Morgunblaðið - 17.05.2018, Side 64
„Ég vil nú taka það fram í upp-
hafi að ég er enginn uppeldis-
sérfræðingur og mér líður jafn
kjánalega að skrifa þessi ráð og
ef einhver myndi vilja fá mig
sem einkaþjálfara með það að
leiðarljósi að léttast um 50 kíló!
En ég skal reyna að
miðla því litla sem ég
hef reynt að leggja
mig eftir í föður-
hlutverkinu,“ segir
Einar Bárðarson,
stundum þekktur
sem umboðsmaður Íslands
og núverandi samskiptastjóri
Hafnarfjarðarbæjar.
„Við erum öll að takast á við að ala börnin okkar
upp í einhverjum raunveruleika sem við ólumst
sjálf ekki upp í. Hætturnar eru ekki þær sömu
og foreldrar okkar voru að takast á við. Mamma
og pabbi voru kannski helst að passa að það
væri eitthvað til í ísskápnum og helsta „mann-
réttindabarátta“ manns sem krakka var VHS-
tæki og Sodastream. Til að forðast einelti var
látið undan kröfum um kaup á Millet-úlpu svo
maður yrði ekki hafður að athlægi eða hreinlega
bara laminn! Reykingar og áfengisneysla voru
það sem foreldrar og forráðamenn predikuðu
gegn og sem barn eða unglingur átti ég aldrei
hjálm. Börnin mín eiga hjólahjálm, skíðahjálm,
brettahjálm og fengju sjálfsagt hestahjálm ef
þeim dytti í hug að fara út í hestamennsku.
Þannig að muna eftir mikilvægi næringar, skjá-
tíma, lærdóms, fordóma, eineltis, hegðunar á
samfélagsmiðlum, hreyfingar og hvíldar getur
verið ansi yfirþyrmandi stundum samhliða
heimilisrekstri og fullri vinnu beggja foreldra
sem eiga stundum bara þá einu og veiku von að
komast í gegnum eina bíómynd í mánuði saman!
Það sem ég hef fram að færa verður líklega
skotið í kaf af fimm mismunandi eftirlitsstofn-
unum og 18 mismunandi sérfræðingum á innan
við sólarhring, en það verður bara að hafa það!“
segir Einar og skellihlær.
1 Ég gef frelsi til athafna og gjörða og hvetkrakkana til að prófa en reyni að opna skiln-
ing á því að því frelsi fylgir ábyrgð. Ef þau koma
seint heim miðað við gefinn tíma þýðir það
ákveðin viðurlög og þannig vonast ég til þess að
börnin læri að umgangast reglur í því samhengi
að frelsi fylgi ábyrgð. Þetta snýst ekki bara um
hvenær krakkarnir koma heim í kvöld heldur
vona ég að þessi gildi fylgi þeim áfram.
2Þegar kemur að tónlist þá er það mitt við-horf að ég banna krökkunum ekki að hlusta
á neitt. En ég fer hinsvegar yfir það í þaula með
bæði syni mínum og dóttur að stundum eru
þau að hlusta á kvenfyrirlitningu, hatur í ým-
iskonar mynd svo ekki sé minnst á subbulegt
orðaval. Kvenfyrirlitninguna hef ég tekið nokk-
uð vel fyrir því við erum að ganga í gegnum
massa rapptímabil. Ég útskýri það að Notorious
BIG sé ferlega flottur rappari og flest lögin frá-
bær en hann kalli konurnar í lífi sínu mellur og
hann tali um það sem svalt stöðutákn að vera
melludólgur. Eftir að ég hef útskýrt þessa hluti
reyni ég að kenna þeim hvað þau eru að hlusta á
og hvað þýðingu þetta hefur allt saman. Þetta
geri ég einfaldlega vegna þess að aðgengi
krakkanna að allri músík og öllu efni er svo stór-
kostlegt að foreldri sem ætlar að fara að reyna
að ritskoða hlustun barnanna sinna kemur engu
öðru í verk og missir fljótlega vitið. Og kost-
urinn við aðgengið er líka að krakkarnir „fest-
ast“ ekki í stíl eða tímabili heldur rúlla eins og
engisprettur í gegnum heilu áratugina og lista-
mennina og geta valið sér allt það besta til að
elska til lengri tíma. Dóttir mín er búin með
Bítlana, Led Zeppelin, Doors. Allt rapp 90‘s
tímabilsins „east coast og west coast“ og kann
þetta allt utan að og af því er ég stoltur. Nú er
hún í Nirvana og Guns‘ and Roses. Hvernig get
ég bannað henni að hlusta á það sem ég fíla
sjálfur, það væri fullkomin hræsni.
