Morgunblaðið - 15.03.2018, Side 92
FIMMTUDAGUR 15. MARS 74. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Áhöfnin aldrei séð annað eins
2. Segir Ragnari Þór hafa mistekist
3. Ný meinvörp fundust í Stefáni …
4. Stephen Hawking látinn
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Bandaríska kammerstrengjasveitin
The Student String Chamber
Ensemble heldur hádegistónleika í
Grófinni í dag kl. 12.15. Á efnis-
skránni verða verk eftir Shostako-
vítsj, Vivaldi og Merle J. Isaac. Sveit-
in samanstendur af átta úrvals-
nemendum á aldrinum 12-18 ára frá
borginni Springfield í Missouri.
Kammerstrengjasveit
með hádegistónleika
Hringrás nefnist sýning Ólafar Ein-
arsdóttur sem opnuð verður í Borg-
arbókasafninu í Kringlunni í dag kl.
17.30. Þar lítur Ólöf til myndheims
sem handverk for-
tíðarinnar birtir
okkur sem helst
hefur verið sýni-
legur í handverks-
hefðum silfur-
smíði og tré-
skurðar. Hún
tengir þessi fornu
form nútímanum
með því að vinna
smærri myndverk og skartgripi með
hinni ævafornu vefnaðaraðferð
spjaldvefnaði og byggja á þeim form-
um, einkum hringforminu.
Hringrás opnuð í dag
Guðrún Ingimarsdóttir sópran-
söngkona og Lars Jönsson píanóleik-
ari koma fram í Hannesarholti annað
kvöld kl. 20. Á efnisskránni eru söng-
lög eftir Robert og Clöru Schumann
og Franz Schubert, við
ljóð eftir Friedrich
Rückert og J.W. Go-
ethe sem og lög
eftir Kurt Weill,
Friedrich Hol-
länder og Erich
Korngold.
Sungið um ástir
kvenna og örlög
Á föstudag Suðaustan 8-15 m/s, hvassast S- og A-lands. Rigning á
SA-landi og Austfjörðum og dálítil væta vestast á landinu.
Á laugardag Suðaustan 8-13 við SV-ströndina, en annars hæg-
ari. Dálítil væta við S-ströndina, en bjart með köflum fyrir norðan.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning í flestum landshlutum, einkum SA-til.
Hiti 2 til 8 stig, en heldur mildara en í gær.
VEÐUR
„Það verður að segjast alveg
eins og er að með Helenu
Sverrisdóttur í fararbroddi
eru Haukar líklegastir til að
klára þetta Íslandsmót með
stæl. Liðið hefur unnið núna
14 leiki í röð og ekki tapað
leik síðan Whitney Frazier
kom til liðs við það. Hún hef-
ur algjörlega smellpassað í
liðið og gert mjög gott lið
enn betra,“ skrifar Benedikt
Guðmundsson körfubolta-
sérfræðingur. »4
Haukakonur
eru afar líklegar
„Fyrst og fremst er ástæðan fyrir
þessari ákvörðun minni annir í
vinnu. Ég rek og á ásamt góðu fólki
ört vaxandi fyrirtæki í Vestmanna-
eyjum sem er í útflutningi á fersk-
um fiskafurðum. Það kallar á meiri
og meiri tíma og hefur gert í tölu-
verðan tíma. Dagarnir eru langir,
maður eldist og þarf meiri svefn,“
segir Arnar Pétursson sem hættir
þjálfun karlaliðs ÍBV í handbolta
eftir þetta tímabil.
»1
Dagarnir eru langir
og maður eldist
Talsverð tíðindi voru opinberuð þegar
Guðmundur Þ. Guðmundsson, lands-
liðsþjálfari í handknattleik karla, valdi
sinn fyrsta landsliðshóp eftir að hafa
nýlega verið ráðinn landsliðsþjálfari í
þriðja sinn á ferlinum. Fjórir nýliðar eru
í 20 manna hópnum, sjö leikmenn sem
voru í 16 manna landsliðshópnum á EM
í Króatíu eru fjarri góðu gamni, þar á
meðal Guðjón Valur Sigurðsson. »2-3
Talsverð tíðindi í fyrsta
liðsvali Guðmundar
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Nú þegar aðeins rúmar tvær vikur
eru til páska væri rétt að fara að
huga að kaupum á egginu sem maður
óskar sér, en salan gengur vel og vin-
sælar gerðir gætu selst upp.
„Hugmyndin fyrir þessa páska er
„eitthvað fyrir alla“, við erum því
með úrval af páskaeggjum og tókum
engar gerðir út frá í fyrra en bættum
þremur nýjum við,“ segir Silja Mist
Sigurkarlsdóttir, markaðsstjóri hjá
Nóa-Síríusi, og bætir við að sala á
páskaeggjum hafi byrjað snemma í
janúar síðastliðnum.
