Morgunblaðið - 17.05.2018, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 17.05.2018, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018 Meghan og Harry verða gefin sam- an klukkan 12 á laugardaginn. Erki- biskupinn í Kantaraborg, Justin Welby, gefur þau saman og Michael Curry, prestur í söfnuði ensku bisk- upakirkjunnar í Bandaríkjunum, predikar. Óvíst er hver leiðir Meghan inn kirkjugólfið. Til stóð að það yrði Thomas faðir hennar, en í gær var tilkynnt um að hann hefði fengið hjartaáfall og þyrfti að fara í aðgerð. Fyrr í vikunni var greint frá því að Thomas hefði sviðsett myndatöku af sjálfum sér í samráði við ljósmynd- ara slúðurtímarits og sagðist hann í kjölfarið skammast sín svo mikið að hann myndi ekki koma til brúð- kaupsins. Svaramaður Harrys verð- ur bróðir hans Vilhjálmur. Á boðskortinu eru leiðbeiningar um viðeigandi klæðnað. Fyrir konur er það hattur og dagklæðnaður og karlar eru beðnir um að vera í kjól- fötum eða jakkafötum. Stórar töskur og myndavélar eru bannaðar og gestir eru vinsamlegast beðnir um að bera hvorki orður né sverð. Að athöfninni lokinni munu brúð- hjónin aka í opnum vagni um bæinn Windsor, taka við árnaðaróskum al- mennings og halda síðan til Wind- sorkastala þar sem fyrri brúðkaups- veislan af tveimur verður haldin. Farkosturinn, svo framarlega sem ekki rignir, verður ekki af verri gerðinni; opinn hestvagn af gerðinni Ascot Landau frá árinu 1883. Sá varð einnig fyrir valinu þegar Vil- hjálmur og Katrín óku um götur London eftir brúðkaup sitt 2011. Feðgar draga vagninn Verði rigning verður ekið í lok- uðum vagni með stórum gluggum, sem kallast Skoski ríkisvagninn. Hann er frá árinu 1830 og var síðast notaður við hátíðahöld vegna 90 ára afmælis Elísabetar drottningar. Fjórir gráir hestar, þeir Milford Haven, Plymouth, Storm og Tyrone fá það hlutverk að draga vagninn og samkvæmt fréttatilkynningu frá bresku hirðinni eru tveir þeir síðast- nefndu feðgar. Riddaralið lífvarð- arsveitar hennar hátignar mun fylgja vagninum en Harry var með- limur sveitarinnar. Breska konungsfjölskyldan greið- ir allan kostnað við athöfnina og veisluhöldin og um 600 hefur verið boðið til brúðkaupsins og veislunnar. Hvorki athöfnin né veislan er skil- greind sem opinber viðburður, þar sem Harry er sjötti í erfðaröðinni til bresku krúnunnar, og því er stjórn- málafólk eins og t.d. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, og Je- remy Corbin, leiðtogi breska Verka- mannaflokksins, ekki á gestalista. En þar eru aftur á móti allar fimm Kryddstúlkurnar úr Spice Girls og hafa verið uppi vangaveltur um að þær muni troða upp í veislunni en ekkert hefur verið staðfest í þeim efnum. Um kvöldið verður síðan 200 manna veisla í boði föður brúðgum- ans, hún verður haldin í Frogmore House, setri í eigu konungsfjölskyld- unnar. Spurst hefur út að Meghan hyggi á ræðuhöld í veislunni sem mun vera heldur óvenjulegt fyrir konu sem giftist inn í konungs- fjölskyldu. Þá þykir það talsverð nýlunda að 2.640 almennum borgurum hefur verið boðið að vera við Windsor kastala á afgirtu svæði og hafa þannig betra útsýni yfir það sem fram fer. Í þessum hópi eru m.a. fulltrúar þeirra góðgerðarsamtaka sem prinsinn