. Þá var ákveð-
ið að gera annan garð,“ segir Ás-
geir. Garðurinn sem verktaki er
langt kominn með að leggja út er
230 metra langur, um 50 metrum
styttri en sá eldri. Sá síðarnefndi
hefur látið verulega á sjá enda brýt-
ur brimið á honum. Þótt í enda hans
séu allt að 20 tonna þung björg fær-
ir brimið þau til og frá og skolar í
burtu smærra grjótinu. Verktakinn
mun ljúka sinni vinnu með því að
laga eldri garðinn. Verkið í heild
kostar hátt í 300 milljónir kr.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Vík Nýi sandfangarinn er kominn í fulla lengd og fjaran farin að lengjast
fyrir innan. Eftir er að gera við skemmdir á eldri varnargarðinum.
Nýi sandfangarinn í Vík er
farinn að vinna sitt verk
Lagning eystri varnargarðsins í Víkurfjöru er langt komin
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Stefnt er að því að opin samkeppnin
um Flensborgarhöfn í Hafnarfirði
verði auglýst í byrjun komandi árs
og niðurstöður verði kynntar í maí
2018. Framtíðarskipulag á svæðinu
hefur um nokkurt skeið verið til um-
ræðu í Hafnarfirði og þá meðal ann-
ars tenging við mannlífið í miðbæn-
um, sem er steinsnar frá.
Að sögn Lúðvíks Geirssonar,
hafnarstjóra í Hafnarfirði, lá keppn-
islýsing að mestu fyrir í lok síðasta
árs. Samkeppninni var hins vegar
frestað meðan unnið var að skipulagi
vegna byggingar fyrir Hafrann-
sóknastofnun, sem á að rísa við
Fornubúðir og er inni á skipulags-
svæðinu. Nú er þeirri skipulags-
vinnu lokið og þráðurinn verið tek-
inn upp að nýju vegna hafnarinnar.
Dómnefnd mun á næstunni yfir-
fara eldri gögn og auglýsa og senda
út keppnisgögn, væntanlega í upp-
hafi komandi árs. Áætlað er að úrslit
keppninnar og tillögur um skipulag
liggi fyrir í lok kjörtímabilsins.
Breytt ásýnd hafna
Umrætt svæði Flensborgarhafnar
nær frá gamla Drafnarslippnum við
Strandgötuna fyrir kverkina að
Óseyrarbryggju og Fornubúðum, en
á svæðinu er höfn fyrir fiski-, smá-
báta- og skemmtibáta. Einnig nær
skipulagssvæðið yfir svæði milli
Hvaleyrarbrautar og Óseyrarbraut-
ar að Stapagötu.
Lúðvík bendir á að hafnir í dag séu
annars vegar lokaðar stórskipahafn-
ir með öryggissvæðum þar sem eng-
inn fari um nema eiga erindi. Hins
vegar séu opin hafnarsvæði eins og í
Flensborgarhöfn og við Óseyrar-
bryggju
Markmiðið sé að tengja þetta opna
svæði betur við miðbæinn og gera í
raun að hluta hans. Hafnarsvæði séu
að breyta um svip, þar séu lista-
smiðjur, veitingahús og alls konar
fjölbreytt mannlíf. Nú þegar sé ým-
iskonar miðbæjarstarfsemi farin að
teygja sig inn á svæðið auk þess sem
íbúðahverfi séu ekki langt undan.
Hafnarsvæðið
tengt mannlífi
og miðbænum
Opin samkeppni framundan um
Flensborgarhöfn í Hafnarfirði
Framtíðarskipulag Flensborgarhafnar
Heimild: Hafnarfjarðarbær
Drafnarslippur
Óseyrarbryggja
Fornubúðir
Stra
ndg
ata
C
ux
ha
ve
ng
at
a
Hvaleyrarbraut
Mörk skipulagssvæðis
Tölvumynd/Batteríið Arkitektar ehf.
Byggingar Hús fyrir Hafrannsókna-
stofnun á að rísa við Fornubúðir.