Morgunblaðið - 30.11.2017, Page 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2017
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Reykjavíkurborg hefur á undan-
förnum árum unnið markvisst að
þéttingu byggðar í grónum hverfum
borgarinnar. Nú er röðin komin að
Breiðholtshverfi.
Borgarráð hefur samþykkt tillögu
Dags B. Eggertssonar borgarstjóra
þess efnis að skrifstofu eigna og at-
vinnuþróunar Reykjavíkurborgar
verði falið að annast viðræður og
samningsgerð við eigendur fast-
eigna að Arnarbakka 2-6 og að
Völvufelli 11-21 í Breiðholti. Mark-
miðið er að flýta fyrir uppbyggingu
og endurnýjun á þessum svæðum.
Skrifstofa eigna og atvinnuþróun-
ar mun annaðhvort semja um hlut-
deild í skiptingu virðisaukningar,
sem verður til vegna mögulegrar
aukinnar uppbyggingar, eða taka
þátt í kaupum á eignum. Náist
samningar er stefnt að því að hefja
skipulagsbreytingar á lóðunum í
kjölfarið.
Í greinargerð með tillögunni segir
að í hverfaskipulagi sem er í vinnslu
fyrir Breiðholt komi fram hug-
myndir að auknum byggingarheim-
ildum á þessum lóðum og mögulegri
breyttri notkun. Á þessum svæðum
sé eignarhald á hendi margra.
Frumkvæði Reykjavíkurborgar að
samningaviðræðum og breytingum
á deiliskipulagi gæti leitt til hraðari
uppbyggingar á þessum svæðum,
betri nýtingu og bættri ásýnd.
Að sögn Hrólfs Jónssonar, skrif-
stofustjóra skrifstofu eigna og at-
vinnuþróunar, liggur ekki fyrir á
þessu stigi hversu mikil uppbygging
getur orðið á hvorum stað fyrir sig.
„Hugmynd okkar að verklagi í
þessu er að boða eigendur fast-
eignanna á fund og reyna að ná sam-
komulagi um skiptingu á auknu
byggingarmagni á grundvelli hlut-
falls eignar hvers og eins. Og jafn-
framt hvernig staðið verður að upp-
byggingunni. Best er að gera það
áður en farið er að skipuleggja. Þeg-
ar og ef slíkt samkomulag næst þá
er unnið deiliskipulag,“ segir Hrólf-
ur.
Hann segir að á báðum reitunum
sjái menn uppbyggingarmöguleika
fyrir íbúðir. „Við teljum að slík upp-
bygging mundi hjálpa rekstrinum og
þeim eignum sem fyrir eru, en rekst-
ur í þessum húsum hefur ekki geng-
ið að öllu leyti,“ segir Hrólfur.
Á fyrrnefndum reitum í Breiðholti
hafa verið verslunar- og þjónustu-
fyrirtæki og hefur reksturinn gengið
upp og ofan í gegnum tíðina. Þá hef-
ur verið kvartað yfir því að húseignir
hafi ekki fengið nægilegt viðhald.
Við Arnarbakka eru nokkur fyrir-
tæki í rekstri nú. Má þar nefna mat-
vöruverslun, bakarí, snyrtistofu og
líkamsræktarstöð. Nokkur rými
standa ónotuð. Við verslunarkjarn-
ann er stórt opið svæði sem býður
upp á möguleika á uppbyggingu.
Í Völvufelli hefur Nýlistsafnið
verið til húsa í nokkur ár en það
flutti starfsemi sína í Marshall-húsið
á Granda á þessu ári. Nú er engin
starfsemi í Völvufelli 11-21 og aug-
ljóslega kominn tími á viðhald.
Við Drafnarfell, norðanmegin við
Völvufell, eru lágreistar byggingar
með atvinnustarfsemi. Má þar nefna
Mini market, sem verslar með pólsk-
ar matvörur, Gamla kaffihúsið, Wil-
sons pizzur og dansskólann Komið
og dansið.
Mjóddin hafði mikil áhrif
Árið 2009 gerði starfshópur á veg-
um Reykjavíkurborgar úttekt á
auðu verslunarhúsnæði í íbúðar-
hverfum borgarinnar. Að sögn Sól-
eyjar Tómasdóttur, formanns
starfshópsins, var ætlunin að nýta
úttektina sem víti til varnaðar þegar
kemur að því að skipuleggja hverfi.
„Sem dæmi er alveg greinilegt að
Mjóddin dró allt lífið út úr íbúða-
hverfunum í Breiðholti og niður í
einskonar jaðarsvæði. Það er því
mikið af tómu verslunarhúsnæði inni
í Breiðholtinu. Það er mjög mikil-
vægt að við reynum að tryggja þjón-
ustu inni í hverfunum þegar við
skipuleggjum borgina,“ sagði Sóley.
Ætla að þétta byggð í Breiðholti
Reykjavíkurborg hyggst hefja viðræður og samningsgerð við eigendur fasteigna að Arnarbakka
2-6 og að Völvufelli 11-21 Á báðum reitunum sjái menn uppbyggingarmöguleika fyrir íbúðir
Morgunblaðið/Eggert
Arnarbakki Á þessum reit í Neðra-Breiðholti eru starfandi nokkur fyrirtæki en nokkur rými í kjarnanum standa
ónotuð. Í nágrenninu er talsvert stórt óbyggt landsvæði og því er reiturinn talinn kjörinn til þéttingar byggðar.
Drafnarfell Í þessum verslunarkjarna í Efra-Breiðholti er pólsk verslun og veitingahús. Sunnan megin við Drafn-
arfellið er verslunarhús við Völvufell, sem nú stendur autt. Þar eru taldir möguleikar á talsverðri uppbyggingu.
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640
X
LED kerti
Verð frá 5.990,-
Gjöf sem
gleður
SOMPE
Árlegur jólamarkaður handverk-
stæðis Ásgarðs verður á laugardag-
inn 2. desember á milli klukkan 12 og
17 að Álafossvegi 14-22 í Mosfellsbæ.
Þar verður til sölu ýmislegt hand-
verk; skartgripir, ýmsir listmunir og
handunnin leikföng af ýmsum gerð-
um.
Að sögn Óskars Albertssonar, eins
forsvarsmanna jólamarkaðarins,
verður þetta í 20. skiptið sem mark-
aðurinn verður haldinn. „Við erum
alltaf með hann fyrsta laugardaginn
í desember,“ segir Óskar.
Á vinnustofu Ásgarðs, sem er
verndaður vinnustaður þroskahaml-
aðra, starfa um 40 manns og þarna
verður til sölu það sem þar er hannað
og smíðað. Greta Salóme leikur á
fiðlu og boðið verður upp á kaffihlað-
borð á vægu verði þar sem á boð-
stólum verður bakkelsi sem bakarar
í hópi velunnara Ásgarðs leggja til.
„Og að sjálfsögðu ekta heitt súkku-
laði,“ segir Óskar. Hann segir að
markaðurinn sé jafnan vel sóttur og
á hann ekki von á öðru en að svo
verði einnig nú. „Sumum finnst jólin
byrja með því að koma á jólamark-
aðinn okkar og allir eru velkomnir.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ásgarður Hinn árlegi jólamarkaður verður þar á laugardaginn. Óskar Al-
bertsson segist eiga von á að margir muni leggja þangað leið sína.
Jólin byrja á jóla-
markaði Ásgarðs
Handverk, heitt súkkulaði og leikföng