Morgunblaðið - 15.03.2018, Síða 20

Morgunblaðið - 15.03.2018, Síða 20
BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Á yfistandandi þingi, 148. löggjafar- þinginu, hafa þingmenn lagt fram 283 fyrirspurnir. Einn þingmaður hefur algjöra sérstöðu, Björn Leví Gunn- arsson, þingmaður Pírata, en hann hefur lagt fram 72 fyrirspurnir, eða fjórðung allra fyrirspurna. Næstur honum kemur Þorsteinn Sæmunds- son, þingmaður Miðflokksins, sem lagt hefur fram 17 fyrirspurnir. Þór- arinn Ingi Pétursson, varaþingmaður Framsóknarflokksins, lagði fram 12 fyrirspurnir þann stutta tíma sem hann sat á Alþingi. Fyrirspurnir eru ýmist bornar fram á þingskjölum, annaðhvort til skriflegs eða munnlegs svars, eða munnlega til ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma. Langflestar fyrir- spurnir eru til ráðherra en einnig hafa verið lagðar fram nokkrar fyrir- spurnir til forseta Alþingis. Fyrirspurnir í lög árið 1947 Fyrirspurnir til ráðherra eiga sér langa sögu á Alþingi. Þær voru tekn- ar inn í lögum nr. 22/1947, en áður hafði verið ákvæði um skýrslubeiðnir þingmanna til ráðherra. Í lögunum eru engar takmarkanir á því hve margar fyrirspurnir einstakir þing- menn geta lagt fram. Fyrirspurnum hefur farið fjölg- andi. Á 146. löggjararþinginu, árin 2016 til 2017, voru þannig lagðar fram alls 405 fyrirspurnir. Þegar fyrirspurnir Björns Leví Gunnarssonar á yfirstandandi þingi eru skoðaðar kennir margra grasa. Margar þeirra eru raðfyrirspyrnir, þ.e. þær eru lagðar fyrir alla ráð- herra ríkisstjórnarinnar. Dæmi um slíkar spurningar eru: Ferðakostn- aður og dagpeningar ráðherra og ráðuneytisstjóra. Ráðherrabílar og bílstjórar. Ráðningar ráðherrabíl- stjóra. Störf þingmanna á vegum framkvæmdavaldsins. Spurningar Björns Leví eru marg- ar hverjar mjög umfangsmiklar og ná mörg ár aftur í tímann. Hér skal tek- ið eitt dæmi. Fyrirspurn til allra ráðherra um ferðakostnað og dagpeninga ráð- herra og ráðuneytisstjóra: 1. Hver var frá árinu 2006 árlegur fjöldi ferða ráðherra annars vegar og hins vegar ráðuneytisstjóra til út- landa vegna starfa á vegum ráðu- neytisins? 2. Hve háar voru árlegar greiðslur dagpeninga hvors um sig vegna þessara ferða? 3. Hversu oft á hverju ári fengu ráðherra og ráðu- neytisstjóri 1/3 hluta dagpeninga og hve oft 2/3 hluta? 4. Hverjar voru ár- legar fjárhæðir, skipt á ráðherra og ráðuneytisstjóra, vegna hótelgist- ingar þeirra annars vegar og hins vegar annars ferðakostnaðar? 5. Í hversu mörgum tilfellum hvert þess- ara ára var ráðherra eða ráðuneyt- isstjóra ekið út á flugvöll í bifreiðum ráðuneytisins og í hve mörgum til- fellum endurgreiddu þeir þann hluta dagpeninga sem ætlaður er til að standa undir þeim hluta ferðakostn- aðarins? 6. Hversu oft og hve háar voru árlegar endurgreiðslur ráðherra og ráðuneytisstjóra vegna styrkja og hvers konar hlunninda sem þeir nutu erlendis og eiga samkvæmt reglum ferðakostnaðarnefndar að koma til frádráttar almennum dagpeninga- greiðslum? Spyr um nöfn sveitarfélaga Fyrirspurn á þingskjali 372-270. mál vekur athygli. Hún er svona: 1. Hvert er opinbert nafn sveitar- félagsins þar sem höfuðborg Íslands er staðsett? 2. Hvert er nafn samein- aðs sveitarfélags Grímseyjar, Hrís- eyjar og Akureyrar? 3. Hvert er nafn sameinaðs sveitarfélags Norðfjarðar, Mjóafjarðar, Eskifjarðar, Reyðar- fjarðar, Fáskrúðsfjarðar og Stöðvar- fjarðar? Flestum fyrirspurnum Björns Leví er ósvarað. Öðrum hefur verið svarað, t.d. fyrirspurn til forseta Al- þingis um aksturskostnað alþingis- manna. Óhætt er að segja að það svar hafi verið mikið fréttaefni og leitt til stóraukinnar upplýsingagjafar af hálfu Alþingis. Hefur lagt fram 72 fyrirspurnir  Á yfirstandandi þingi hafa verið lagðar fram 283 fyrirspurnir  Píratinn Björn Leví Gunnarsson er ötulastur þingmanna með 72 fyrirspurnir  Í lögum er enginn kvóti á fyrirspurnir til ráðherra Morgunblaðið/Eggert Fyrirspurnakóngur Björn Leví í ræðustól Alþingis. Spurning hans um aksturskostnað þingmanna dró dilk á eftir sér. 