Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 16
16 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018 Smart sumarföt, fyrir smart konur. Holtasmári 1 201 Kópavogur sími 571 5464 Str. 38-52 Morgunblaðið/Atli Vigfússon Með fulla bakka Trjáplöntur tilbúnar til gróðursetningar, f.v. Lee Croat, Caitlin Wilson, Haukur Þór Ísfeld Helgason og Harald Schalter. Atli Vigfússon laxam@simnet.is Sandurinn í útjaðri Aðaldals-hrauns er laus í sér og í ár-anna rás hefur sandfokiðleikið landið hart sem er opið fyrir öllum vindáttum. Fólkið sem þangað var mætt hefur það að markmiði að bæta umhverfið með uppgræðslu og nýtur þess að rækta með sameiginlegu átaki. Græðum Ísland eða CARE-Rewilding Ice- land, eins og verkefnið er kallað á ensku, er sjálfboðaliðaverkefni um- hverfissamtakanna Landverndar þar sem hópum gefst kostur á að leggja sitt af mörkum í að bæta gróður- og jarðvegsauðlind landsins og binda kolefni í leiðinni. Mark- miðið er að vinna sjálfboðaliða- verkefni þar sem landslag er þann- ig að erfitt er að komast að með tæki og því þarf margar hendur til þess að sá fræjum, bera á tilbúinn áburð og gróðursetja plöntur. Árið 2017 var fyrsta ár þessa verkefnis og um 250 sjálfboðaliðar, erlendir og innlendir, tóku þátt í að setja niður 16.000 birkigræðlinga í Hekluskógum við Þjófafoss og bor- inn var áburður á um 40 hektara. Unnið hefur verið í samstarfi við Landgræðslu ríkisins og sendiráð Bandaríkjanna styrkti byrjunarárið og sérstaklega útvíkkun verkefnis- ins á Norðurlandi 2018. Þá eru um- hverfis-og auðlindaráðuneytið, Ferðafélag Ísland og Wowair einnig styrktaraðilar. Margar hendur vinna létt verk Fyrsti hópurinn til að koma í Græðum Ísland árið 2018 var frá háskólanum í British Columbia í Kanada, nánar tiltekið frá Vancouv- er. Hópurinn samanstóð af 21 nem- enda og tveimur kennurum og dvöldu þau hér í nær þrjár vikur við hin ýmsu verkefni. Hjá Land- vernd í þessu átaki var Caitlin Wil- son verkefnistjóri, en hún sér um verkefnið Græðum Ísland. Sam- starfsaðili er Landgræðslan og voru þau Sigríður Þorvaldsdóttir og Þor- lákur Páll Jónsson, sem bæði starfa í Þingeyjarsýslum, verkstjórar sjálfboðaliðanna og ráðgjafar í framkvæmdinni. Dagurinn í Aðaldalshrauni var aðeins eitt stopp af mörgum í ferð þessa sjálfboðaliðahóps þar sem nemendur skoðuðu og lærðu um náttúru Íslands og sjálfbærni. Þetta var einn dagur þar sem mikið var unnið og mikið gerðist. Það felst í því talsverð áskorun að koma gróðri á skrið í svona umhverfi. Allt frá síðustu öld hefur mikið verið unnið í því að gera yfirborðið stöðugra m.a. með beitarfriðun og landgræðsluað- gerðum þ.e. með dreifingu á til- búnum áburði og sáningum. Verk- efni sjálfboðaliðanna var fjölbreytt, en ríflega 1000 víðiplöntum var plantað og dreift var úr gömlum heyrúllum. Auk þess var miklu af melgresisfræi handsáð í krappar og sendnar dokkir og sandskafla þar sem erfitt er að athafna sig með sáðvél. Þá var fræinu einnig rakað niður í sandinn til þess að festa það og tilbúinn áburður settur yfir. Þannig vonast þeir sem að verkefn- inu vinna til þess að gróðurþekjan á svæðinu aukist. Dagurinn var mjög ánægjulegur Lee Croat, kennari sjálfboða- liðanna, var mjög ánægður með þessa ferð til Íslands og sagði að hann hlakkaði alltaf til þess að koma, en hann hefur komið hingað með hópa í mörg ár í röð og segir að það sé alltaf jafn gaman. „Landið ykkar er dásamlega fallegt, en það þarf að rækta það og græða. Það er svo ánægjulegt að gera gagn og þetta er dásamleg upplifun fyrir nemendur okkar í há- skólanum í Vancouver,“ sagði hann og brosti. Sjálfboðaliðarnir voru sammála, enda allir mjög ánægðir með daginn í Aðaldalshrauni og sögðu að það væri virkilega gaman að græða landið. Gaman er að græða landið Það var margt um manninn í útjaðri Aðal- dalshrauns dag einn í síðustu viku á stað þar sem hraunið er úfið og illt yfirferðar. Þar var hátt á þriðja tug áhuga- fólks um landgræðslu saman komið til að leggja hönd á plóginn til þess að styrkja gróður- þekjuna sem er ákaflega rýr og viðkvæm. Fræi og áburði útdeilt Sigríður Þorvaldsdóttir og Þorlákur Páll Jónsson eru hér að taka til fötur, svo allir sjálfboðaliðar fái verk að vinna. Melfræ í fötum Brosmildir sjálfboðaliðar á leið til sáningar, F.v. Blake Pelequin, Cameron Houchmand, Maria Vas og Shea Thorne. Til í slaginn Felix Finnbogi Brötzmann slóst í för með fólkinu og bar á. Tekist á við heyrúllur Það þarf að leysa úr rúllunum, en sjálfboðaliðunum fannst það mjög gaman.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.