Morgunblaðið - 17.05.2018, Page 4
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 20184
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018
Stöndum saman og kaupum álfinn – fyrir unga fólkið
SÁÁ– til betra lífs
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Kynjahlutföll framboðslistanna á
höfuðborgarsvæðinu fyrir komandi
sveitarstjórnarkosningar eru nokk-
uð jöfn ef litið er til oddvita listanna
og efstu tíu framboðssætanna.
Alls voru samþykktir 49 fram-
boðslistar í sveitarfélögunum sex á
höfuðborgarsvæðinu. Í Kjósar-
hreppi, sem telst til höfuðborgar-
svæðisins, bárust engir framboðs-
listar og fer því óhlutbundin kosning
eða persónukjör fram í hreppnum.
Í Reykjavík eru fleiri konur en
karlar oddvitar á framboðslistum en
þar eru níu konur sem leiða lista á
móti sjö körlum. Þrjú sveitarfélög
eru með fleiri konur en karla sem
oddvita á listum og eru það Garða-
bær, Hafnarfjörður og Reykjavík.
Af þeim 16 framboðum sem bjóða
fram í Reykjavík eru 85 konur og 75
karlar í efstu tíu sætunum. Listarnir
með ójöfnustu kynjahlutföllin eru
hins vegar allir í Reykjavík. Kvenna-
hreyfingin er með ójöfnustu kynja-
hlutföllin en einungis konur skipa tíu
efstu sæti listans. Þar á eftir eru Ís-
lenska þjóðfylkingin, Frelsisflokkur-
inn og Karlalistinn en öll þrjú fram-
boðin eru með átta karla og tvær
konur í efstu tíu framboðssætum.
Höfuðborgarlistinn, Sósíalistaflokk-
ur Íslands, Borgin okkar – Reykja-
vík og Píratar eru svo öll með sjö
konur á móti þrem körlum í efstu tíu
sætum framboðslista sinna. Í öðrum
sveitarfélögum á höfuðborgarsvæð-
inu voru kynjahlutföll í tíu efstu sæt-
um framboðslista annaðhvort jöfn
eða skiptust 6 á móti 4, að undan-
skildum Miðflokknum í Kópavogi
sem er með sjö karla og þrjár konur í
efstu sætum listans.
Konur í forystu í Garðabæ
Fleiri konur en karlar eru oddvit-
ar í Garðabæ en þar eru þrjár konur
sem leiða lista og einungis einn karl.
Karlar eru hins vegar í meirihluta
frambjóðenda í efstu tíu sætum en
22 karlar og 18 konur skipa tíu efstu
sætin á framboðslistum í Garðabæ.
Í Hafnarfjarðarbæ eru fimm kon-
ur oddvitar framboðslista og þrír
karlar. Kynjahlutföllin eru einnig
nokkuð jöfn af frambjóðendum í tíu
efstu sætunum en 42 karlar og 38
konur eru þar í framboði.
Í Kópavogi eru sex karlar oddvitar
framboðslista en einungis 3 konur.
Alls eru 48 karlar í efstu tíu sæt-
unum í Kópavogi og 42 konur.
Karlar leiða fleiri lista á Nesinu
Á Seltjarnarnesi eru karlar odd-
vitar þriggja framboðslista en ein-
ungis ein kona leiðir lista á Nesinu.
Kynjahlutföll frambjóðenda í efstu
tíu sætunum eru hins vegar hnífjöfn
og eru 20 konur og 20 karlar í tíu
efstu sætum. Í Mosfellsbæ eru svo
sex karlar sem leiða framboðslista á
móti tveimur konum. Hins vegar eru
fleiri konur í framboði í Mosfellsbæ,
alls 44 konur í efstu tíu sætunum á
móti 36 körlum.
Kynjahlutföll framboða nokkuð jöfn
Konur oddvitar á 9 framboðslistum í Reykjavík Karlar 53% oddvita á framboðslistum á höfuðborg-
arsvæðinu Framboðslistarnir með ójöfnustu kynjahlutföllin í efstu tíu sætunum eru í Reykjavík
Kynjahlutföll oddvita framboðanna á höfuðborgarsvæðinu
Konur Karlar
23 26
47%
53%
Hafnarfjörður
35
konur karlar
Alls 8
framboðs-
listar
Höfuðborgarsvæðið alls
Seltjarnarnes
3
1
kona
karlar
Alls 4
framboðs-
listar
Garðabær
3
konur
1
karlAlls 4
framboðs-
listar
Mosfellsbær
6
2
konur
karlar
Alls 8
framboðs-
listar
Reykjavík
79
konur karlar
Alls 16
framboðs-
listar
Kópavogur
63
konur karlar
Alls 9
framboðs-
listar
Alls eru 49 flokkar og framboð í
Reykjavík, Garðabæ, Hafnarfirði,
Kópavogi, Mosfellsbæ og á
Seltjarnarnesi
23 konur leiða þessaframboðslista og
26 karlar leiða framboðslistaá höfuðborgarsvæðinu
Efstu 10 sæti lista á höfuðborgarsvæðinu
243 karlar
247 konur
Morgunblaðið/Eggert
Sveitarstjórnarkosningar Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hafin í
Smáralindinni í Kópavogi. Kjördagur er 26. maí næstkomandi.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Elsti frambjóðandi landsins er líklega Guðrún Glúms-
dóttir en hún fagnaði 100 ára afmæli fyrir tæpum mán-
uði síðan. Guðrún býður sig fram í 14. sæti Ð-lista
Framtíðarinnar í Þingeyjarsveit en hún er búsett að
Hólum í Reykjadal.
