Morgunblaðið - 15.03.2018, Qupperneq 49
49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018
Konungur ljónanna Engu er líkara en þessi sé að horfa yfir ríki sitt ofan úr tré, þar sem hann var á ferli í grasagarðinum í höfuðborginni. Eins gott að hafa auga með öllu kviku.
Eggert
Upp á síðkastið hafa
heyrst gagnrýnis-
raddir um að konur
eigi erfitt uppdráttar í
Sjálfstæðisflokknum,
jafnvel fullyrðingar um
að þar sé engar konur
að finna. Það er rangt,
öðru nær raunar. Á
sjöunda tug kvenna
gegna kjörnum emb-
ættum á vegum Sjálf-
stæðisflokksins, bæði á Alþingi og
víðs vegar um landið. Á sveitar-
stjórnarstiginu einu eru tæplega
sextíu konur kjörnir fulltrúar. Þær
eru 45% af kjörnum fulltrúum
flokksins í sveitarstjórnum og 13 af
32 oddvitum flokksins eru konur.
Vígin halda áfram að falla, nú
skipar í fyrsta sinn
kona leiðtogasæti
flokksins á Akranesi
fyrir kosningarnar í
vor. Í reynd voru fleiri
sjálfstæðiskonur
kjörnir fulltrúar í síð-
ustu sveitarstjórn-
arkosningum en sam-
anlagður fjöldi
kjörinna kvenna allra
annarra framboða. Allt
tal andstæðinga Sjálf-
stæðisflokksins um
skort á konum innan
flokksins er því marklaust og í raun
móðgun við þær fjölmörgu konur
sem eru kjörnir fulltrúar almenn-
ings eða taka þátt í starfi á vegum
flokksins. Við erum svo sannarlega
til í stjórnmálum.
Það er bjart framundan og þeir
listar sem hafa verið birtir fyrir
komandi kosningar gefa ekki annað
til kynna en að sókn sjálfstæðis-
kvenna haldi áfram. Við sáum á eftir
þremur frábærum þingkonum í síð-
ustu alþingiskosningum en það er
áminning um að efla enn frekar
kynningu og þátt kvenna í starfi
flokksins og framlag þeirra til hinna
ýmsu málaflokka. Landssamband
sjálfstæðiskvenna hefur staðið fyrir
fjölbreyttu og árangursríku starfi á
liðnu ári með það að markmiði. Og
við erum til í enn öflugra starf.
Sjálfstæðiskonur hafa staðið fyrir
ótal samkomum og viðburðum síð-
ustu 12 mánuði. Varlega áætlað hafa
vel á annað þúsund konur tekið þátt
í starfi landssambandsins. Fundaröð
með alþingiskonum okkar um allt
land í aðdraganda kosninga, golf-
mót, málfundur með norður-kóresku
frelsishetjunni Yeomni Park, stefnu-
mót við kvenframbjóðendur sveitar-
stjórnakosninga, heimsókn á Alþingi
og áfram mætti telja upp ýmsa fundi
og viðburði. Nýlega hittist hópur
kvenna í flokknum sérstaklega til að
ræða ályktanir fyrir málefnastarf
landsfundar og þær munu áfram
leggja sitt af mörkum á fundinum
sjálfum. Starfið er í blóma og það
eru sjálfstæðiskonur líka. Við erum
til í þetta.
Nú þegar eru tvær konur í fram-
boði til forystu í Sjálfstæðis-
flokknum. Þórdís Kolbrún Reyk-
fjörð Gylfadóttir, ferðsmála-,
iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
býður sig fram til varaformanns
flokksins og Áslaug Arna Sigur-
björnsdóttir, alþingiskona, til áfram-
haldandi setu sem ritari flokksins.
Við skorumst ekki undan um að vera
í forystu. Við erum til í slaginn.
Við hlökkum til að koma til fundar
við flokksmenn okkar á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins til að ræða mál-
efnin, framtíðina og hvernig við get-
um áfram tryggt hagsæld, jafnrétti
og frelsi. Við erum til!
Eftir Völu
Pálsdóttur » Allt tal andstæðinga
Sjálfstæðisflokksins
um skort á konum innan
flokksins er því mark-
laust og í raun móðgun
við þær fjölmörgu konur
sem eru kjörnir fulltrú-
ar almennings eða taka
þátt í starfi á vegum
flokksins. Vala Pálsdóttir
Höfundur er formaður Lands-
sambands sjálfstæðiskvenna.
