Morgunblaðið - 30.11.2017, Qupperneq 84
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 334. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR.
1. Æskuvinkona Meghan…
2. Tók eitur í réttarsalnum
3. Töluverð uppstokkun…
4. Björgólfur tjáir sig um símtalið
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ingibjörg Fríða Helgadóttir söng-
kona og Daníel Helgason gítarleikari
flytja dægurlög á hádegistónleikum í
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag kl. 12.
Þau munu flytja eigin útsetningar
fyrir söng og rafgítar á lögum frá sjö-
unda áratugnum. Tónleikarnir eru
hluti af hádegistónleikaröðinni Á ljúf-
um nótum.
Flytja dægurlög frá
sjöunda áratugnum
Bandaríska tón-
skáldið og hljóð-
færaleikarinn
Stephen Dorocke
heldur spuna-
tónleika í Mengi í
kvöld kl. 21. Með
honum koma fram
píanóleikarinn
Paul Lydon, Berg-
lind María Tómasdóttir flautuleikari,
sellóleikarinn Katinka Kleijn og
bassaleikarinn Julian F. Thayer.
Húsið verður opnað klukkan 20.30.
Spunatónleikar
Dorocke í Mengi
GlerAkur fagnar útgáfu fyrstu breið-
skífu sinnar, The Mountains Are
Beautiful Now, með tónleikum á Húrra
í kvöld kl. 20. Einnig kemur fram
hljómsveitin World Nar-
cosis sem sendi frá
sér plötu á árinu.
GlerAkur er tónlist-
arverkefni Elvars
Geirs Sævars-
sonar sem
starfar sem
hljóðhönn-
uður við Þjóð-
leikhúsið.
GlerAkur og World
Narcosis á Húrra
Á föstudag Suðvestanátt, víða 10-15 m/s og rigning eða súld, en
úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 3 til 8 stig.
Á laugardag Suðvestan 10-18 og lítilsháttar skúrir eða él.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-18 m/s í dag, hvassast á Norð-
vesturlandi. Súld eða rigning, en úrkomulítið á austanverðu land-
inu. Hiti yfirleitt 3 til 8 stig.
VEÐUR
Þór Þorlákshöfn hefur
ekki byrjað leiktíðina sem
skyldi í Dominos-deild
karla í körfubolta. Eftir að
hafa orðið silfurlið bik-
arkeppninnar síðustu tvö
ár, og átt sæti í úr-
slitakeppninni á hverju
tímabili síðan árið 2012,
er Þór nú í fallsæti með
fjögur stig eftir átta leiki.
Ítarlega er fjallað um lið
Þórs í opnu íþróttablaðs-
ins. »2-3
Þórsarar hafa
ekki byrjað vel
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður
ein níu kylfinga sem verja munu heið-
ur Evrópu í fjögurra liða keppni í Jap-
an sem hefst á miðnætti í kvöld að ís-
lenskum tíma. Keppnin kallast The
Queens sem líklega er heppilegast að
þýða Drottningamótið í þessu sam-
hengi. Ítarleg frétta-
skýring um þetta
lokamót ársins hjá
Ólafíu er á forsíðu
íþróttablaðsins. »1
Ólafía byrjar á Drottn-
ingamótinu í kvöld
Sam Allardyce var í gær ráðinn knatt-
spyrnustjóri Everton, liðs Gylfa Þórs
Sigurðssonar. Morgunblaðið hafði sam-
band við formann KSÍ, Guðna Bergs-
son, en Guðni var fyrirliði Bolton þegar
Allardyce stjórnaði liðinu. Spurður um
hvernig honum litist á ráðninguna fyrir
hönd Gylfa sagðist Guðni ekki eiga von
á öðru en Allardyce mundi reynast
Everton góður stjórnandi. » 1
Sam mun reynast Ever-
ton góður stjórnandi
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Það er mikill heiður fyrir mig að
hafa fengið þessar viðurkenningar.
