Morgunblaðið - 15.03.2018, Síða 79
DÆGRADVÖL 79
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú gætir hitt fyrir manneskju sem
heillar þig algerlega upp úr skónum í dag.
Þú sækir í spennu og ævintýri og færð
jafnan mikla athygli í hópi.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er tímabært að safna kröftum
og endurskipuleggja sig. Hvort sem þér
líkar það betur eða verr ertu í sviðsljósinu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Fólk er hrifið af því sem þú hef-
ur fram að færa. Það er nauðsynlegt að
taka tillit til hagsmuna annarra, þegar
mál, sem margir eiga aðild að, eru til
lykta leidd.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ef þú sinnir daglegum viðfangs-
efnum þínum af natni gengur vinnan að
óskum. Láttu þér nægja að hugsa hlutina
með sjálfri/sjálfum þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú færð góðar hugmyndir í dag.
Gaumgæfðu samt vel allar hliðar málsins
áður en þú lætur til skarar skríða og
mundu að leita álits annarra.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert vel upplögð/lagður og allt
virðist ganga upp hjá þér. Fjölskyldu-
viðburður gengur að óskum, ekki síst ef
þú stendur á þínu alveg frá upphafi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Viljir þú hafa áhrif og koma sjálfum
þér á framfæri skaltu gera það með því að
vera þú sjálf/ur. Aðstæður þeirra sem
ekki eru jafn lánsamir og þú koma við þig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Fólk er óvenjueirðarlaust,
ergilegt og jafnvel þrjóskt í dag. En ekki
láta það aftra þér. Það getur eitt og annað
komið upp á yfirborðið þegar menn rök-
ræða málin af fullum þunga.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gættu þess að vinnufélagar
þínir hafi ekki neitt upp á þig að klaga.
Það er erfitt fyrir þig að gera þér upp
áhuga þegar þú hefur hann ekki.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er hætt við að þú lofir upp
í ermina á þér í vinnunni. Láttu þig bara
fljóta með straumnum og frestaðu öllum
stórum ákvarðanatökum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu það eftir þér að sletta
svolítið úr klaufunum en gættu allrar hátt-
vísi. Komdu vinum þínum á óvart með því
að setja gamla uppskrift í nýjan búning.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Láttu ekki hlutina fara í taugarnar
á þér og líttu fram hjá uppátækjum vinnu-
félaga þinna. Hafðu húmor fyrir mistök-
um, bæði þínum og annarra.
Guðmundur Arnfinnsson þýddiþetta gullfallega ljóð, Fagra
blóm, eftir Poul F. Joensen og birti á
Boðnarmiði:
Fagra blóm, sem foldu skrýðir,
fjallatinda, klettaskörð,
engi og græna grundu prýðir,
grær hér nokkuð fegra á jörð?
Blómi fögru einu ann ég,
yndislegt það heillar mig,
enga rós svo fríða fann ég,
fagra blóm, ég dýrka þig.
Blóm á vori vaxið getur,
visnar, þegar hausta fer,
en blómið mitt jafnt vor sem vetur
vex og dafnað fær hjá mér.
Lifir enn mitt blómið bjarta,
ef bliknar það, á samri stund
í brjósti mínu brestur hjarta,
bleikur hníg ég þá að grund.
Fyrir 10 dögum lýsti Davíð Hjálm-
ar Haraldsson innanverðum Eyja-
firði svo:
Nýsnævið glitrar hér norður við haf,
nöpur er vistin hjá rónum.
Sjö metra birki er komið á kaf
en kirkjuturn nær upp úr snjónum.
Magnús Halldórsson segir frá því
á Boðnarmiði að nú ætla hrossa-
ræktarsamtök Sunnlendinga að
funda um málefnið „Hvernig viljum
við sjá framtíðarhestinn beita sér?“
Síðan segir hann sína skoðun
byggða á hálfrar aldar reynslu af
tamningum og hestaferðum:
Ég sýnilega sannað tel
og sést á varla brestur,
að flestum dugi feikna vel
feitur gamall hestur
Jónas Friðriksson orti oddhent
þegar bróðir hans varð fimmtugur:
Hlutlægt töldu himnafjöld,
hálf er öld að beði.