Guðrún segist alltaf hafa haft nokkurn áhuga á
stjórnmálum þó hún hafi lítið tekið þátt í þeim sjálf. Að-
spurð hvað hafi orðið til þess að hún ákvað að taka sæti
á lista segir Guðrún: „Það var ekkert sérstakt. Þeim
fannst svo ágætt að hafa mig þarna í heiðurssætinu.
Mér var alveg sama.“
Þrátt fyrir það segir Guðrún að það sé ýmislegt sem á
henni brennur. „Maður er nú mikið að hugsa þegar
maður er orðinn svona gamall. Ég er nú helst að vona
að allt sé sem best á landinu bara, og að fólk sé hraust,“
segir Guðrún.
Jóna Björg Hlöðversdóttir, oddviti Ð-listans í Þing-
eyjarsveit, segir að nafn Guðrúnar hafi komið snemma
upp þegar rætt var um hvern ætti að skipa í heið-
urssætið. „Hún var auðvitað nýbúin að fagna hundrað
ára afmæli en svo hefur hún líka skoðanir á samfélag-
inu,“ segir Jóna og bætir við að Guðrún hafi verið hæst-
ánægð með að hafa verið boðið sæti á lista. Aðspurð
hvort hár aldur Guðrúnar hafi haft áhrif á það að henni
var boðið sæti á lista Framtíðarinnar segir Jóna: „Okk-
ur fannst þetta bara viðeigandi. Við erum líka með
frambjóðanda sem er nýorðinn átján ára svo við vildum
hafa lista sem er lýsandi fyrir samfélagið“. Jafnframt
segir Jóna að hún hafi einungis fengið jákvæð viðbrögð
frá fólkinu í kringum sig við því að Guðrún hafi fengið
sæti á lista.
Guðrún hefur alla ævi búið í Reykjadal í Þingeyj-
arsveit en aðspurð hvernig það hafi verið að alast þar
upp segir hún: „Ég ólst upp við mikið frjálsræði. Það
voru ekki miklar hömlur á unglingum og ungu fólki á
þessum tíma. Ég borðaði mikið af fiski, gulrófum,
mjólk og súru slátri. Það er svo gott!“
Guðrún fékk litla menntun en segist þó hafa fengið
að fara í farskóla öðru hverju. „Það var ekki mikið
kennt í barnaskóla þegar ég var krakki. Annað slagið
var eitthvað kennt á bæjum. Nú læra allir og eru nán-
ast alla ævina í skóla“ segir Guðrún og bætir hlæjandi
við: „En þrátt fyrir það finnst mér fólk ekkert betur að
sér í mörgum hlutum.“
100 ára í framboði
14. sæti Guðrún Glúmsdóttir er 100 ára og í framboði.
Elsti frambjóðandi landsins er á lista Framtíðarinnar
Leikmenn í meistaraflokkum Aftur-
eldingar í blaki og handbolta hafa
skorað á frambjóðendur í sveit-
arstjórnarkosningum í Mosfellsbæ að
endurnýja gólfefnin í íþróttasölum að
Varmá.
„Það fylgir því mikil ábyrgð og er í
raun óásættanlegt að bjóða afreks-
fólki í íþróttum og yngri iðkendum
upp á þessar aðstæður, vitandi fullvel
að gólf sem þessi ýta undir að hluti
iðkenda mun þróa með sér stoðkerf-
isvandamál og álagsmeiðsli. Bak-,
mjaðma-, hné- og ökklameiðsli sem
eru óafturkræf.“
Nýja íþróttahúsið að Varmá var
tekið í notkun árið 1998 og er Aftur-
elding eina félagið í efstu deild karla í
handbolta sem leikur á dúk. Blakdeild
Aftureldingar æfir og spilar í gamla
íþróttasalnum, en þar var dúkur lagð-
ur beint ofan á steypu á sínum tíma.
Afturelding skorar á frambjóðendur að
endurnýja gólf íþróttahússins að Varmá