Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 80
80 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018
Forlagið efndi síðastahaust til samkeppni umbókmenntatexta eftiróútgefna höfunda undir
yfirskriftinni
Nýjar raddir.
Þrjár sögur voru
verðlaunaðar nú
í vor og gefnar
út rafrænt.
Allavega eftir
Ernu Agnesi
Sigurgeirsdóttur
er ein þeirra. Í
henni segir frá
ungri konu sem
rifjar upp atburði úr lífi sínu m.a
þegar hún flutti til útlanda í nám.
Þetta er fyrstu persónu frásögn
brotin upp með orðinu „allavega“
en þeim sem liggur mikið á hjarta
nota það gjarnan til að brjóta upp
frásagnir sínar og ná athygli hlust-
andans. Það gerist margt í kolli
aðalpersónunnar sem berst við að
koma böndum á hugsanir sínar og
líf en hún er að kljást við: „Hug-
lægt myrkur. Myrkur sem býr inni
í huganum. Inni í sálinni. Inni í
vitundinni.“
Myrkrið veldur henni mikilli
vanlíðan auk kvíða og þráhyggju
sem endurspeglast vel í sögunni.
Það er heillandi hvernig sögu-
persónan segir sögur af sjálfri sér
og fjölskyldu sinni. Hún rifjar ým-
islegt upp í svolitlu flaustri og er
sagan sett fram eins og hugurinn
sem á það til að stökkva hingað og
þangað enda segir sögupersónan
það í lokin að þetta sé kannski
meira eins og ein löng hugsun en
saga. Samhengislaus en þó ekki.
Sagan byrjar á upprifjun „ég
man“ og síðan fer sögupersónan
um víðan völl í lífi sínu en í lokin
er hún komin í nútímann og það
virðist sem lífið sé á réttri braut.
Hún er að kljást við myrkrið en
samt er einhver léttleiki yfir frá-
sögninni, húmor. Höfundurinn
virðist hafa góð tök á stíl og frá-
sögn og er vel skrifandi. Allavega
er fersk saga og góð aflestrar.
Í sögunni segir frá Lenu sem er
ung kona. Hún var í ofbeldis-
sambandi sem hún er laus úr en
glímir við miklar eftirstöðvar. Alex
sambýlismaður hennar braut hana
niður svo rækilega að hún kemur
sér ekki saman aftur af sjálfs-
dáðum. Lena
lýsir því hvernig
Alex yfirtók
hana og hvernig,
eftir sambands-
slitin, hún ein-
angrar sig. Því
er lýst á trú-
verðugan hátt
hvernig ofbeldi
getur haft áhrif
á manneskjuna, sem er alltaf
hrædd og óttaslegin og uppfull af
efasemdum um sjálfan sig.
Það birtir til í lífi Lenu þegar
hún tekur þá erfiðu ákvörðun að
mæta í starfsmannapartí í
vinnunni þar sem hún kynnist Övu.
Ava virðist vera einstök mann-
eskja sem hefur góð áhrif á Lenu
og dregur hana út úr skelinni,
hjálpar henni að byggja sig upp.
Þetta er fyrstu persónu frásögn
Lenu þar sem hún segir frá lífi
sínu í nútímanum en lítur líka til
baka á tíma sinn með Alex og er
sá texti aðskilinn frá hinum með
skáletri.
Lena veltir mikið fyrir sér
hvernig hún varð svona undirgefin
Alex, hún sem hafði haldið sig
sterka. En hún kemst að því að
hún var aldrei sterk og sjálfstæð
a.m.k ekki í kringum karlmenn.
„Einhvers staðar á lífsleiðinni
hafði þeirri hugmynd verið plantað
í kollinn að karlmenn vissu betur,
ættu réttinn.“ Lena er ekki bara
að kljást við tíma sinn með Alex
heldur allt feðraveldið sem hefur
alið hana upp í að hún eigi að vera
þæg og góð stúlka.
Sagan er vel skrifuð og vel upp-
byggð. Höfundur nær að gefa les-
andanum trúverðuga innsýn inn í
líf niðurbrotinnar konu sem reynir
að finna styrk sinn. Það vantar að-
eins kjöt á bein sögunnar, meiri
dýpt og persónusköpunin hefði
mátt vera sterkari, t.d er hin ör-
lagaríka Ava máluð ósköp daufum
litum.
Undir yfirborðinu er fyrsta verk
höfundar og lofar góðu um það
sem vonandi koma skal.
Í Tinder match segir frá ungum
karlmanni að vestan sem býr hjá
aldraðri frænku sinni í Reykjavík
á meðan hann
stundar há-
skólanám. Þetta
virðist vera
prýðispiltur sem
missir tökin á
lífinu með því að
skrá sig fyrir
rælni á Tinder
þar sem hann
kemst í kynni
við undarlega
stúlku. Sagan byggist mikið upp á
samtölum þeirra á milli í gegnum
netið, oftast klúrum. Þau samtöl
eru of fyrirferðarmikil í sögunni,
langdregin og leiðinleg. Einnig
stangast þau á við lýsinguna á pilt-
inum sem gengur vel í námi og er
með fæturna á jörðinni, í Tinder
samtölunum verður hann hálf-
gerður vitleysingur.
Pilturinn og stúlkan tala heil-
lengi saman en ná aldrei að hitt-
ast. Líf piltsins fer líka að taka
breytingum á sama tíma, andrúms-
loft heima hjá frænku hans er
furðulegt og undarlegir atburðir
fara að henda hann. Pilturinn
missir smám saman tök á lífinu og
ákveður að gefa námið upp á bát-
inn og fara aftur heim til foreldra
sinna fyrir vestan.
Það er mikill byrjendabragur á
þessari sögu sem er of langdregin
og einsleit auk þess sem persónu-
sköpunin er ótrúverðug og vantar
nánari útskýringar á ýmsu. Höf-
undi tekst þó vel til við að láta ein-
hvern óhugnað hanga yfir sögunni
í lengri tíma, sem drífur lesandann
áfram, og þá er endirinn óvæntur
og áhugaverður.
Allir þurfa að kljást við sjálfa sig
Ljósmynd/Eldar Ástþórsson
Nýjar raddir Hörður Andri Steingrímsson, Erna Agnes Sigurgeirsdóttir
og Tanja Rasmussen eru nýjar raddir Forlagsins 2018. Sögurnar voru
gefnar út sem rafbækur.
Skáldsögur
Allavega bbbnn
Eftir Ernu Agnesi Sigurgeirsdóttur.
Forlagið 2018.
97 bls.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
BÆKUR
Undir yfirborðinu bbmnn
Eftir Tönju Rasmussen.
Forlagið 2018.
80 bls.
Tinder Match bnnnn
Eftir Hörð Andra Steingrímsson.
Forlagið 2018.
145 bls.
SJÓNMÆLINGAR
Í OPTICAL STUDIO