Taka völd um vetrarkvöld
veisluhöld og gleði.
Það er fallegt á Langasandi í
björtu veðri. Sigmundur Benedikts-
son yrkir:
Er við sandinn ekkert span
allt í hægum línum.
Lágvært hvíslar lognaldan
leyndarmálum sínum.
Ingólfur Ómar er líka í sólskins-
skapi: „Nú er veðrið undurfagurt, bjart
en smá gola, og það styttist í vorið.“
Gleður art og örvar lýð
óttu svarta hrekur.
Geislum skartar Glóey fríð
gleði hjartans vekur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fagurt blóm, fannfergi
og feitur hestur
„VIÐ ERUM EKKI LENGUR SAMRÝMANLEG.
VIÐ ÞURFUM HJÁLP VIÐ AÐ UPPFÆRA
STÝRIKERFIN OKKAR.“
HJÓNABANDSRÁÐGJÖF
„HVOR YKKAR ER SMITH
HERSHÖFÐINGI?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... bréf.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG SKAL FLETTA ÞVÍ UPP Á
SÍMANUM MÍNUM, HÉRNA…
NÁTTÚRUNA!
VIÐ ÞURFTUM STYRKTARAÐILA TIL ÞESS AÐ
BORGA FYRIR NÝJU SVERÐIN OG SKILDINA!
SVEINS-
BAR
VIÐ KETTIR ERUM Í
GÓÐUM TENGSLUM VIÐ… Ó,
HVERT ER ORÐIÐ?
DREKKIÐ Á SVEINSBAR!
Víkverji er einn af þeim sem tókuandköf þegar þeir fréttu af því
að knattspyrnukappinn Gylfi Sig-
urðsson yrði hugsanlega meiddur í
sumar, með þeim afleiðingum að
hann yrði af heimsmeistarakeppn-
inni í Rússlandi sem haldin verður í
júní næstkomandi. Að öðrum leik-
mönnum íslenska liðsins ólöstuðum
er Gylfi „stjarnan“ í liðinu, fremstur
meðal jafningja.
x x x
Atvikið vakti leiðinlegar minn-ingar frá námsárum Víkverja í
Bretlandi, þegar Wayne Rooney,
sem naut svipaðs sess í enska lands-
liðinu þá og liðsfélagi hans Gylfi í því
íslenska nú, tók upp á því að brjóta á
sér ristina kortéri fyrir HM-
keppnina í Þýskalandi sumarið 2006.
Það má segja að þjóðarsorg hafi ríkt
á Englandi það vorið og tíðar fréttir
voru af bata Rooneys; hvort beinið
myndi gróa í tæka tíð fyrir mótið og
hvort hann yrði í leikformi fyrir
fyrsta leik.
x x x
Skemmst er frá því að segja að öllþessi athygli fjölmiðla á hinni
heilögu rist Rooneys varð enska
landsliðinu ekki til framdráttar. All-
ur undirbúningur liðsins féll í skugg-
ann af meiðslum stórstjörnunnar og
þó að Rooney næði undraverðum
bata varð snemma ljóst að hvorki
líkami hans né hugur voru nægilega
vel undirbúnir til þess að bera heilt
landslið á herðum sér, hvað þá lið
með jafnmiklar væntingar þjóðar
sinnar og það enska hefur oftast haft
í kringum sig.
x x x
Að þessu leyti er íslenska lands-liðið betur komið en það enska.
Enginn gerir ráð fyrir að við verðum
heimsmeistarar en allir vona auðvit-
að að liðið muni standa sig jafn vel
og það gerði á Evrópumótinu fyrir
tveimur árum. Víkverji andaði því
léttar þegar í ljós kom að meiðsli
Gylfa voru ekki eins alvarleg og talið
var í fyrstu. Engu að síður megum
við hér á Fróni passa okkur að detta
ekki í sama gírinn og Englendingar
gerðu árið 2006. Það mun ekki gera
neinum gott.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég hef Drottin ætíð fyrir augum, þeg-
ar hann er mér til hægri handar hnýt
ég ekki.
(Sálm: 16.8)
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3