Morgunblaðið - 30.11.2017, Qupperneq 40
40 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2017
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
Bandaríska sjón-
varpskonan Kathy
Griffin mætti fyrr á
árinu í beinni útsend-
ingu á netinu með af-
höggvið og alblóðugt
höfuð Donalds Trumps
Bandaríkjaforseta.
Höfuð forsetans var að
vísu ekki höfuð hans
sjálfs heldur leikgerð
eftirlíking af höfði for-
setans. Leikmyndin var
engu að síður mjög raunveruleg og
virkilega óhugguleg. Þannig veifaði
Kathy Griffin með annarri hendi af-
höggnu höfði forsetans sem hún hélt
uppi á hárinu. Blóðið lak úr hálsinum
og meira að segja úr augum, nefi og
eyrum forsetans. Framsetningin var
viðurstyggileg og minnti sláandi mik-
ið á áróðursmyndbönd ISIS og ann-
arra öfga-íslamista sem gjarnan veifa
afhöggnum höfðum fórnarlamba
sinna og annarra sem ekki játa Allah
og alheimsyfirráðum íslamista.
Greinilegt var hvaðan hún sótti
fyrirmyndir sínar á óhugnaðinum og
samlíkingin var táknræn því Banda-
ríkin og forseti þeirra eru þekkt fyrir
að vera harður andstæðingur hins
íslamska ríkis.
En hafi fólk hryllt sig við að horfa
á höfuð forsetans svona illa útleikið
þá fór samt enn meira um mig og
aðra að sjá og horfa framan í andlit
gerandans sjálfs, því andlit hennar í
þessum viðurstyggilegu aðförum var
hreinlega afskræmt og afmyndað af
heift og hatri og þar stóð eiginlega
skrifað með blóði, hatur og dauði!
En hver er annars þessi Kathy
Griffin? Er hún fræg og þekkt og við-
urkennd Hollywood-stjarna? Nei,
eiginlega er hún það alls ekki, hún
hefur hingað til verið svona annars
flokks aukaleikari, auk þess að hafa
komið fram og séð um nokkra lítt
þekkta sjónvarps- og gamanþætti
vestra.
Samkeppnin vestra er hörð og ald-
urinn var að dæma hana alveg út af
sviðinu og því horfði hún fram á það
að fremur snauður ferill hennar væri
brátt á enda. Markhópur hennar í
þessari dauðans örvæntingu var því
helst fræga og „góða fólkið“ en að
játa pólitískan rétttrúnað auðveldar
oft aðgang að fjölmiðlum og mögu-
leikum til að fá að vera á sviðinu
áfram. KG var því þekktur Trump-
hatari en hafði auk þess reynt að
vekja athygli á sér með ofsafengnum
árásum á Jesú Krist og fylgismenn
kristinnar trúar auk þess að stimpla
sig inn sem öfga-femínista.
En hver voru viðbrögðin í Banda-
ríkjunum við þessum fordæmalausa
afhausunargjörningi KG? Almennt
voru viðbrögðin hneykslan og for-
dæming. Átti það við um almenning,
jafnt fylgismenn og andstæðinga for-
setans. Fjölmiðlarnir fordæmdu allir
og KG missti alla samninga um við-
burði og uppákomur, meira að segja
sjónvarpsstöðin CNN, eitt helsta vígi
Trump-andstæðinga, sagði samningi
sínum upp við KG og fordæmdi
verknað hennar harðlega.
Fyrstu viðbrögð KG sýndu að hún
virtist niðurbrotin og full iðrunar, tók
myndskeiðið út af síðum sínum og
sagðist hafa gengið of langt og baðst
afsökunar.
En það dugði henni lítið, nánast
enginn vestan hafs vildi neitt meira
af KG sjá eða vita og þá breytti hún
fljótlega um taktík og
byrjaði að grenja og
sagðist vera ægilegt
fórnarlamb myrkra afla
sem væru búin að
leggja sig í einelti og
setja sig á svartan lista.
Nú hvarf öll iðrunin og
hún sagði stundum að
þetta hefði bara verið
grín og svo fór hún aft-
ur að hreykja sér af af-
hausunarafrekum sín-
um og hataðist nú út í
Trump sem aldrei fyrr
og reyndar út í allt og alla. Hún sjálf
var nú orðin eitt stórt fórnarlamb
illsku og vonsku heimsins.
En nú kom stóra tækifærið fyrir
KG því fórnarlambsvæðingin virkar
alltaf á suma og því hófst hún handa
við að hefja beinan útflutning á
Trump-hatri.
