Morgunblaðið - 30.11.2017, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2017
Meira til skiptanna
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fasteignafélagið Blómaþing hefur
sett í sölu nýjar íbúðir á Frakka-
stígsreit. Um er að ræða eitt um-
fangsmesta verkefnið við þéttingu
byggðar í miðborg Reykjavíkur.
Reiturinn afmarkast af Lauga-
vegi, Frakkastíg og Hverfisgötu.
Annars vegar eru komnar í sölu 8
íbúðir í nýju bakhúsi/garðhúsi,
Frakkastíg 8e, og hins vegar 15
íbúðir í tveimur stigagöngum í nýju
fjölbýlishúsi á Hverfisgötu 58a og
58b. Þær verða afhentar í febrúar.
Íbúðirnar á Frakkastíg 8e eru 3
herbergja og 78,7-120 fermetrar.
Þær kosta að meðaltali 61 milljón,
eru 95,9 fermetrar að meðaltali og
fermetrinn að meðaltali á 636 þús. Á
Hverfisgötu 58a og 58b eru íbúð-
irnar 1-3 herb. og 71,9-97,9 ferm.
Þær kosta að meðaltali 60,7 millj-
ónir, eru að meðaltali 89,9 fermetrar
og ferm. að meðaltali á 675 þús.
Íbúðir án stæða eru ódýrari
Alls eru þetta 23 íbúðir. Með þeim
fylgja 23 bílastæði í kjallara. Íbúðir
á reitnum án bílastæða eru ódýrari.
Tvær sýningaríbúðir hafa verið
innréttaðar á Frakkastíg 8e.
Næsta vor koma í sölu 43 íbúðir til
viðbótar í nýju fjölbýlishúsi sem er í
smíðum við Frakkastíg og í nýju
hornhúsi á Laugavegi 45a. Þær
íbúðir verða afhentar í apríl og maí.
Verða því alls 66 íbúðir á reitnum.
Á jarðhæð húsanna á Hverfisgötu
og Frakkastíg verða verslanir og
veitingastaðir en íbúðir á 2. til 6.
hæð. Sérstakt loftræstikerfi, svo-
nefnt óson-kerfi, mun hreinsa loft og
gufu frá veitingarýmum
Húsnúmerin Laugavegur 41b til
45 tilheyra líka reitnum.
Lokið var við nýbyggingu á
Laugavegi 41b í fyrra. Þar var opn-
að íbúðahótel með 23 herbergjum í
fyrrasumar. Á horni Frakkastígs og
Laugavegs er að rísa nýtt hornhús,
Laugavegur 45a, sem er hluti af
reitnum. Samhliða þessu hafa gömul
hús á Laugavegi 43 og 45 verið
endurbyggð. Stærstu íbúðirnar á
reitnum verða tvær þakíbúðir á inn-
dreginni 6. hæð, 130 og 165 fer-
metra. Frá þeim verður útsýni út á
sundin og yfir miðborgina. Þeim
fylgja stæði í bílakjallara.
Hulda Sif Þorsteinsdóttir og
Kristján Magnason eru fram-
kvæmdastjórar hjá Blómaþingi.
Hulda Sif segir íbúðirnar afhend-
ast fullbúnar með eldunar- og hrein-
lætistækjum og fataskápum. Bað-
herbergi eru flísalögð en meginrými
afhendast án gólfefna.
Hún segir verð íbúðanna munu
verða frá 44 milljónum. Má í þessu
efni benda á að fermetraverð er
jafnan hlutfallslega hæst í litlum
íbúðum, meðal annars vegna kostn-
aðar við votrými.
Allar íbúðirnar hafa svalir
Á miðjum reitnum verður garður
fyrir íbúa. Lyftur eru í öllum stiga-
göngum. Hjólageymslur eru í bíla-
stæðahúsi og geymslur fylgja öllum
íbúðum. Þá eru allar íbúðirnar með
svölum og snúa þær ýmist inn að eða
út frá reitnum. Sjálfvirk aðgangs-
stýring er að stigagöngum og hjóla-
geymslum. Lagt er fyrir tenglum í
hvert bílastæði fyrir hleðslu rafbíla.
Kristján segir íbúðirnar henta
fjölbreyttum hópi. Þær minnstu
henti til dæmis ungu fólki.
„Það er lúxus að hafa lokaðan
garð milli húsanna. Svæðið verður
hellulagt með upphækkuðum beðum
og setbekkjum, pallar verða fyrir
framan íbúðir og lögð er áhersla á
fallega lýsingu. Svæðið verður meira
í ætt við skrautgarð en leiksvæði.“
Kristján bendir svo á að hönn-
unar- og framkvæmdatími verksins
sé mun lengri en að jafnaði þegar
byggt er í úthverfi. Hönnunarferlið
hófst 2013 og fyrsta skóflustungan
var tekin 2014. Við uppbygginguna
voru nokkur hús rifin.
Nýjar íbúðir á Frakkastígsreit
Blómaþing setur 23 íbúðir í sölu Þær verða afhentar í febrúar Yfir 40 íbúðir koma síðar í sölu
Norðurhlið Framkvæmdum er að ljúka við Hverfisgötu 58a og 58b.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á fimmtu hæðinni Kristján Magnason og Hulda Sif Þorsteinsdóttir eru framkvæmdastjórar hjá Blómaþingi.
Sýningaríbúð Allar íbúðirnar á Frakkastíg 8e eru þriggja herbergja.
Nýr bakgarður Aðgengi verður að portinu/bakgarðinum frá Frakkastíg.
Skjólpallur í miðborginni Með þessari íbúð á Frakkastíg 8e fylgir garðpallur sem snýr í vestur.