hefur starfað með og skólabörn úr nágrenninu. Krárnar opnar lengur En þó að almenningi sé ekki boðið til veislunnar, verður glaumur og gleði víða um breska konungsveldið. Til dæmis hafa mörg þúsund beiðnir um leyfi til veisluhalda á almanna- færi borist borgar- og bæjar- stjórnum um allt England og breska ríkissjónvarpið BBC afléttir endur- varpsgjöldum þennan dag þannig að varpa má beinu útsendingunni frá brúðkaupinu á stóra skjái á al- mannafæri án endurgjalds. Brúð- kaupsveisluhöld verða í Dreamland skemmtigarðinum í Kent, þar sem allir sem heita Harry eða Meghan fá frítt inn og það sama gildir um þá sem koma í brúðarkjól. Afgreiðslutími öldurhúsa verður lengdur um tvær klukkustundir bæði á föstudags- og laugardags- kvöld og hefur það mælst vel fyrir hjá breskum almenningi. Amber Rudd, innanríkisráðherra Bret- lands, sagði að brúðkaupið væri kjörið tilefni fyrir bresku þjóðina til að gleðjast saman. „Ég er sannfærð um að almenningur fagnar því að hafa rýmri tíma til að lyfta glasi og skála fyrir brúðhjónunum.“ Brúðkaupsfögnuður víða um England AFP Kirkjan Athöfnin mun fara fram á laugardaginn klukkan 12 á hádegi í kap- ellu heilags Georgs í Windsor. Þar var Harry skírður 21. desember 1984. AFP Brúðkaupskökur Veisluhöld á al- mannafæri verða víða um Bretland. sældaröðinni því um árabil hefur hann verið sá meðlimur bresku kon- ungsfjölskyldunnar sem almenn- ingur hefur mest dálæti á og er gjarnan kallaður „hressi prinsinn“. Henry Charles Albert David, eins og hann heitir fullu nafni, fæddist á St Marýs sjúkrahúsinu í London 15. september 1984 þar sem eldri bróðir hans Vilhjálmur kom í heiminn tveimur árum áður. Foreldrar hans höfðu þá verið gift í 3 ár og var þeg- ar á þessum tíma farið að tala um bresti í hjónabandi þeirra. „Ég vildi ekki vera Harry“ Framan af var Harry, eins og hann var fljótlega kallaður, sá óframfærnari og stilltari af bræðr- unum tveimur. Móðir hans sagði hann vera með „listrænt eðli“ og að honum liði best í rólegheitum. En það átti eftir að breytast og þegar hann komst á legg gat hann sér frægðarorð fyrir ýmsan prakk- araskap. Ófáar myndir birtust í heimspressunni af Harry að gretta sig í átt að fjölmiðlafólki eða rekandi út úr sér tunguna. Í heimildarmynd sem sýnd var í fyrra þegar 20 ár voru liðin frá dauða Díönu prinsessu, viðurkenndi ljósmyndari nokkur að hann og starfsbræður hans hefðu gert sér að leik að espa drenginn upp því að mynd af böldnum prinsi var talsvert meira virði en mynd af prúðum prinsi. Aðalheimili fjölskyldunnar var í Kensingtonhöll í London og árið 1989 innritaðist litli prinsinn í Wet- herby drengjaskólann þar sem bróð- ir hans var fyrir á fleti. Bræðurnir fóru síðan báðir í Ludgrove heima- vistarskólann og eftir að leiðir þeirra Karls og Díönu skildu árið 1992 bjuggu þeir til skiptis hjá foreldrum sínum, gjarnan í umsjá barnfóstra. Sunnudaginn 31. ágúst 1997 voru bræðurnir í sumarfríi í Balmoral kastala í Skotlandi með afa sínum og ömmu, Elísabetu Englandsdrottn- ingu og Filip prins. Snemma um morguninn hringdi síminn, á línunni var faðir þeirra með þau sorgartíð- indi að móðir þeirra hefði látist í bíl- slysi í París þá um morguninn. Heimsbyggðin syrgði Díönu og komst við þegar prinsarnir ungu gengu ásamt föður sínum á eftir kistu hennar. „Ég held að það ætti ekki að leggja slíkt á nokkurt barn, ekki undir nokkrum kringum- stæðum. Ég held að þetta myndi ekki gerast í dag,“ sagði Harry í sjónvarpsviðtali í fyrra þegar hann rifjaði þetta upp. Í sama viðtali sagð- ist hann hafa verið haldinn ýmsum efasemdum í eigin garð í mörg ár eftir þetta. „Ég vildi ekki vera Harry prins. Ég vildi ekki þessa ábyrgð, ég vildi ekki þetta hlutverk.