Morgunblaðið - 17.05.2018, Page 67
67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018
SÖLUAÐILAR
Reykjavík:
Gullbúðin Bankastræti 6 s:551-8588
Meba Kringlunni s: 553-1199
Michelsen Úrsmiðir Kringlunni s: 511-1900
Michelsen Úrsmiðir Laugavegi 15 s: 511-1900
Kópavogur:
Klukkan, Hamraborg 10 s: 554-4320
Meba Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður:
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar
s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49
s: 421-5757
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi
s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður
Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður
Austurvegi 11 s: 482-1433
Vestmannaeyjar:
Geisli Hilmisgötu 4 s: 481-3333
Laugardaginn 2. júní n.k. fer fram
nokkuð áhugavert fjölskylduhlaup
við Rauðavatn en tilgangur þess
er að safna íþróttaskóm fyrir börn
og ungmenni í Nígeríu. Hlaupið
verður 3,5 km hindrunarhlaup
kringum Rauðavatn og er þátt-
tökugjaldið eitt vel með farið par
af íþróttaskóm sem sendir verða
með DHL til SOS Barnaþorpanna
í Nígeríu.
90 milljónir ungmenna
undir 18 ára aldri
Nígería er þéttbýlasta land Afr-
íku og það sjöunda fjölmennasta í
heimi. Þar búa 186 milljónir
manna, þar af 90 milljónir ung-
menna undir 18 ára aldri og er
það þriðja hæsta ungmennahlut-
fall allra þjóða í heimi. Þó landið
sé ríkt af auðlindum er misskipt-
ing mikil og yfir 60 prósent íbúa
lifa undir fátæktarmörkum. SOS
Barnaþorpin eru stærstu einka-
reknu barnahjálparsamtökin í
heiminum sem sérhæfa sig í að út-
vega munaðarlausum og yfirgefn-
um börnum heimili, foreldra og
systkini. Um 9 þúsund Íslendingar
eru SOS styrktarforeldrar og fá
reglulega sendar myndir og fréttir
af sínu barni úti í heimi. Starfsemi
samtakanna á Íslandi miðar að því
að afla styrktaraðila fyrir hjálp-
arstarf samtakanna í 126 löndum.
Um 25 þúsund Íslendingar styrktu
SOS barnaþorpin á síðasta ári,
meðal annars sem styrktarfor-
eldrar, barnaþorpsvinir og fjöl-
dskylduvinir. 130 Íslendingar
styrkja verkefni samtakanna í
Nígeríu með mánaðarlegum fram-
lögum. Alls 82% af framlögum Ís-
lendinga á síðasta ári runnu beint
til verkefna SOS Barnaþorpanna
og kostnaðurinn því lítill við starf-
semi samtakanna hér á landi.
Margþætt markmið
með hlaupinu
SOS Barnaþorpin á Íslandi,
Morgunblaðið, Mbl.is og K100
standa að fyrrgreindu fjöl-
skylduhlaupi sem er undir yfir-
skriftinni Skór til Afríku. En af
hverju varð Nígería fyrir valinu?
„Okkur þótti það tilvalið því Ís-
land og Nígería eru saman í riðli á
HM í fótbolta í júní og það eru
fjögur SOS Barnaþorp í Nígeríu.
Það eru 320 einstaklingar í 46 fjöl-
skyldum í þessum þorpum en
miklu fleiri njóta aðstoðar okkar í
gegnum sérstaka fjölskyldueflingu
samtakanna. Þessir skór munu því
koma að góðum notum,“ segir
Hans Steinar Bjarnason, upplýs-
ingafulltrúi SOS Barnaþorpanna á
Íslandi. Hulda Bjarnadóttir, sem
stýrir verkefninu fyrir hönd Ár-
vakurs segir hugmyndinni ætlað
að ná utan um heilbrigðan lífstíl
og góða samverustund en einnig
að þau verðmæti sem margir Ís-
lendingar eiga í skápunum sínum
fái nýtt notagildi.
Velgjörðarsendiherrar
gefa skó
„Það er með ólíkindum að fá-
tæktin sé svona mikil í eins ríku
landi og Nígería er. Og erfitt að
horfa á þetta héðan úr norðrinu
og geta lítið gert! En lítið er samt
betra en ekkert og þessvegna
finnst mér þetta fjölskylduhlaup
alveg bráðsniðug leið til að sýna
stuðning og vináttu í verki við
þjóð sem tengist okkur á HM.
Svona gera heimsmeistarar! Þetta
frábært tækifæri til að gera sér
glaðan dag með fjölskyldunni og
láta um leið gott af sér leiða í
sumarblíðunni“ segir söngkonan
og fasteignasalinn Hera Björk
sem er einn af þremur velgjörð-
arsendiherrum SOS Barnaþorp-
anna á Íslandi. Því embætti gegna
líka forsetafrúin Eliza Reid og Vil-
borg Arna Gissurardóttir, ævin-
týrakona og pólfari.
Hlaupið hefst klukkan 10 að
morgni laugardagsins 2. júní og
stendur skráning í það yfir á
hlaup.is og mbl.is.
k100@k100.is
Íþróttaskór Íslendinga til
ungmenna í Nígeríu á HM-ári
Laugardaginn 2. júní fer fram nokkuð skemmtilegt
fjölskylduhlaup við Rauðavatn með margþættan til-
gang. Þátttökugjaldið er vel með farið íþróttaskópar.
Láta verkin tala Frú Eliza Reid, Vilborg Arna og Þorgrímur Þráinsson gáfu íþróttaskó sem sendir verða til Nígeríu.