3 Í daglega lífinu getur maður ekkert að þvígert þó að maður verði stundum pirraður og
hvessi sig; ég er bara mannlegur. Sér í lagi þeg-
ar maður er að koma flotanum fram úr á morgn-
ana og í skólann. Ég reyni hinsvegar að mæta
þeim breyskleika með því að sýna börnunum
mínum það alla daga að ég elska þau bæði í orði
og á borði. En ég elska það hinsvegar ekki hvað
þau eru lengi að koma sér á fætur.
4 Ég segi börnunum mínum að ég verði ekkireiður sama hvað þau hafi gert rangt svo
lengi sem þau segi satt. Þó eitthvað brotni, bili
eða týnist þá er það aukaatriði. Ég verð kannski
óhress, en aldrei reiður ef mér er bara sagt satt
um málið. Ég hampa sannleikanum.
5 Ég er að reyna að innleiða grænu gildinbæði hjá sjálfum mér og þeim í leiðinni.
Einnig umburðarlyndi og virðingu fyrir skoð-
unum annarra. Þessi atriði skipta mig máli og
ég vil að börnin sjái pabba sinn vera sam-
kvæman sjálfum sér og læri þau þannig.
5
UPPELDISRÁÐ
Einars
Bárðarsonar
64
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018
Móðir á fertugsaldri í Reykjavík fær stjúp-
börn heim til sín reglulega, þ.e. börn kærast-
ans, og kvartar undan því að hún nái engu
sambandi við þau. Börnin hunsa hana og sam-
skiptin á heimilinu eru stíf og óþægileg. Þetta
á við einkum þegar hún er nálæg. Hún spyr
hvernig hún geti breytt þessu ástandi sem er
farið að þjaka hana töluvert.
Sæl og takk fyrir spurninguna!
Það getur reynt á alla að blanda saman fjöl-
skyldum og engar tvær fjölskyldur eru eins.
Börn hafa almennt góða aðlögunarfærni og
samskipti geta breyst með tímanum. Til að
auðvelda ferlið eru ákveðnir þættir sem þarf að
hafa í huga. Í fyrsta lagi er mikilvægt að full-
orðna fólkið sé nokkuð samstiga. Sum börn eru
hikandi í framkomu við stjúpforeldri þar sem
þau lenda að einhverju leyti á milli foreldra
sinna sem þau elska jú og vilja sýna hollustu.
Best er ef allir foreldrarnir geta náð saman um
ákveðna þætti sem varða velferð barnanna og
oftast gengur það betur en fólk á von á.
Mikilvægt en tímafrekt að mynda traust
Þitt hlutverk sem stjúpforeldri er að mynda
traust og það tekur tíma. Mikilvægt er að leyfa
börnunum að ráða hraðanum þar sem börn eru
ólík og hafa ólíkar þarfir sem stjórnast meðal
annars af aldri og þroska. Ef samskiptin ganga
ekki vel í byrjun getur tekið tíma að brjóta upp
það mynstur. Þá er brýnt að átta sig á hver
vandinn er en ekki síður að átta sig á styrk-
leikum ykkar og hvernig þið getið nýtt þá til
þess að ná betur saman.
Þó að það sé oft mjög erfitt næst betri ár-
angur ef þér tekst að taka hegðun barnanna
ekki persónulega, hún beinist í raun ekki að
þér heldur því hlutverki sem þú ert í. Mik-
ilvægt er líka að taka tillit til þess að börnin
alast upp í öðru umhverfi hluta af tímanum og
það getur verið flókið. Það kallar á að nýja fjöl-
skyldan lagi sig að börnunum og þörfum
þeirra.
