Morgunblaðið - 30.11.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2017
GÓÐUR VINNUFÉLAGI
Volkswagen Caddy
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi er Volkswagen Caddy.
Hann er áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum
- hefðbundinni lengd og lengri gerð (Maxi).
Caddy má fá með fjórhjóladrifi sem eykur enn við öryggi og
aksturseiginleika bílsins og eykur til muna notkunarmöguleika
Caddy, hvort heldur er í snjó, hálku eða erfiðu færi.
Við látum framtíðina rætast.
Volkswagen Caddy 2.0 TDI kostar frá
2.990.000 kr.
(2.392.000 kr. án vsk)
EIGUMNOKKRATIL
AFHENDINGAR
STRAX
Veglegur aukahlutapakkifylgir Caddy TDI til áramóta.
- Bakkmyndavél- Webasto miðstöðmeð fjarstýringu- Verðmæti 215.000 kr.
Smart jólaföt, fyrir smart konur
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Halldóra Hjaltadóttir,
húsfreyja og bóndi á
Seljavöllum, lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðausturlands 27.
nóvember. Halldóra
fæddist í Hólum í
Nesjum 3. janúar
1929, dóttir hjónanna
Önnu Þorleifsdóttur
og Hjalta Jónssonar.
Halldóra stundaði nám
við kvennaskólann á
Hverabökkum í
Hveragerði og einnig
húsmæðraskólann á
Hallormsstað.
Halldóra giftist 25. desember
1955 Agli Jónssyni bónda, ráðunaut
og síðar alþingismanni, frá Hoffelli
í Nesjum. Þau stofnuðu nýbýlið
Seljavelli 1. september 1955. Hall-
dóra starfaði ötullega
að uppbyggingu og
framgangi búsins.
Segja má að bústörfin
hafi oftar en ekki hvílt
á hennar herðum
vegna fjölbreyttra
starfa Egils utan bús-
ins. Á heimili þeirra
var afar gestkvæmt
og fjölmargir sem þar
komu og þáðu góð-
gjörðir og oft gist-
ingu.
Halldóra hafði
mikla unun af ljóðum
og bókmenntum og
hafði einstaklega gott vald á ís-
lenskri tungu.
Halldóra lætur eftir sig fjögur
uppkomin börn, Önnu, Valgerði,
Hjalta og Eirík.
Andlát
Halldóra Hjaltadóttir
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Hof Ásatrúarfélagsins í Öskjuhlíð
verður tekið í notkun síðla næsta
árs. Hlé er nú á framkvæmdum við
bygginguna en þær hefjast að nýju
eftir áramótin. Byggingin reyndist
flóknari í smíðum en ráð var fyrir
gert og er það ástæðan fyrir töfum
á því að hún verði tilbúin, en stefnt
hafði verið að því að taka hana í
notkun næsta sumar.Þetta staðfest-
ir Hilmar Örn Hilmarsson, allsherj-
argoði Ásatrúarfélagsins, í samtali
við Morgunblaðið.
Félagið auglýsti nýlega eftir
nöfnum á bygginguna. Hilmar segir
að fjöldi tillagna hafi borist, en
ákvörðun um hvaða heiti verður
notað verður tekin þegar nær dreg-
ur vígslu hússins. Bygging hofsins
er alfarið kostuð af Ásatrúarfélag-
inu sem hefur safnað fyrir byggingu
þess í fjölmörg ár. Hofið verður
staðsett í trjálundi í námunda við
Hangaklett og Hrafnabjörg í Öskju-
hlíð. Það er hannað af Magnúsi
Jenssyni arkitekt. Hofið sjálft verð-
ur hvelfing, að hluta niðurgrafin,
um 350 fermetrar og mun rúma um
250 manns. Eldur mun loga í hvelf-
ingunni og hljómburður er miðaður
við tónleikahald.
