Morgunblaðið - 30.11.2017, Blaðsíða 60
60 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2017
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–18. Allt fyrir eldhúsið
Ný heimasíða og
glæsileg ný netverslun
Nú getur þú verslað á progastro.is hvenær sem er
Kíktu á netverslunina og skoðaðu
glæsilegt vöruúrval
Sigurlaug Margrét Guðmundsdóttir, eigandi verslunarinnar FrúSigurlaug, á 50 ára afmæli í dag. Frú Sigurlaug er sérvöruversl-un með sundföt, náttfatnað, sloppa, undirföt, strandfatnað og
fleira. Hún var opnuð árið 2010 og er til húsa í Mjóddinni.
„Við erum búin að stækka verslunina í tvígang, byrjuðum í 25 fer-
metrum og erum núna í 160 fermetrum. Við leggjum mikla áherslu á
gott úrval af því sem við seljum, t.a.m. eigum við endalaust úrval af
náttfötum og náttkjólum. Þótt við séum í Mjóddinni kemur fólk, bæði
konur og karlar, alls staðar að af höfuðborgarsvæðinu og líka af lands-
byggðinni. Verslunin er í göngugötunni beint fyrir neðan Læknasetrið í
Mjódd og margir koma við hjá okkur á leið til læknis.“ Frú Sigurlaug er
einnig komin með netverslun, en hún var opnuð í byrjun ársins.
Maður Sigurlaugar er Pétur Hjaltested og dætur þeirra eru Laufey
22 ára og Unnur 18 ára. Þau ætla að skella sér út til Austurríkis um ára-
mótin á skíði. „Það er orðinn fastur liður hjá okkur, þar sem ég verð á
skíðum en þau á snjóbrettum. Fyrir utan að ferðast þá hef ég mikinn
áhuga á stjörnuspeki, það vita þeir sem þekkja mig vel.“
Sigurlaug er bæði lærður úrsmiður og viðskiptafræðingur. „Ég byrj-
aði í úrsmíðinni 17 ára og vann við það þar til ég varð þrítug og fór þá í
viðskiptafræðinám. Ég hef starfað í verslun frá því að ég var 16 ára svo
það má segja að það sé í blóðinu og mér finnst gott að vera minn eigin
herra.“
Sigurlaug var ekki búin að ákveða hvað hún ætlaði að gera í dag í til-
efni afmælisins þegar blaðamaður ræddi við hana, en hún ætlar að
halda stóra veislu á laugardaginn.
Fjölskyldan Unnur, Laufey, Sigurlaug (Magga) og Pétur, brosmild,
brún og hamingjusöm í sumarfríinu á Sardiníu í fyrrasumar.
Bogmaður með
tungl í sporðdreka
Sigurlaug Margrét Guðmundsd. er fimmtug
I
nga Jóhanna Halldórsdóttir
fæddist á Krossi í Mjóafirði
30.11. 1927 en ólst upp í Nes-
kaupstað.
Inga var í Barnaskóla
Neskaupstaðar: „Við krakkarnir lék-
um okkur mikið úti, í parís, við að
sippa, fórum í langbolta og fleiri
barnaleiki.
Pabbi var með kindur og hænsni
og ég hafði gaman af því að snúast
með honum í þessum búskap. Auk
þess hjálpaði maður svo til við hey-
skapinn í sveitinni.“
Inga flutti til Vesmannaeyja haust-
ið 1943 og bjó þar í Háagarði hjá
móðurbróðir sínum og föðursystur
sinni, þeim heiðurshjónum, Ingigerði
Jóhannsdóttur og Þorsteini Þ. Víg-
lundssyni skólastjóra. Hún lærði
kjólasaum hjá Kristínu í Merkissteini
í þrjá vetur, vann tvö sumur í fiski en
þriðja sumarið var hún í kaupavinnu í
Þykkvabænum ásamt Jónu Ólafs-
dóttur, vinkonu sinni: „Við Jóna spör-
uðu svo sumarhýruna til þess að fara
á sníðanámskeið í Reykjavík.“
Inga vann á Sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja, starfaði við saumaskap,
vann í Þvottahúsinu í nokkur ár, var
með prjónastofu heima þar sem var
kraftmikil starfsemi og vann síðast
við ræstingar í Gagnfræðaskólanum.
Stóran hluta ævinnar var hún þó
fyrst og fremst húsmóðir á barn-
mörgu heimili.
Fjölskylda
Eiginmaður Ingu var Hjörleifur
Guðnason, f. 5.6. 1925, d. 13.6. 2007,
múrarameistari. Foreldrar hans voru
Halldóra Grímsdóttir húsfreyja og
Guðni Sigmundsson verkamaður.
Fósturforeldrar Hjörleifs voru Guð-
rún Grímsdóttir og Guðjón Jónsson.
Börn Ingu og Hjörleifs eru 1) Lilja
Dóra, f. 7.10. 1947, húsmóðir, eig-
inmaður hennar var Steinar Benja-
mínsson, f. 11.2. 1944, d. 18.8. 1998,
en núverandi eiginmaður er Grétar
Þorleifsson, fyrrv. verkalýðsleiðtogi
og eru börn Lilju og Steinars Hjör-
leifur Hreiðar, f. 1969, fulltrúi í skipa-
afgreiðslu Eimskips, kvæntur Katr-
ínu Brynjarsdóttur deildarstjóra,
Benjamín, f. 1973, húðflúrari og á
hann þrjú börn og tvö stjúpbörn,
Guðlaugur Ingi, f. 1977, lagerstjóri, í
sambúð með Unni Lindu Karlsdóttur
Inga Jóhanna Halldórsdóttir, húsfr. og saumak. í Eyjum – 90 ára
Fjölskyldan Inga Jóhanna og Hjörleifur með barnahópnum sínum. Myndin er tekin í byrjun tíunda áratugarins.
Inga á 85 afkomendur
Fimm ættliðir Afmælisbarnið, Inga,
með Ölbu Lunu í kjöltunni, Inga
Björg, Árný Björg og Guðmunda.
Stærri-Árskógur, Dalvík-
urbyggð Bassi Bói Guð-
mundsson fæddist 30. des-
ember 2016 kl. 21.35. Hann
var 47 cm að lengd og vó
2.426 g. Foreldrar hans eru
Freydís Inga Bóasdóttir og
Guðmundur Geir Jónsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.