Ég vona innilega að fleiri kennarar
muni fylgja í kjölfarið til að færa
skólastarfið inn í framtíðina,“ segir
Ingvi Hrannar Ómarsson, kennslu-
ráðgjafi í upplýsingatækni og
skólaþróun í Sveitarfélaginu Skaga-
firði og Árskóla á Sauðárkróki, en
hann fékk nýverið viðurkenningar
frá tölvurisunum Google og Apple
sem kennari og frumkvöðull á sviði
upplýsingatækninnar. Er hann
fyrstur Íslendinga til að fá slíkan
heiður.
Ingvi hefur sérhæft sig í aðstoð og
fræðslu fyrir kennara sem vilja nýta
sér nýjustu upplýsingatækni í
kennslustofunni. Auk starfsins í
Skagafirði hefur hann flutt fyrir-
lestra og haldið námskeið fyrir
kennara víða um heim. Þá hefur
hann haldið utan um ráðstefnuna
UTís sem haldin hefur verið árlega
síðustu þrjú ár á Sauðárkróki. Þar
hafa kennarar af öllu landinu komið
saman til að fræðast um það nýjasta
sem er að gerast á þessu sviði á
hverjum tíma.
Skapandi lausnir
Ingvi segir þetta æðstu viður-
kenningar sem Apple og Google veiti
kennurum. Það séu heldur ekki
margir sem hafi náð báðum þessum
áföngum. Hjá Apple nefnist viður-
kenningin á frummálinu „Apple
Distinguished Educators“, skamm-
stafað ADE, en hjá Google er það
„Google for Education Certified
Innovator“.
Ingvi hafði gengið í gegnum þrjú
stig hjá Google þegar hann fékk póst
í sumar um að hann hefði verið val-
inn í æðsta hóp kennara og frum-
kvöðla á sviði menntunar. Hafði
Google þá mælt með honum áfram
og boðið til sérstakrar vinnustofu í
Svíþjóð í október sl. „Þar lærði ég
meira um skapandi lausnir verkefna,
ræddi um menntamál og kynntist
hinum 35 sem valdir voru ásamt
þjálfurum og starfsfólki Google,“
segir hann.
Aðgangur að kennurum
um allan heim
Fyrr í sumar var Ingvi svo í viku í
vinnustofu Apple í London ásamt 50
öðrum kennurum víðs vegar að úr
heiminum sem fengið höfðu ADE-
viðurkenningu, en hún er veitt ann-
að hvert ár.
„Þetta gefur okkur góðan aðgang
að kennurum um allan heim, sem
eru að fást við svipaða hluti. Það
myndast tengslanet sem nýtist okk-
ur öllum. Með því að hafa fengið báð-
ar þessar viðurkenningar gefst mér
færi á að fókusa bæði á nám og
kennslu og nota þá tækni sem Apple
og Google bjóða upp á. Einnig kemst
ég nær þeim sem eru að þróa forrit
og annan búnað og við getum skipst
á upplýsingum og reynslusögum,“
segir Ingvi, en í hvorum hópi fyrir
sig eru 1.500 til 2.000 manns um all-
an heim.
Hann leggur áherslu á að þetta
snúist ekki eingöngu um að nota
tæki eins og spjaldtölvur, síma og
borðtölvur heldur ekki síður hvernig
eigi að gera það, hvað henti hverjum
o.s.frv.
„Þetta snýst aðallega um að bestu
kennararnir deili bestu lausnunum
og hafi engin leyndarmál sem þeir
vilja halda fyrir sig. Menntakerfið
hefur of mikið gengið út á sam-
keppni í stað samvinnu,“ segir Ingvi
og tekur samræmdu prófin sem
dæmi sem geti hindrað samvinnu í
skóla.
„Með meiri samvinnu náum við
betri árangri, bæði kennarar og
nemendur. Við þurfum einnig að
læra af öðrum þjóðum, ekki bara að
tala saman á kaffistofunni.“
Þörf fyrir meiri samvinnu
Kennari fær
viðurkenningu frá
Google og Apple
Google Ingvi Hrannar Ómarsson tók þátt í vinnustofu hjá Google í Svíþjóð á dögunum ásamt fleiri kennurum.
Apple Ingvi Hrannar með viður-
kenningarskjalið frá Apple.