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018 Morgunblaðið lagði þrjár spurningar fyrir Björn Leví Gunnarsson. Hann svaraði þeim skriflega. – Hver er ástæðan fyrir því að þú leggur fram allar þessar fyrirspurnir? „Markmiðið er ekki að leggja fram margar fyrirspurnir. Að auki eru margföldunaráhrif á fyrirspurnum sem bein- ast að öllum ráðherrum í stað þess að geta bara spurt td. forsætisráðherra sem safnar þá saman svörum frá öllum.“ – Hefur þú hugmynd um hve mikil vinna fer í að svara öllum þessum fyrirspurnum? „Já, en á sama tíma ætti að vera hægt að fletta upp á svörunum við mörgum af þessum spurningum (leigu- kostnaður, dagpeningar, ferðir ráðherra, starfskostn- aður).“ – Hvers vegna lagðir þú fram fyrirspurn um nöfn sveitarfélaga, þingskjal 372-270. mál, þegar svarið liggur í augum uppi? „Þessari fyrirspurn var skipt í tvennt í yfirlestri þings- ins þannig að samhengið glatast aðeins. Þetta var hluti af fyrirspurn um skráningu á fæðingarstað barna. Ég er með dæmi um ósamræmi og langar til þess að vita hvort það ósamræmi heldur í svari ráðherra. Annars hefði þetta verið fyrirspurn til upplýsingasviðs bara.“ Margföldunaráhrif eru á fyrirspurnum EKKI MARKMIÐ AÐ LEGGJA FRAM MARGAR FYRIRSPURNIR, SEGIR BJÖRN LEVÍ GUNNARSSON Eftirfarandi fyrirspurn beindi Björn Leví Gunnarsson til Stein- gríms J. Sigfússonar, forseta Al- þingis. Henni er ósvarað: 1. Er akstursbók í bifreiðum Al- þingis og er hver bók fyllt ná- kvæmlega út þannig að gerð sé grein fyrir öllum aksturserindum? 2. Er akstursbók í viðhafnar- bifreið Alþingis, er hún fyllt ná- kvæmlega út og er gerð skil- merkileg grein fyrir öllum aksturserindum? 3. Fylgist innra eftirlit Alþingis með því hvort forsetar Alþingis nota bifreiðar þingsins sem þing- menn kjördæma eða eingöngu vegna erinda sem þeim eru falin sem forsetar þingsins? Óskað er eftir að gerð verði grein fyrir notk- un bifreiðanna í þessu tilliti frá árinu 2006. 4. Eru bifreiðar Alþingis notaðar til að aka forseta Alþingis út á flugvöll og sækja hann þegar hann fer til útlanda á vegum Alþingis? Ef svo er, endurgreiðir forseti Al- þingis þann hluta dagpeninga sem ætlaður er til að greiða fyrir þenn- an kostnað? Óskað er eftir árlegu yfirliti frá árinu 2006 þar sem gerð er grein fyrir endurgreiðslunum. 5. Hefur for- setum Alþingis verið reiknað hlunnindamat vegna notkunar bifreiða Alþing- is frá árinu 2006? Hefur einhvern tíma komið upp sú staða að slíkt hlunnindamat þurfi að reikna? 6. Hafa styrkir og hvers konar hlunnindi varðandi gistingu og fæði, sem forseti Alþingis nýtur meðan á dvöl hans erlendis stend- ur, komið til frádráttar almennum dagpeningagreiðslum eftir því sem við á? Óskað er eftir árlegu yfirliti, sem sýnir fjölda ferða forseta Al- þingis frá árinu 2006, árlegar heild- ardagpeningagreiðslur og árlegar endurgreiðslur dagpeninga vegna fyrrgreinds, og yfirliti yfir annan ferðakostnað sem greiddur hefur verið á sama tíma. 7. Ef fyrrgreindur hluti dagpen- inga hefur ekki verið endur- greiddur, hvers vegna hefur það ekki verið gert? Skriflegt svar óskast. Spyr um hlunnindi og akstur forseta  Ítarleg fyrirspurn til forseta Alþingis Steingrímur J. Sigfússon Sundföt 2018 Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.