Hún blés því til svokallaðs heims-
túrs undir sjálfu afhausunarþemanu
„Laugh your head off“ eða hlæðu
hausinn af þér og í auglýsingum um
viðburðinn er bein samsvörun í gern-
inginn nema nú heldur hún á jarð-
arkringlunni í annarri hendi á sama
hátt og hún hélt í höfuð forsetans í
hatursgerningnum.
Heimstúrinn er svo í anda fórnar-
lambsvæðingarinnar því hún telur
sér trú um að hún sé fjölmenningin
holdi klædd og hinn frelsandi engill
allra hinna þjökuðu og hröktu minni-
hlutahópa.
Rétttrúnaðarlandið Ísland varð
auðvitað eitt fyrsta landið í heiminum
til að bjóða þessa amerísku haturs-
frelsishetju velkomna með afhaus-
unarprógrammið.
Ekkert minna en menningarhöllin
Harpan dugði víst til að sýna Kathy
fulla virðingu og þar var hún í gær-
kvöldi með þennan viðburð sinn
„Laugh your head off“ í sjálfum Eld-
borgarsalnum.
Hvenær varð Harpan okkar allra
opin fyrir vitstola hatursorðræðu?
Þetta var einhver svæsnasta upp-
hafningar- og hræsnisamkoma sem
haldin hefur verið í landinu og „góða
fólkið“ var tilbúið að saurga þjóð-
menningu okkar og Hörpuna sjálfa
fyrir þessa hræsnisamkomu haturs
og mannfyrirlitningar og það er
sorglegt umhugsunarefni.
Haturssamkoma Kathy Griffins í
Hörpu er réttlæting á raunveruleg-
um hatursglæpum og bein móðgun
við vinaþjóð okkar Bandaríkjamenn
og forseta þeirra, Donald Trump,
hvað svo sem fólki annars finnst um
persónu hans.
En ég efa ekki að á þessari sam-
komu í Hörpunni í gærkvöldi var
samankomin öll hin sjálfsupphafna
rétttrúnaðarelíta á Íslandi og hefur
sjálfsagt hlegið af sér hausinn af yf-
irlætisfullri hræsni!
Hvað ætli margir þingmenn og
borgarfulltrúar hafi mætt, var
kannski hæstvirtur forseti Íslands
þar hauslaus á fremsta bekk?
Eftir Gunnlaug
Ingvarsson
» Þetta var einhver
svæsnasta upphafn-
ingar- og hræsni-
samkoma sem haldin
hefur verið í landinu
fyrr og síðar.
Gunnlaugur
Ingvarsson
Höfundur er formaður
Frelsisflokksins, nýs stjórnmálaafls.
Haturssamkoma
Kathy Griffin
í Hörpu
Viðtal við Snorra
Ingimarsson í Mbl.
18.10 sl. og fleiri skrif
hans um svarta nátt-
úruvernd og Vonar-
skarð hafa vakið at-
hygli. Snorri situr sem
áheyrnarfulltrúi í
stjórn Vatnajökuls-
þjóðgarðs fyrir Sam-
tök útivistarfélaga,
SAMÚT. Þar hefur
hann beitt sér fyrir því að ökuslóð
um Vonarskarðsöskjuna verði opn-
uð aftur fyrir vélvæddri umferð, en
undirritaður, þá þjóðgarðsvörður á
vestursvæði þjóðgarðsins, lokaði
slóðinni árið 2011 í samræmi við
ákvörðun stjórnar þjóðgarðsins þá.
Áður en lengra er haldið má
benda á að hugtakið „svört nátt-
úruvernd“ snýst ekki um ferðamáta
fólks heldur um viðhorf þess til
verndar óbyggðanna. Hugtakið er
áratuga gamalt og var upphaflega
notað í niðrandi merkingu um þá
sem börðust gegn lagningu há-
spennulína yfir víðernin norðan
Vatnajökuls og suður yfir Sprengi-
sand.
Þá er líka rétt að taka fram að
SAMÚT er ekki fulltrúi allra úti-
vistarfélaga landsins. Ferðafélag Ís-
lands, eitt stærsta og elsta útivist-
arfélagið, á t.d. ekki sæti í SAMÚT.
Ferðafélagið deilir ekki skoðun
SAMÚT um að leyfa vélvædda um-
ferð um Vonarskarð að því ég best
veit. Fjölmargir einstaklingar sem
ég þekki eru líka ósammála SAM-
ÚT að þessu leyti. Fólk skiptist ein-
faldlega í tvö horn með og á móti og
allir hafa eitthvað til síns máls.
Rök með lokun
Sjálfur vil ég ekki leyfa vélvædda
umferð um Vonarskarð af eftirfar-
andi ástæðum:
Mjög algengt er að þjóðgörð-
um sé skipt upp í svæði með mis-
strangri friðun allt frá þjón-
ustusvæðum með öllum helstu
innviðum og þægindum yfir í hrein
víðerni og náttúruvé þar sem um-
svif og áhrif manna
eru lítil sem engin.
