Morgunblaðið - 15.03.2018, Page 81
MENNING 81
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018
segir hann. Tónlistin komi fyrst og
þegar hún sé nánast fullkláruð taki
textasmíðin við.
Hörmungar og dauði
„Hún verður köld, ég finn það, það
verður ís og kuldi og snjór. Síðasta
plata var svo næs, Vögguvísur Ygg-
drasils, allir að fara að sofa og örugg-
ir en ég held að þessi verði bara
hörmungar og dauði,“ segir Snæ-
björn um hina væntanlegu plötu.
– Verður tónlistin þá harðari líka?
„Ég veit ekki hvort músíkin mun
bera þess endilega merki en ég
hugsa að allir textarnir verði býsna
kaldir og harðir, mér líður þannig
núna.“
Snæbjörn segist vera að velta
draugum fyrir sér og að mögulega
verði því draugaleg stemning á skíf-
unni. Og allir textar að vanda í
bundnu máli, hnýttir saman eftir
kúnstarinnar reglum.
Aftur að tónleikunum. Snæbjörn
segir að eftir fyrsta lag á fyrstu æf-
ingu fyrir tónleikana 2013 hafi hon-
um ekki litist á blikuna, lagið hafi
hljómað vægast sagt illa og honum
flogið í hug að mögulega hafi þetta
verið slæm hugmynd hjá Skálmeld-
ingum. Eftir fyrsta kaffihlé hafi hins
vegar allt smollið saman. „Það
steinlá!“ segir Snæbjörn um flutn-
inginn eftir kaffihlé, sællar minn-
ingar. „Þetta er stórkostlegt tæki,
þessi sinfóníuhljómsveit, fáránlega
gott,“ bætir hann við og tilhlökkunin
leynir sér ekki.
Morgunblaðið/Eggert
Málmfónía Björgvin Sigurðsson, söngvari og gítarleikari og Snæbjörn, jafnan kallaður Bibbi, bassaleikari og texta-
smiður Skálmaldar, á æfingu fyrir tónleikana með Sinfóníuhljómsveit Íslands og þremur kórum árið 2013.
frelsi. Ég finn að ég er frjáls í því
hvaða hluti ég set á sviðið, get leitað í
allar mögulegar kistur. Maður finn-
ur fyrir frelsinu sem sýningin boð-
ar,“ segir hún.
Búið að hlaða vörður
– Þið finnið þá ekki fyrir þrýstingi,
nú er þetta einn vinsælasti söngleik-
ur heims og söngleikirnir í Borgar-
leikhúsinu hafa líka allir slegið í
gegn, alveg frá Mary Poppins?
„Auðvitað er þetta alltaf áskorun,“
svarar Ilmur og Marta tekur undir
það. „Þetta er mikil áskorun, mikið
undir og allir að leggja allt sitt í
þetta. En fólk er svo einbeitt í vinn-
unni að maður getur ekki verið að
hugsa um það alla daga. Nú er ég að
leikstýra svona söngleik í fyrsta
skipti – Imma er búin að hanna fyrir
marga söngleiki – og það hefur verið
mikil áskorun og lærdómur fyrir mig
að fara í gegnum þetta, að setja upp
svona stóra sýningu og vinna með
svona ótrúlega reyndum og frábær-
um danshöfundi sem hefur gert
mjög mikið fyrir söngleiki á Íslandi,“
segir Marta.
Hún segir það hafa verið mikla
upplifun að sjá hversu mikill undir-
búningur sé fyrir svona sýningu.
„Ég hef aldrei verið í sýningu þar
sem undirbúningur hefst ári fyrr og
reynt að kortleggja ferðalagið eins
mikið og mögulegt er áður en farið
er á svið. Auðvitað tekur hið óvænta
við þegar þú byrjar að æfa en þá er
að minnsta kosti búið að hlaða
ákveðnar vörður sem hjálpa þér að
takast á við það. Það hefur mjög
mikið að segja um lokaútkomuna,
hvernig fólk er valið í hverja stöðu
og hvernig hlutirnir eru unnir.“
Öfgakennd leið
Marta segir að auðvitað hljómi
verkið sem stórfurðulegt þegar því
sé lýst fyrir fólki en það sé ákveðin
leið hjá leikskáldinu að ganga svona
langt til að koma sögninni til skila, að
hafa frásögnina öfgakennda og í
anda B-mynda. Ilmur bætir því við
að frásögnin sé goðsagnakennd að
vissu leyti og Marta líkir frásagnar-
stílnum við sígild ævintýri, „ævintýri
fyrir fullorðna þar sem gengið er
mjög langt til að koma skilaboðunum
áleiðis, líkt og vonda nornin sem ætl-
ar að stinga Hans og Grétu í ofninn.“
„Svo fjallar verkið líka um að upp-
lifa sig „alien“, líkt og þú sért frá
annarri plánetu og passir ekki inn í
þennan heim,“ segir Ilmur og Marta
segir það einmitt tilfinninguna sem
höfundur verksins hafi fundið fyrir
og viljað koma til skila. „Að vera
hafnað af samfélaginu þegar þú vilt
eitthvað sem er ekki leyfilegt.“
Ilmur segir áhugaverða togstreitu
í Rocky Horror. „Það er ýtt á öll
mörk, farið út fyrir þau öll og Frank-
N-Furter gengur svo langt að það er
í raun ekki pláss til að fara svo
langt.“
– Yrði Frank-N-Furter ekki
kærður fyrir áreitni, nú á tímum
Metoo?
