Morgunblaðið - 15.03.2018, Qupperneq 22
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Reykjavík Konsúlat-hótelið í Hafnar-
stræti verður opnað formlega síðdegis
í dag. Það er hluti af Curio Collection,
alþjóðlegri keðju í eigu Hilton-
hótelanna.
Hildur Ómarsdóttir, forstöðumaður
þróunar- og markaðssviðs Icelandair
hótela, segir Curio Collection vera al-
þjóðlega keðju einstakra hótela með
sögulega skírskotun. Hið sögufræga
hús Thomsen-fjölskyldunnar falli vel
undir þá skilgreiningu. Ditlev Thom-
sen var frumkvöðull í verslun og inn-
flutningi á 19. öld og settu hann og fjöl-
skylda hans svip á borgina.
Tóku á móti erlendum gestum
„Nafn hótelsins er dregið af því að
Ditlev Thomsen yngri var konsúll fyrir
Þýskaland með aðsetur á sama stað og
hótelið. Hlutverk konsúls var meðal
annars að taka á móti erlendum gest-
um, Þjóðverjum sem öðrum. Þá ekki
síst gestum á vegum Danakonungs.
Konsúllinn var einnig umsvifamikill í
inn- og útflutningi og stóð fyrir ýmsu
frumkvöðulsstarfi sem getið er um í
sögubókum. Til dæmis stofnaði Ditlev
yngri hér ferðaþjónustu og flutti inn
fyrsta bílinn til Íslands og gerði hann
út fyrir ferðamenn. Bíllinn var einkum
notaður í dagsferðir. Við höfum í sam-
vinnu við Guðjón Friðriksson sagn-
fræðing safnað þessari sögu saman og
gerum henni skil uppi um alla veggi.
Við gefum jafnframt út blað fyrir gesti
þar sem við útskýrum þessa sögu og
hugmyndafræðina á bak við hótelið.“
Svítan tileinkuð Ágústu
Hildur sýndi blaðamanni og ljós-
myndara Morgunblaðsins nokkur her-
bergin. Á einu þeirra var einmitt
mynd af bílnum sem Ditlev Thomsen
yngri flutti til landsins árið 1904. Ann-
að herbergi, svíta á þriðju hæð, er til-
einkað minningu Ágústu, konu Dit-
levs.
Á göngum hótelins má sjá ýmsa
muni sem fanga andblæ liðins tíma.
Minna þeir á verslunarhús fjölskyld-
unnar, Thomsens-magasín. Á hótelinu
er gangur sem er í sömu stefnu og
kolabrautin var á sínum tíma. Með
svona skírskotunum fá gestir tilfinn-
ingu fyrir sögunni.
Á hótelinu eru 50 herbergi. Þau eru
af ýmsum stærðum, allt frá smærri
herbergjum yfir í rúmgóðar svítur.
THG arkitektar teiknuðu húsið.
Freyr Frostason hannaði húsið en
Paolo Gianfrancesco fór fyrir innan-
hússhönnun.
Á hótelinu er veitingastaðurinn
GOTT. Hjónin Sigurður Gíslason og
Berglind Sigmarsdóttir sjá um rekst-
urinn. Þau hafa rekið stað með sama
nafni í Vestmannaeyjum.
Listmunir í eigu Icelandair prýða
veggi og valdi listamaðurinn Birgir
Snæbjörn Birgisson munina.
Baðhús er í kjallara hótelsins með
gufubaði og æfingasal.
Hildur segir hótel í þessum gæða-
flokki laða nýjan hóp gesta til landsins.
Það líti mjög vel út með bókanir.
Að sögn Hildar verður fyrirhugað
Icelandair hótel við Austurvöll sömu-
leiðis hluti af Curio Collection.
„Það er skýr stefna Icelandair hót-
ela að byggja upp aukin gæði í ferða-
þjónustu til framtíðar. Bæði hótelin
eru liður í því verkefni. Við leggjum
metnað í að vanda til verka, gera sögu-
legum heimildum og húsakynnum hátt
undir höfði. En líkt og konsúllinn á sín-
um tíma viljum við einnig marka okk-
ar spor í sögu Reykjavíkur, innleiða
nýjungar og úrbætur í gistingu og
veitingaþjónustu og skapa hér aukið
virði til handa þeim sem hér búa og
starfa,“ segir Hildur.
Ný götumynd Reykjavík Konsúlat-hótelið í Hafnarstræti. Gamla Reykjavík Thomsens Magasín var stórverslun.
Nýtt glæsihótel í Hafnarstræti
Reykjavík Konsúlat-hótel vígt í dag
50 herbergi og baðhús í kjallaranum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hönnun Við móttökuna er setustofa og bar. Nýja hótelið og Hafnartorgið norðan við það breyta ásýnd svæðisins.
Við arininn Fjöldi listaverka prýðir hótelið, meðal annars eftir Erró.
Með veggfóðri Herbergin eru í ýmsum stærðarflokkum.
Ljósmynd/Ljósmyndasafn Reykjavíkur/Birt með leyfi
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14
TILBOÐS-
DAGAR
Vertu velkomin
í sjónmælingu