„Það eru saltlakkrísflögu- og sjáv-
arsaltsegg, byggt á vinsælasta
súkkulaðinu hjá okkur í ár, pipar-
kroppsegg og trítlaegg, en þetta eru
allt vinsælar vörur hjá okkur. Við er-
um enn með karamellu- og sjávar-
saltseggið sem var vinsælast í fyrra
og venjulega Nóakroppseggið og egg
með kettinum Gretti fyrir krakkana,
líka úr dökku súkkulaði fyrir þau
sem vilja. Eins erum við með ætilega
fígúru ofan á eggjunum núna, kanínu
úr hvítu súkkulaði og kanínu í lopa-
peysu,“ segir Silja Mist.
Fjórar gerðir af lakkríseggjum
„Við erum ekki með neinar nýj-
ungar þetta árið, höldum áfram með
piparlakkríseggið sem gerði allt vit-
laust í fyrra,“ segir Atli Einarsson,
viðskiptastjóri hjá Góu, en segir þó
að Íslendingar séu mjög nýjunga-
gjarnir og finnist alltaf gaman að
prófa eitthvað nýtt í sælgætinu.
„Lítið piparlakkrísegg númer eitt
er þó nýtt, það hefur selst eins og
heitar lummur síðan í janúar. Salan
fór snemma af stað og byrjar fyrr
með ári hverju. Við erum með sígilt
Góuegg, svo fjögur lakkrísegg;
hreinan lakkrís, fylltan lakkrís með
gulu eða bleiku marsípani og pipar-
lakkrísegg. Það er svo skemmtilegt
með marsípanlakkrísinn; fólki finnst
yfirleitt annar liturinn betri á bragð-
ið þótt litirnir séu í raun bragðlausir.
En fólk finnur mun. Sígildu eggin
seljast alltaf vel líka. Svo erum við
með hraunegg með rísi. Minnstu
eggin seljast mest hjá okkur eins og
öðrum, fólk er svo mikið að smakka.
Við erum svo með stærðir þrjú, fjög-
ur, fimm, sjö og níu. Lakkríseggin
eru í stærðum þrjú og fjögur.
Stærsta eggið er númer ellefu, það
selst ekki svo mikið en það er auðvit-
að bara fyrir mestu sælgætis-
æturnar.“
Sælgætisgerðin Kólus er með
Sambóegg, aðeins eina gerð, og fót-
bolta úr súkkulaði. „Við erum búin að
vera með páskaegg og páskabolta,
hvort tveggja 900 grömm, í nokkur
ár, en við seljum eingöngu í fjárafl-
anir, svo sem íþróttafélög og góð-
gerðarsamtök, við erum því ekki með
eggin okkar í verslunum. Við erum
með sælgæti frá okkur og erlent inni
í eggjunum,“ segir Snorri Páll Jóns-
son, framkvæmdastjóri hjá Kólus.
Eggin eru að seljast upp
„Við erum með nýtt páskaegg í ár,
djúpuegg. Í skelinni eru míní-djúpur,
mjög góðar,“ segir Davíð Þórisson,
sölustjóri hjá Freyju.
„Við komum með tvö ný egg í
fyrra, sterkdjúpuegg og saltkara-
melluegg, sem seldust upp vel fyrir
páska. Við erum svo með þessi klass-
ísku draumegg og rísegg sem eru
alltaf mjög vinsæl, mjólkurlaust egg
og sykurlaust líka, án viðbætts syk-
urs. Algengustu stærðirnar sem við
seljum eru fjögur og níu.“
Davíð segir páskana snemma í ár
og að eggin hjá þeim séu að seljast
upp, þó að þau séu enn til í búðunum.
Salan hafi byrjað á minnstu eggjun-
um á þrettándanum, því hafi fólk lík-
ast til byrjað að borða páskaegg áður
en það kláraði að taka niður jóla-
skrautið. „Sölutíminn er að lengjast,
í gamla daga voru kannski 80% af
sölunni síðustu þrjá til fjóra dagana
fyrir páska, en nú er fólk að kaupa
eggin miklu fyrr og borðar þau ekki
bara á páskadag.“ Auk sælgætis er
happdrættisleikur í öllum eggjum á
fæti frá Freyju.
Enginn sem Morgunblaðið ræddi
við ætlaði að breyta út af venju með
málshættina í ár.
Páskaegg seld síðan í janúar
Veðjað á að pip-
arlakkrísegg slái
í gegn þetta árið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vertíð Nú vinna sælgætisframleiðendur myrkranna á milli við að koma sem flestum páskaeggjum í verslanir um allt
land. Á síðustu árum hefur fjölbreytni eggjanna aukist til mikilla muna og valkvíðinn gerir vart við sig.