„Hann yrði fangelsaður og jafnvel
líflátinn eins og gert er í verkinu,“
segir Ilmur og Marta tekur undir
það. „Hann er tekinn af lífi og þar
kemur einmitt setningin að maður
verði að losna við svona fólk úr sam-
félaginu, sú er merkingin, þetta fólk
passar ekki inn. Hann yrði kærður
og hann þenur öll mörk af því að
þetta er ævintýri, þetta er ekki real-
ismi og það á aldrei að taka verkinu
þannig, það er verið að éta fólk og
svona. En hann er að láta reyna á öll
þessi gildi sem við erum búin að búa
til,“ segir Marta. Ilmur segir
ákveðna mótsögn í verkinu. „Það
boðar að ýtt sé á mörk en í raun líka
að þegar þú ferð svona gjörsamlega
yfir mörk allra áttu ekki rétt á því
lengur,“ segir hún.
Ferðalag Janetar mjög skýrt
Janet er fulltrúi „venjulega“ fólks-
ins í Rocky Horror, þeirra sem ætla
að ná sér í öruggt starf, giftast og
eignast börn. Fylgja hinum „góðu
gildum“. „Ef einhver ferðast í gegn-
um þetta verk þá er það hún. Þetta
er hennar heimur, henni er hent inn í
þennan heim þar sem ekkert er eins
og hún hélt að það væri og hún sefur
hjá Frank-N-Furter, óviljandi en
samt líka viljandi og líka Rocky og
uppgötvar sjálfa sig og nautnina, að
það er miklu meira í þessu lífi og
fleiri valkostir en hún hélt að væru
til staðar,“ segir Marta. „Hún áttar
sig á því að hún má velja, að hún er
frjáls,“ bætir Ilmur við og Marta
segir Janet taka þá ákvörðun að
snúa ekki aftur. „Hún byrjar sem ein
manneskja og endar sem önnur
þannig að hennar ferðalag er mjög
skýrt í þessu verki,“ segir Marta.
Ilmur segir Brad fara svipaða leið
en enda á allt öðrum stað. „Hann
endar á sömu slóðum en líður verr,
hann er með samviskubit og er brot-
inn og hræddur,“ segir hún. Brad
vilji ekki meira og vilji hverfa aftur
til fyrra lífs. Ilmur segir að líta megi
á Brad sem fulltrúa hvíta karl-
mannsins og ádeilu á hann, karlsins
sem vilji viðhalda heimsmyndinni og
sé á móti breytingum.
Marta ítrekar að verkið sé skop-
stæling með B-mynda-leikstíl, stór-
kostlegri tónlist og mikilli gleði og
leik. En er sýningin við hæfi barna
og þá yfir tíu ára aldri eða þar um
bil? Marta og Ilmur telja svo vera.
„Ég held að þetta sé hugvíkkandi
sýning fyrir krakka því þetta er svo
stór og skemmtilegur heimur sem er
verið að kynna og ég held að þetta
virki ímyndunaraflið,“ segir Marta.
„Og svo er bara gott að vita af frels-
inu strax,“ bætir Ilmur við.
Vinkonur Ilmur og Marta með Stóra sviðið í Borgarleikhúsinu í bakgrunni.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 16/3 kl. 20:00 Frums. Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 29. s
Sun 18/3 kl. 20:00 2. sýn Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Sun 6/5 kl. 20:00 30. s
Mið 21/3 kl. 20:00 aukas. Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Þri 8/5 kl. 20:00 31. s
Fim 22/3 kl. 20:00 aukas. Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s
Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Fös 11/5 kl. 20:00 33. s
Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Lau 12/5 kl. 16:00 34. s
Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s
Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Fös 18/5 kl. 20:00 36. s
Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas.
Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s
Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s
Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s
Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Lau 17/3 kl. 20:00 138. s Sun 9/9 kl. 20:00 140. s Fim 13/9 kl. 20:00 142. s
Fös 7/9 kl. 20:00 139. s Mið 12/9 kl. 20:00 141. s Sun 16/9 kl. 20:00 143. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s
Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s
Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s
Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s
Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s
Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Fös 13/4 kl. 20:00 Frums. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Sun 29/4 kl. 20:00 10. s
Lau 14/4 kl. 20:00 2. s Sun 22/4 kl. 20:00 6. s Mið 2/5 kl. 20:00 11. s
Sun 15/4 kl. 20:00 3. s Mið 25/4 kl. 20:00 7. s Fim 3/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 8. s Fös 4/5 kl. 20:00 12. s
Fim 19/4 kl. 20:00 4. s Fös 27/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 13. s
Fös 20/4 kl. 20:00 5. s Lau 28/4 kl. 20:00 9. s Sun 6/5 kl. 20:00 14. s
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn
Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn
Fim 22/3 kl. 19:30 Auka Fim 12/4 kl. 19:30 Auka Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn
Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn
Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn
Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 Auka Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn
Fös 6/4 kl. 19:30 Auka Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Fim 15/3 kl. 19:30 Auka Fös 16/3 kl. 19:30 Síðustu
Síðustu sýningar komnar í sölu
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn
Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn
Heillandi verk um höfnun og hindranir, baráttuna við niðurrifsöflin í mannssálin
Faðirinn (Kassinn)
Fim 15/3 kl. 19:30 26.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 28.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 30.sýn
Fös 16/3 kl. 19:30 27.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 29.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 31.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Ég get (Kúlan)
Sun 18/3 kl. 13:00 15.sýn Sun 25/3 kl. 13:00 Síðasta
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Efi (Kassinn)
Lau 17/3 kl. 19:30 18.sýn Mið 21/3 kl. 19:30 20.sýn
Sun 18/3 kl. 19:30 19.sýn Fim 22/3 kl. 19:30 21.sýn
Margverðlaunað og spennandi verk !
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00
Fim 22/3 kl. 20:00 Fesival Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Íslensku þjónustufyrirtækin
eru á finna.is
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?