Þrjú önnur trúfélög í Reykjavík,
Félag múslima, Rússneska réttrún-
aðarkirkjan og Búddistafélag Ís-
lands, hafa uppi áform um byggingu
trúarlegra samkomuhúsa. Hefur
þeim öllum verið úthlutað bygging-
arlóð. Félag múslima ætlar að
byggja mosku í Sogamýri og Rétt-
trúnaðarkirkjan bænahús við Mýr-
argötu. Báðar þessar framkvæmdir
hafa orðið umdeildar innan borg-
arstjórnar. Ekkert bólar enn á
framkvæmdum. Sama er að segja
um byggingaráform Búddistafélags-
ins sem fékk lóð við Rauðavatn fyrir
nokkrum árum. Þar hefur ekkert
gerst.
Hrólfur Jónsson, skrifstofustjóri
eigna- og atvinnuþróunar Reykja-
víkurborgar, var spurður að því
hvort trúfélögin þrjú gætu hugs-
anlega misst lóðirnar vegna þessa,
en hann taldi að til þess kæmi ekki
nema með sérstakri ákvörðun borg-
arstjórnar og yrði þá félögunum
veittur frestur til að bregðast við og
hefja framkvæmdir.
Hofið tilbúið síðla á næsta ári
Hof Ásatrúarfélagsins verður 350 fermetrar og rúmar 250 manna samkomur
Engar framkvæmdir enn á lóðum múslima, búddista og Rétttrúnaðarkirkjunnar
Morgunblaðið/RAX
Trú Framkvæmdir við hof Ásatrúarmanna í Öskjuhlíð eru vel á veg komnar.
Trúfélögin fjögur sem stefna að
því að byggja yfir starfsemi sína
hafa nær 6 þúsund félagsmenn.
Flestir eru í Ásatrúarfélaginu,
3583, 1048 eru í Búddistafélag-
inu, 542 í Félagi múslima á Ís-
landi og í Rússnesku réttrún-
aðarkirkjunni eru 622. Annar
söfnuður múslima, Menning-
arsetrið (406 félagar) er með
bænahús við Skógarhlíð, en á
ekki byggingarlóð.
Nokkur þús-
und félagar
Í FRAMKVÆMDAHUG
Fangaverðir á Litla-Hrauni fundu
rúmlega 200 skammta af ætluðu
LSD í klefa afplánunarfanga í lok
síðustu viku. Hér er um töluvert
magn efnisins að ræða og er málið til
rannsóknar hjá lögreglunni á Suður-
landi. Í dagbók lögreglunnar segir
að varsla þessa mikla magns af efn-
inu geti varðað allt að árs fangelsi.
Halldór Valur Pálsson, forstöðu-
maður á Litla-Hrauni, sagði í sam-
tali við mbl.is á mánudag að miðað
við magn efnanna væri líklegt að það
hefði verið ætlað til dreifingar innan
fangelsisins.
„Viðbrögð okkar eru tvenns konar
við þessu. Við reynum að leggja hald
á þetta til að koma í veg fyrir að það
fari á milli fanga. Um leið reynum
við að bjóða mönnum hjálp við að
komast úr neyslunni með aðstoð
meðferðarfulltrúa og annarra sér-
fræðinga,“ segir hann.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Eiturlyf Töluvert magn af LSD
fannst á Litla-Hrauni.
Fíkniefni í
fangelsinu
LSD á Litla-Hrauni
Nóvember sem nú er að kveðja hef-
ur verið kaldur, sá kaldasti síðan
1996 en þá var mun kaldara en nú.
Þetta segir Trausti Jónsson
veðurfræðingur. Hins vegar má
segja á mánuðurinn kveðji með
nokkrum hlýindum.
Meðalhiti var rétt ofan frostmarks
í Reykjavík í mánuðinum og um -1,5
stig á Akureyri. Úrkoma í Reykjavík
var í rúmu meðallagi, en talsvert of-
an þess á Akureyri eða um 40 pró-
sent. Snjór var með meira móti
norðanlands og austan og einnig á
stöku stað á Vesturlandi, segir
Trausti.
Nóvember sker sig nokkuð úr öðr-
um mánuðum ársins, sem flestir
hafa verið hlýir. sisi@mbl.is
Kaldur nóv-
ember kveður