Morgunblaðið - 17.05.2018, Síða 60
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Eigendur staðarins, þeir Óli Már Óla-
son, Andri Björn Björnsson og Guð-
mundur Finnbogason ákváðu þá að grípa
tækifærið og láta langþráðan draum um
að opna bruggsmiðju rætast. „Úr því að
staðan var svona var alveg eins gott að
nýta tímann meðan mestu framkvæmd-
irnar stæðu yfir til að leggjast í fram-
kvæmdir sjálfir, segir Óli í samtali við
Matarvefinn. „Okkur hafði lengi dreymt
um bruggsmiðju og við létum slag
standa. Við náum vonandi að opna í dag,“
bætir hann við en ljóst er að unnendur
góðs bjórs og frábærs matar eiga gott í
vændum.
Staðurinn heitir Bastard Bres & Food
og öll hönnun er hin glæsilegasta. Mikið
er lagt upp úr að gestir geti setið þægi-
lega og dansgólfið heyrir sögunni til.
„Eldhúsið er opið frá 11.30 – 22.00 alla
daga. Á matseðlinum er boðið upp á rétti
eins og stökk „flatbread“ í ýmsum út-
færslum, smá-taco, hamborgara, Louis-
iana kjúkling, osta- og kjötskurðarplatta
og fleira. Eins verður hægt að fá brunch
og fisk dagsins fyrri hluta dag,“ segir Óli
aðspurður um matseldina.
Eigin bjór og craft kokteilar
„Við erum nú með tvo bjóra sem við
ætlum að byrja að keyra á, ásamt á ann-
an tug bjóra frá öðrum brugghúsum og
góðu úrvali af bjór á flöskum. Einnig
verðum við með metnaðarfulla craft kok-
teila á boðstólnum þar sem meðal annars
er búið að gera stílfæringu á drykkjum
eins og Moscow Mule og Aperol Spritz.
Mikið úrval er af hinum ýmsu romm-,
viskí- og gintegundum ásamt fjölda af
mismunandi stílum af tonic og ævintýra-
legum gin og tonic pörunum,“ segir Ólaf-
ur um úrvalið á barnum og bætir því við
að tónlistin verði lífleg og þægileg þar
sem komi saman rokk, soul, fönk og
diskó. Plötusnúðar muni síðan mæta á
svæðið um helgar og halda uppi stuðinu
fram á nótt.
Vegamót breytast í Bastard
Það varð mörgum tölvert áfall þegar fregnir bárust af því í fyrra að Vegamót hefðu lokað. Sá skemmtilegi staður hafði verið
hluti af veitinga- og skemmtanalífi borgarinnar í árafjöld og því mikill missir. Tilurð lokunarinnar var þónokkuð tregablandin
en hana mátti rekja til framkvæmda við nærliggjandi hótel sem hafði í för með sér lokun á Vegamótastíg og verulega tak-
mörkun á útisvæði þar sem eitt stykki byggingarkrani var búinn að koma sér haganlega fyrir.
Brugghús Bruggaðar eru
tvær tegundir á staðnum.
Morgunblaðið/Hari
Ný Vegamót Aðdáendur Vega-
móta geta tekið gleði sína því
Bastard lofar sannarlega góðu.
Myndarlegur á barnum Guðmundur
Finnbogason, einn eigenda Bastard,
tekur sig vel út á barnum.
Bruggað á efri
hæðinni Búið er
að breyta efri
hæðinni í brugg-
hús þar sem hægt
er að fylgjast með
bruggferlinu..
Sérdeilis svalur Mikið
hefur verið lagt upp úr
hverju smáatriði eins og sést.
60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018