Fjölbreytni af þessu
tagi eykur gildi þjóð-
garða.
Vonarskarð er af-
skekkt – í miðju lands-
ins. Að því liggja erf-
iðir fjallvegir og um
það hafa fáir farið
hvort sem er gangandi,
ríðandi eða akandi.
Skarðið er því enn svo
til ósnortið af þeirri
nýtingu sem svo víða
hefur sett mark sitt á landið; und-
anskilin eru nefnd ökuleið sem er
nánast horfin og varnargarðar sem
Landsvirkjun ýtti upp á sínum tíma
og þyrfti að fjarlægja.
Í Vonarskarði skiptast á svart-
ir, þurrir sandar, sandbleytur, fjöl-
breytt háhitasvæði og mýrlendi í yf-
ir 900 m hæð yfir sjávarmáli;
vaxtartími er stuttur og allar
skemmdir á gróðri og hveraum-
hverfi alvarlegar og langvarandi.
Náttúrufræðingar telja vernd-
argildi Vonarskarðs vera mjög hátt
og leggja til að verndarstigi verði
breytt til að endurspegla það mat.
Meirihluti svæðisráðs vest-
ursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs,
sem gætir hagsmuna sveitarfélaga
og félagasamtaka vestan jökuls,
leggur til að Vonarskarð verði
áfram lokað fyrir vélvæddri umferð
og að vernd þess verði tryggð enn
frekar.
Akstursleið um öskjubotninn
bætir vissulega aðgengi að helstu
djásnum Vonarskarðs en um leið
rýrir hún víðernisgildi svæðisins og
eykur hættu á fjöldaferðamennsku.
Það er óþarfa áhætta þegar þess er
gætt að aðeins 4-5 tíma auðveld
gönguferð er fram og til baka frá
bílastæði við Svarthöfða að hvera-
svæðinu í hjarta öskjunnar; til sam-
anburðar leggja fjölmargir á sig 14-
16 tíma erfiða gönguferð á Hvanna-
dalshnjúk.
Þörfin fyrir landvörslu ykist
með fleiri ferðamönnum en vegna
þess hve leiðir frá Nýjadal að Von-
arskarði eru seinfarnar er land-
varsla í Vonarskarði erfið og dýr.
Þótt botn öskjunnar í Vonar-
skarði sé víðast sléttur sandur lá
akstursleiðin yfir vatnsmikla jökulá,
Köldukvísl, að sunnanverðu, sand-
bleytur í Rauðá og snarbratt klif,
Gjóstuklif, að norðanverðu. Ökuleið-
in um Vonarskarð var því varasöm
og alls ekki á færi allra. Jafnvel þótt
ný leið yrði valin austar í skarðinu,
þyrftu ökumenn að fara yfir Köldu-
kvísl og ála Skjálfandafljóts.
Vatnajökulsþjóðgarður spann-
ar yfir 14.000 ferkílómetra lands.
Um hann liggja yfir 900 km af veg-
slóðum sem má aka og akstur á
frosinni, snæviþakinni jörð utan
vega er leyfður á líklega um 90%
garðsins, þ.m.t. í Vonarskarði.
Meðan stöðugt gengur á víð-
erni jarðar er erfitt að réttlæta
lagningu nýs vegslóða um algerlega
ósnortið land austan til í Vonar-
skarðsöskjunni.
Lokaorð
Fullgild náttúruverndarrök, ör-
yggisrök og sanngirnisrök, íslensk
og alþjóðleg, eru fyrir því að halda
Vonarskarði áfram lokuðu fyrir vél-
væddri umferð. Þeir starfshópar og
ráð sem skoðað hafa þessi mál hafa
jafnan klofnað í afstöðu sinni, með
og á móti slíkri umferð. Snorri nefn-
ir að áhugamenn um akstur í þjóð-
garðinum hafi endurheimt Vikra-
fellsleið og að fyrir þeirra orð hafi
hættulegum leiðum um norður-
bakka Langasjávar og Blautulón
verið haldið opnum. Er þá ekki
sanngjarnt að Vonarskarð verði
áfram griðland göngufólks?
Um Vonarskarð
og svarta náttúruvernd
Eftir Snorra
Baldursson » Fullgild náttúru-
verndarrök, örygg-
isrök og sanngirnisrök,
íslensk og alþjóðleg, eru
fyrir því að halda Von-
arskarði lokuðu áfram
fyrir vélvæddri umferð.
Snorri Baldursson
Höfundur er áhugamaður um vernd
Vonarskarðs.
sbaldursson@gmail.com
Allt um sjávarútveg