Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 56
Elínrós Líndal elinros@mbl.is Hvaða þýðingu hefur heimili fyrir þig? „Heimilið er mér mikilvægt enda heldur það utan um okkur fjölskyld- una, þar slær hjartað. Mér finnst mikilvægt að heimilið endurspegli þá einstaklinga sem búa þar, hvað þeir standa fyrir, hvert þeir hafa ferðast á ævinni, hvaða bækur þeir hafa lesið og hvernig list þeir kunna að meta.“ Hvað skiptir þig mestu máli heima fyrir? „Að heimilið sé fullt af jákvæðri orku og ást, að öllu heimilisfólkinu líði vel og finni þar ró en að sama skapi hafi rými til að ærslast, skapa, hafa gaman, vaxa og dafna. Bestu stundirnar á heimilinu eru þegar öll fjölskyldan er að bralla eitthvað saman og eiga kósístundir að tefla, spila eða horfa á góða kvikmynd. Mér finnst einnig gaman að hafa fal- lega hluti í kringum mig eins og fal- lega myndlist, síðan er góð tónlist nauðsynleg til að skapa góða stemn- ingu.“ Hvað keyptir þú þér síðast inn á heim- ilið? „Við vorum að setja nýtt gólfefni á efri hæðina í húsinu og keyptum því inn nýja hluti í herbergi tvíburanna okkar, Úlfs og Loka, skrifborð og hillur. Síðan bíðum við spennt eftir að fá afhent málverk eftir snillinginn hana Gabríellu Friðriksdóttur, þá verður fagnað.“ Áttu þér uppáhaldshorn eða -svæði í húsinu? „Uppáhaldshornið í húsinu er í stofunni, ég elska að setjast í sófann með góða bók og fara inn í heim skáldskapar og fræða. Morgunkaffi á veröndinni á sumrin er algjört æði. Síðan er ekkert dýrmætara en lesa fyrir strákana mína uppi í svefn- herbergi.“ Ertu að tileinka þér eitthvað nýtt þeg- ar kemur að heimilinu? „Ég er að kenna 10 ára strákunum mínum að elda. Þeir hafa frá unga aldri tekið þátt í því að undirbúa mál- tíðir með mér, líkt og sá elsti minn, Gabríel, en nú er komið að því að þeir eru einnig að stýra þessu stundum sjálfir. Þetta er mín leið til að hafa gaman í eldhúsinu og að búa til kvöldmat með kútunum mínum. Núna þegar byrjað er að birta mikið þá skiptir máli að skapa ró á heim- ilinu á kvöldin eftir allt fjörið yfir daginn og nú er ég byrjuð að fara með tvíbbana mína í smá jóga áður en þeir fara að sofa.“ Áttu þér draumahlut eða -verkefni sem þig langar að fara í næst heima? „Við erum búin að vera nánast stanslaust í framkvæmdum síðustu ár, þannig að það er svo sem allt orð- ið nokkuð klárt. Var þó að hengja upp ljós sem ég keypti í Marrakech og er súper-ánægð með það. Ég veit að það er viss stemning hjá flestum í fjölskyldunni að setja heitan pott út í garð. Ég vona bara að það muni ekki draga úr sundferðum fjölskyldunnar sem eru algjörlega lífsnauðsyn- legar.“ Hefur heimili þitt breyst með ár- unum? „Heimilið mitt er búið að taka miklum breytingum á þeim árum sem ég hef búið hér, þetta er hálfgert Barbapabbahús, við höfum verið að bæta við herbergjum eftir því sem fjölskyldan hefur stækkað. Börnin okkar eru fjögur og húsið hefur nán- ast tvöfaldast að stærð samhliða stækkun fjölskyldunnar.“ Af hverju býrðu þar sem þú býrð? „Upphaflega flutti ég í miðbæinn til að búa með manninum mínum sem var búinn að koma sér fyrir hér, síðan eru liðin 17 ár. Bjó lengi er- lendis en bjó líka mikið í Vestur- bænum. Það hefur aldrei verið jafn skemmtilegt að búa í miðbænum og í dag þegar bærinn er að taka á sig borgarmynd. Ferðamennirnir gæða borgina lífi og skapa góða stemn- ingu, síðan er það frábært að geta farið allra sinna ferða gangandi eða hjólandi.“ Manstu eftir húsi eða stað sem þú komst á í æsku og hafði áhrif á hvern- ig þú hugsar um heimili í dag? „Já, ég á góðar minningar frá mörgum heimilum frá því í æsku og þegar ég var búsett erlendis eða á ferðalögum. Þau kynni hafa sann- arlega haft áhrif á það hvernig mitt heimili er, t.a.m. heimili vinar míns þar sem móðir og vinkonur hans ræddu iðulega jafnréttismál og önn- ur heimsins mál við eldhúsborðið, heimili æskuvinkonu minnar, þar var allt fullt af börnum og alltaf líf og fjör, heimili fjölskyldu sem ég fékk að búa hjá í stutta stund í Mexíkó. Einnig kynntist ég yndislegri fjöl- skyldu í Texas þegar ég bjó þar og naut þess að fá að kynnast þeim og fá að vera inni á þeirra heimili sem var frábrugðið þeim heimilum sem ég hafði kynnst á Íslandi. Planið var alltaf að eignast hús fullt af börnum, þar sem væri líf og fjör alla daga.“ Hvernig manneskja ertu heima fyrir? „Vonandi skemmtileg eins og í vinnunni.“ Lestu bækur? „Já, elska að lesa góðar bækur, helst sagnfræðilegar ævisögur, heimspeki, skáldsögur og al- þjóðastjórnmál. Ég er loks byrjuð á Napólí-fjórleik Elenu Ferrante, Framúrskarandi vinkona, hún lofar góðu, síðan er ég einnig að lesa Homo Deus eftir sagnfræðinginn Yuval Noah Harari þar sem hann spekúlerar um þróun mannkynsins til framtíðar, afar fróðleg lesning.“ Hálfgert Barbapabbahús Soffía Sigurgeirsdóttir er almannatengill og viðskiptastjóri hjá KOM. Hún býr í fallegu húsi í miðborginni og er með gott auga fyrir hönnun og rými. Húsið hennar hefur stækkað með fjöl- skyldunni. Ævintýralegt Ljós sem er nýkomið upp og var keypt í Marrakech. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Huggulegt í 101 Fallegt útisvæði fyrir utan húsið hennar Soffíu. Soffía er með hlýlegan stíl Uppáhaldshornið í húsinu er í stofunni. Þar elskar Soffía að sitja í sófanum með góða bók og fara inn í heim skáldskapar og fræða. Fjölskyldan Soffía Sigur- geirsdóttir með sonum sínum Úlfi og Loka. 56 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.