Við erum til
Þeir sem búa í Kópa-
vogi, Garðabæ, Hafnar-
firði, Seltjarnarnesi og
Mosfellsbæ þurfa oft að
sækja Reykjavík heim.
Flestir finna fyrir því
að umferðin hefur
þyngst mikið. Ferða-
tími í Reykjavík hefur
aukist um 26% að jafn-
aði á fjórum árum sam-
kvæmt ferðakönnun
Samtaka iðnaðarins.
Sífellt meiri tími fer í tafir og bílar
bíða í lausagangi með tilheyrandi
mengun og auknu svifryki. Í staðinn
fyrir að fækka ljósastýrðum gatna-
mótum hefur Reykjavík hafnað ve-
gafé síðustu sex árin. Fram-
kvæmdastopp ásamt manngerðum
þrengingum hefur
hægt á allri umferð og
er svo komið að vinnu-
vikan hefur í raun
lengst um margar
klukkustundir fyrir
flesta. Það er því hags-
munamál fyrir allt höf-
uðborgarsvæðið að
breytt verði um stefnu í
borginni. Það er löngu
kominn tími á fram-
kvæmdir sem nýtast
fólki til að komast leið-
ar sinnar.
Húsnæðisvandinn í Reykjavík
Á meðan önnur sveitarfélög undir-
bjuggu uppbyggingu íbúðarhverfa
svaf Reykjavíkurborg á verðinum.
Höfuðborgin, sem átti að leiða hús-
næðismálin, sat eftir. Á síðasta ári
Eftir Eyþór Arnalds »Höfuðborgin á að
vera leiðandi sveit-
arfélag enda hefur hún
burði til þess ef henni er
rétt stjórnað. Hún er
langstærsta sveitar-
félagið og ætti því að
vera hagkvæmasta
rekstrareiningin. Sú er
ekki raunin. Eyþór Arnalds
Höfundur er oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík.
Reykjavík kemur okkur öllum við
voru færri íbúðir byggðar í Reykja-
vík en Mosfellsbæ. Lóðaskortur og
há gjöld hafa ýtt sífellt fleiri Reyk-
víkingum burt og þrýst á verðhækk-
anir í öðrum sveitarfélögum. Ekki
minnkar umferðin við þessa þróun.
Þrátt fyrir kynningar, glærur,
skóflustungur og úthlutanir hefur
húsnæðisvandinn aukist ár frá ári.
Óvissa meðal framkvæmdaaðila og
langur afgreiðslutími hafa stóraukið
kostnað við byggingar í Reykjavík og
lagst ofan á verðið. Á endanum borg-
ar fólkið, eða gefst upp og flytur
burt.
Reykjavík á að vera
brimbrjóturinn
Höfuðborgin á að vera leiðandi
sveitarfélag enda hefur hún burði til
þess ef henni er rétt stjórnað. Hún er
langstærsta sveitarfélagið og ætti
því að vera hagkvæmasta rekstrar-
einingin. Sú er ekki raunin. Borgin
ætti að vera leiðandi í umhverfis-
málum en ekki vera umvafin svifryki.
Reykjavík ætti að keppa við alþjóð-
legar borgir í skólamálum en ekki
vísa börnum frá vegna manneklu.
Höfuðborgin ætti alltaf að vera með
hagstæðar lóðir og lausnir svo Ís-
lendingar geti valið hana sem bú-
setukost óháð efnahag. Í dag eru að-
allega byggðar dýrar lúxusíbúðir
sem almenningur hefur ekki efni á.
Ég vil sjá Reykjavík sem snjallborg
þar sem tækni er notuð til að einfalda
líf okkar allra. Ég vil að í Reykjavík
geti kynslóðir unnið betur saman og
eldri borgarar fái tækifæri til að taka
þátt í samfélaginu með virkum hætti.
Ein stærsta áskorun okkar tíma er
að virkja eldri borgara og þá eigum
við að létta álögum af þeim. Höfuð-
borgin á að vera snyrtileg og hrein.
Hún á að þjóna öllu landinu og vera
okkur öllum til sóma.