Morgunblaðið - 15.03.2018, Blaðsíða 83

Morgunblaðið - 15.03.2018, Blaðsíða 83
prófa annað ljóð. Ég náði í Gyrðis- bækurnar mínar, en hann hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér. Ég prófaði að semja við titilljóð plötunnar „Dag- ar koma“ og það kom líka frekar fljótt svo ég ákvað að halda áfram með þetta. Síðan var hálf tilviljana- kennt hvernig ég valdi ljóðin, ein- hverjum mundi ég eftir og öðrum leitaði ég að.“ Samdi sig sjálft „Ég reyni alltaf að hafa nýja áskorun í hverju verkefni sem ég tek mér fyrir hendur. Ég hef mjög gam- an af því. Og fyrst þessi hugmynd kom til mín þá ákvað ég að klára hana. Ég gríp yfirleitt bara fyrsta hugboð sem ég fæ, tek fyrstu leiðina, fílinginn. Þetta gekk svo auðveldlega í fyrsta laginu, það bara samdi sig sjálft. Ég vildi fara þá leið með öll lögin,“ segir Jóel sem reyndi að end- urspegla anda ljóðsins í melódíunni. „Fundarboð“ eftir Þórarinn er t.d. mjög húmorískt ljóð og lagið einnig. „Ég hugsaði „Fundarboð“ sem svona föstudagslag. Þetta er svona seventís Rhodes fönkí, grúví lag af því að ljóð- ið var þannig. Svo tók ég upp lækinn hér fyrir utan. Lagið „Barðaströnd“ byrjar á læknum, það passar svo vel við ljóðið hans Gyrðis: Systurnar í morgunbirtu að sækja vatn í lækinn.“ Strákslega karlmannleg rödd „Mér finnst mjög gaman að vinna með söngvara í fyrsta skipti þótt ég hafi verið svolítið stressaður fyrst. Þess vegna þurfti ég líka að velja hann vandlega. Valdimar er frábær söngvari og mér finnst röddin í hon- um mjög áhugaverð. Hún liggur á milli þess að vera stráksleg og karl- mannleg. Svo er stór bónus að hann er flottur básúnuleikari og það bauð upp á þann möguleika að skrifa fullt af línum fyrir okkur tvo sem blásara. Hann rúllaði því upp, þótt sumt af þessu sé ekkert sérlega auðvelt að spila. Og hann gerir það í sömu at- rennu og hann er að syngja, hann heldur á básúnunni á meðan hann syngur.“ Jóel segir að upptökurnar hafi gengið ótrúlega vel. „Ég átti bara tvo daga bókaða sem er mjög tæpt fyrir hvaða verkefni sem er, en fyrst við erum á undan áætlun bætti ég við einu lagi alveg óundirbúnu. Eina lag- ið sem ég skrifaði ekki, var bara með textann. Það er ljóðið „Vatnsmýri“ eftir Sigurbjörgu. Ég lét þá bara fá textann og við vorum orðnir nett grillaðir í hausnum eftir tökurnar og ákváðum bara að kýla á þetta. Valdi- mar var auðvitað hikandi og vissi ekkert hvað hann átti að syngja, en gerði það síðan frábærlega. Einar byrjaði lagið mjög opið og speisí og datt svo í afró takt og það varð til eitthvað furðulegt grúv og allt fór á flug. Það var mjög skemmtilegt.“ Mun fylgja næstu hugmynd „Djass og íslensk ljóð eru heimar sem fara ágætlega saman. Ég á mörg ljóð eftir og mörg ljóðskáld, en ég veit auðvitað ekki hvaða hugmynd ég fæ næst, en ég mun fylgja henni. Á síðustu plötu spilaði Stórsveit Reykjavíkur tónlistina mína, sem var algjörlega allt annað dæmi, en mjög skemmtilegt líka og það kom vel út. Ég leyfi bara áhugasviðinu hverju sinni að leiða mig áfram.“ – Og hvenær verða tónleikar? „Útgáfutónleikar verða vonandi einhvern tímann með vorinu. Það er svo erfitt að ná þessum mannskap saman. Allir svo uppteknir,“ segir Jó- el og snýr sér aftur að félögum sín- um. „Eigum við ekki bara að henda inn einni alvöru töku?“ spyr Eyþór. „Jú, inn með’etta!“ svarar Jóel. Við leikmenn sökkvum ofan í sófann inni hjá Haffa tempó og fáum að leggja við hlustir. Göldróttur Einar galdraði fram ótrúlegustu grúv og allt fór á flug.Hæfileikaríkur Valdimar söng íslensku ljóðin af miklu listfengi auk þess að þeyta básúnuna sína. Einbeittir Eyþór og hljóð- maðurinn Hafþór Karlsson, eða Haffi Tempó, hlusta á tökurnar ásamt tónskáldinu. Á mbl.is má finna hljóðdæmi og myndband frá upptökunum í Sundlauginni. Líflegt Jóel segir mannskapnum til á meðan Valdimar ræðir við Valdimar. MENNING 83 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2018 Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI • Glerhandrið • Glerhurðir • Speglar • Glerveggir • Málað gler • Tvöfalt gler • Sturtuklefar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.