Morgunblaðið - 30.11.2017, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2017
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Kanadíski prófessorinn og sálfræð-
ingurinn Jordan Peterson er vænt-
anlegur hingað til lands næsta sumar
og mun halda fyrirlestur í ráð-
stefnusal Hörpu, Silfurbergi, 4. júní.
„Við þurftum að stækka salinn, því
minni salurinn
seldist upp mjög
hratt. Við vissum
ekki að hann væri
svona vinsæll
hérna, þótt okkur
grunaði að það
gæti verið,“ segir
Gunnlaugur Jóns-
son, einn skipu-
leggjenda við-
burðarins.
Peterson er einn
vinsælasti fyrirlesari heims í dag en
hann hefur birt fleiri en 100 vís-
indagreindar, sem þó nokkuð er vísað
til, en frægastur er hann þó að sögn
Gunnlaugs fyrir fyrirlestra sína.
„Honum tekst að sameina það að
gera þá áhugaverða, jafnvel heillandi,
á sama tíma og þeir eru afar gagn-
legir. Það eru til poppsálfræðingar en
hann er alvöruvísindamaður og hugs-
uður sem kemur efninu frá sér á
heillandi hátt.“
Merkingin í sögunni
Einna frægastir eru fyrirlestrar
Petersons um merkingu sagna, goð-
sagna og erkitýpa, þar sem hann
fjallar um sögur, allt frá Biblíunni,
gömlum trúarbrögðum og að Disney-
myndum.
„Það má segja að fyrirlestrarnir séu
stundum skemmtilegri en sögurnar
sjálfar. Hetjusagnir hafa áhrif á mann,
enda má segja að við séum hvert og
eitt hetja í okkar litla heimi að fást í
grundvallaratriðum við það sama, hið
þekkta og hið óþekkta, samfélag og
náttúru og berjast við dreka, sem birt-
ast í ýmsum myndum. Hvernig Pet-
erson tvinnar svo inn í þetta fræðin og
þannig ráð um það hvernig við getum
tekist á við lífið er mjög grípandi, svo
ekki sé talað um gagnlegt,“ segir
Gunnlaugur og bendir jafnframt á að
Peterson haldi fyrirlestra um per-
sónuleikagerðir og umbreytingu per-
sónuleika.
„Það er mjög áhugavert. Það er líka
gaman að leggja niður fyrir sér eigin
persónuleika og taka tiltölulega létt
próf sem hægt er að fá fyrir nokkra
dollara á understandmyself.com. Það,
í samhengi við meiri þekkingu á per-
sónuleikagerðum, er mjög skemmti-
legt og gagnlegt.“
Heimsfrægðin
Jordan Peterson komst á kortið, ef
svo má segja, þegar hann mótmælti
frumvarpi í Kanada sem kallað er
C-16 og gengur út á að skylda fólk
m.a. til að nota nýtilbúin persónu-
fornöfn um alls kyns ný kyn.
„Hann mótmælti þannig tjáning-
arnauðung, að fólk væri neytt til tján-
ingar á ákveðinn hátt. Þetta telur
hann runnið undan rifjum ákveðins
pólitísks rétttrúnaðar sem tröllríður
öllu vestanhafs um þessar mundir og
tengist póstmódernisma og nýmarx-
isma. Hann telur mjög hættulegt að
taka nýmarxískar kenningar og refsa
fólki á grundvelli þeirra. Ég verð að
segja að ég er sammála honum um
það.“
Peterson hefur hlotið þónokkra
gagnrýni fyrir þessa afstöðu sína og
saka hann margir um að ýta undir
öfgakennd sjónarmið og öfgastefnur.
„Þær ásakanir á hann eru mjög sér-
kennilegar. Það eru til mörg hundruð
klukkutímar af efni með honum á You-
tube þar sem ekki finnst nein stoð fyr-
ir slíku. Þó geta þeir sem reyna að
segja svona um hann leitað og klippt
það sem þeir vilja úr því í árás á hann.
Hann er mjög hófsamur og þvert á
móti því að vera öfgamaður er til
mjög mikið efni með honum þar sem
hann greinir öfgastefnur, komm-
únisma og nasisma. Hvað er það sem
liggur að baki þeirra og hvers vegna
leiðist venjulegt fólk út í hið illa. Ég
held reyndar að hann hitti gagnrýn-
endur sína marga með þessu,“ segir
Gunnlaugur og bendir á að Peterson
togi reyndar marga unga menn til
hófsemdar. „Hann bendir fólki á, eins
og Solzhenitsyn, á að línan á milli
góðs og ills liggur í gegnum hjarta
okkar sjálfra, ekki á milli okkar og
hinna vondu, sem séu einhverjir aðrir.
Það er einmitt þegar við drögum lín-
una á milli okkar og annarra sem við
helst leiðumst út í fólskuverkin. Það
var undanfari margra blóðsúthellinga,
frá Rússlandi til Þýskalands og Rú-
anda, Viðbrögð manna við öfgum til
vinstri eru stundum öfgar til hægri.
Hann stöðvar það hjá stórum hópi
ungra manna.“
Lífsreglurnar tólf
Spurður um fyrirlesturinn í sumar
segir Gunnlaugur að Peterson muni
fjalla um tólf lífsreglur.
„Það kemur út bók með sama titili
eftir hann í janúar eða febrúar: 12
Rules for Life – An Antidote to Chaos.
Hann skrifaði mjög vinsælt svar á
samfélagsmiðilinn Quora fyrir fimm
árum, þar sem spurt var um lífsreglur.
Þar svaraði hann held ég með 42 lífs-
reglum. En hann nær góðri yfirferð
yfir margt með bara tólf. Þetta verður
bæði skemmtilegt og gagnlegt. Ég
mæli með miðum á þetta sem jólagjöf.
Það er stundum talað um að maður
eigi frekar að gefa fólki lífsreynslu en
hluti. Þetta er lífsreynsla sem skiptir
máli,“ segir Gunnlaugur en það seldist
upp á viðburð hans nánast um leið og
hann fór í sölu fyrr í þessum mánuði
og þurfti að bæta við miðum.
„Hann er 4. júní í Silfurbergi í
Hörpu. Við þurftum að stækka salinn,
því minni salurinn seldist upp mjög
hratt. Við vissum ekki að hann væri
svona vinsæll hérna, þótt okkur grun-
aði að það gæti verið.“
Berst gegn öfgum og ofstæki
Prófessorinn og sálfræðingurinn Jordan Peterson verður með fyrirlestur í Hörpu næsta sumar Einn
vinsælasti fyrirlesari heims í dag og Youtube-stjarna auk þess að vera ötull talsmaður tjáningarfrelsis
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Fræðimaður Jordan Peterson hefur birt yfir 100 vísindagreinar.
Gunnlaugur
Jónsson