“ Hann hóf nám í Eton einkaskól- anum árið 1998 og þegar leið á ung- lingsárin fóru að birtast ýmsar hneykslisfréttir af ýmsu athæfi sem varla myndi teljast fréttnæmt ef „venjulegur“ unglingur hefði átt í hlut. Eftir útskrift frá Eton 2003 lagðist Harry í ferðalög, síðan skráði hann sig í Sandhurst herskólann og eftir útskrift þaðan gegndi hann her- þjónustu í Afganistan og víðar til ársins 2015. Síðan þá hefur hann unnið að ýmsum góðgerðarmálum. Hún lét snemma til sín taka Brúðurin tilvonandi ólst upp við aðrar aðstæður en breski prinsinn. Rachel Meghan Markle fæddist í Los Angeles í Kaliforníu 4. ágúst 1981. Foreldrar hennar eru þau Doria Loyce Ragland, jógakennari og félagsráðgjafi sem er af afrískum uppruna, og Thomas Markle sem var ljósamaður í fjölmörgum sjón- varpsþáttum og vann m.a. til Emmy- verðlauna fyrir störf sín. Foreldrar Meghan skildu þegar hún var sex ára og eftir það bjó hún með móður sinni í Los Angeles. Hún gekk í frægan einkaskóla þar í borg, Little Red Schoolhouse, þar sem margir frægir leikarar hafa stundað nám og síðan í kaþólskan einkaskóla á menntaskólaárunum. Hressi prinsinn giftir sig  Bandaríska leikkonan Meghan Markle og Harry Bretaprins ganga í það heilaga í Windsor á laugardaginn AFP Verðandi hjón Harry og Meghan stilltu sér upp fyrir myndatöku við Kens- ington höll eftir að tilkynnt var um trúlofun þeirra 27. nóvember. SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Búist er við því að mörg hundruð milljónir manna um allan heim muni fylgjast með því næstkomandi laug- ardag, 19. maí þegar rúmlega þrí- tugt par, breskur karl og bandarísk kona ganga í það heilaga í kapellu heilags Georgs í Windsor í Englandi. En þetta er ekkert hversdagslegt par því brúðguminn er Harry prins, yngri sonur Karls Bretaprins og Díönu heitinnar prinsessu. Almenningur um víða veröld hef- ur fylgst með prinsinum vaxa úr grasi allt frá því að hann var fjör- kálfur sem veltist um í stuttbuxum í fangi móður sinnar. Milljónir manna um allan heim komust við þegar13 ára gamall prinsinn gekk niðurlútur á eftir kistu móður sinnar í líkfylgd hennar. Það komst líka í heimsfrétt- irnar þegar hann missteig sig á ung- lingsárunum, það var einnig frétta- efni þegar hann gegndi herþjónustu í Afganistan og í gegnum tíðina hafa ýmis atvik í lífi hans bæði stór og smá verið tilefni blaðaskrifa. Og núna er komið að einni stærstu fréttinni í lífi hins 33 ára gamla prins; brúðkaupi hans og bandarísku leikkonunnar Meghan Markle. Ólíklegt er að hann verði nokkurn tímann Englandskonungur, til þess er hann of aftarlega í erfðaröðinni. En hann er vissulega fremstur í vin- Brúðkaup Harrys Bretaprins og Meghan Markle
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.