Myndaðu vináttutengsl í rólegheitunum
Látum líffræðilegu foreldrana um uppeld-
ið, alla vega í fyrstu. Hlutverk þitt sem
stjúpforeldris gæti í byrjun verið að reyna
að mynda vináttutengsl við börnin, til dæmis
í gegnum áhugamálin þeirra en þó án þess
að kæfa þau í athygli. Ef tryggt er að börnin
fái tíma með líffræðilegu foreldri án þess að
stjúpforeldri sé alltaf með getur dregið úr
spennu í samskiptum þess á milli. Þetta er
gefandi en um leið krefjandi hlutverk sem
þú ert í, en börn venjast tilhugsuninni um að
vera hluti af nýrri fjölskyldu smám saman.
Þegar öllu er á botninn hvolft þurfa börn
fyrst og fremst á því að halda að finna til ör-
yggis og hlýju á heimilum sínum. Gangi þér
vel!
Stíf og erfið stjúptengsl
Spurningum sem berast Fjölskyldunni á
mbl.is svarar SÓL sálfræði- og læknisþjón-
usta en þar starfar hópur fagfólks sem
leggur metnað sinn í að veita börnum, ung-
mennum og fjölskyldum þeirra góða þjón-
ustu. Nánari upplýsingar á
www.sol.is
Stjúpfjölskyldur Hlutverk
þitt sem stjúpforeldris
gæti verið að reyna að
mynda vináttutengsl við
börnin, til dæmis í gegnum
áhugamálin þeirra.
Spurt og svarað
Alþjóðlegur dagur fjölskyldunnar var í gær
og af því tilefni var fjölskylduviðurkenning
SOS Barnaþorpanna á Íslandi veitt í þriðja
sinn. Að þessu sinni heiðra samtökin kenn-
ara í leikskólum, grunnskólum og fram-
haldsskólum fyrir óeigingjarnt starf í þágu
fjölskyldna. Lilja Alfreðsdóttir mennta-
málaráðherra veitti viðurkenninguna.
Í umsögn valnefndar segir að kennarar
vinni óeigingjarnt starf í þágu fjölskyldna,
jafnvel utan hefðbundins vinnutíma, til
dæmis með aðkomu að fjölskylduvanda-
málum. Það felst m.a. í samtölum við for-
eldra, ráðgjöf, aðstoð við heimanám, koma
málum í farveg o.m.fl. til að styðja við fjöl-
skylduna.
SOS Barnaþorpin eru stærstu einkareknu
barnahjálparsamtökin í heiminum sem sér-
hæfa sig í að útvega yfirgefnum börnum
heimili, foreldra og systkini.
Þeir kennarar sem veittu viðurkenning-
unni móttöku eru;
- fyrir hönd leikskólakennara, Vilborg
Guðný Valgeirsdóttir frá leikskólanum Vall-
arseli á Akranesi,
- fyrir hönd grunnskólakennara, Íris
Dröfn Halldórsdóttir frá Myllubakkaskóla í
Reykjanesbæ og Birna Björk Reynisdóttir
frá Egilsstaðaskóla,
- fyrir hönd framhaldsskólakennara, Mark
Andrew Zimmer frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð.
Í valnefndinni sátu: Drífa Sigfúsdóttir,
mannauðsráðgjafi, Sigrún Júlíusdóttir, pró-
fessor í félagsráðgjöf við HÍ, Nichole Leigh
Mosty, verkefnastjóri hjá fjölskyldumiðstöð
Breiðholts og Ragnar Schram, fram-
kvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi.
Viðurkenning SOS Barnaþorpa F.v.: Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra, Mark Andrew
Zimmer framhaldsskólakennari, Vilborg Guðný Valgeirsdóttir leikskólakennari, Birna Björk
Reynisdóttir grunnskólakennari, Ragnar Schram framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna og
Íris Dröfn Halldórsdóttir grunnskólakennari.
Viðurkennning fyrir óeigin-
gjarnt starf í þágu fjölskyldna
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU
AÐ LÁTA
GERA VIÐ?