Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 66
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is Herbert Guðmundsson tónlistar- maður fór um víðan völl í morgun- þættinum hjá Rikku, Loga og Rúnari Frey. Talið barst að alkóhólismanum en þessa dagana stendur Álfasala SÁÁ yfir. Herbert sagði frá því að hann hefði nýtt sér þjónustu SÁÁ á sínum tíma en í júlí næstkomandi fagnar hann 11 ára edrúafmæli. „Ég fór í tíu daga inn á Vog í svo- kallaða afeitrun og síðan fór ég beint í 12 sporin og fór að vinna og starfa,“ segir Herbert sem fór svo að reyna að hjálpa öðrum með því að segja sögu sína og bera út boðskapinn. „Ég var í heavy neyslu. Ég var í kókaíni og hassi og bjórsulli. Ég þurfti mikið að vinna í sjálfum mér. Ég var samt tiltölulega fljótur að jafna mig.“ Herbert sækir kirkju einu sinni í viku og lítur á það sem hluta af því að halda sér edrú. „Það er gat í okk- ur sem höfum þennan sjúkdóm og það þarf að fylla það með einhverju. Ég þurfti að taka æðri mátt inn í mitt líf og það var ekki erfitt fyrir mig. Amma kenndi mér bænir þegar ég var krakki og ég fór bara að biðja aftur,“ segir Herbert og fór með bæn í viðtalinu sem hann segist fara með á hverjum morgni. Herbert seg- Herbert Guðmundsson tónlistarmaður var gestur þeirra Loga, Rikku og Rún- ars Freys í morgunþættinum Ísland vaknar á dögunum en hann samdi nýverið country-lag sem sungið er af Axel Ó. Herbert fór um víðan völl í spjallinu og talið barst að alkóhólismanum en þessa dagana stendur Álfasala SÁÁ yfir. „Ég stjórna ekki þessari leiksýningu“ ist alltaf vera glaður. „Til hvers að vera dapur? Það hefur ekkert upp á sig. Þetta er bara spurning um að sleppa. Ég er ekki að fara að stjórna þessari leiksýningu, ég verð bara að sleppa.“ Hluti af batanum hjá Herberti var að gera upp fortíðina. „Þú verður frjáls, því þetta er svo mikil tiltekt. Við förum og hittum fullt af fólki sem við vorum að skaða þegar við vorum að fá okkur. Það er stóri plúsinn í þessu prógrammi,“ segir Herbert og bætir við að hann hafi hætt að hitta gömlu félagana. þegar hann varð edrú. „Það gerist bara af sjálfu sér. Þetta voru ekki alvöru félagar, þetta voru bara neysluvinir. Það verða andaskipti í manni. Þegar maður er í neyslu þá er þessi dökki inni í manni og svo kemur ljósið inn. Þeir sem falla á bindindinu hafa oft gleymt bæninni, þeir fara að „hrokast“ upp.“ Talið berst svo að tónlistinni en nýverið gaf Herbert út plötu með syni sínum. Herbert hefur alltaf ver- ið mikill sölumaður og var m.a. far- andbókasali á árum áður. „En nú fylli ég bara bílinn af geisladiskum og fer á galeiðuna eins og það er kallað. Þetta er svo gaman og gef- andi,“ segir Herbert sem fær mikið út úr því að ferðast um landið og kynnast fólki sem hann hittir. Á dög- unum samdi hann „countrylag“ fyrir Axel Ó. en það kom út á dögunum og var spilað í þættinum. Lagið heitir „Driving Wild“ og er sungið af Axel. Hægt er að hlusta á viðtalið við Herbert og nýja lagið á k100.is. runarfreyr@k100.is Jákvæður Herbert Guðmundsson: „Til hvers að vera dapur? Það hefur ekkert upp á sig.“ Jóhann Freyr Björgvinsson og Guðný Páls- dóttir frá Heimsferðum komu óvænt inn í beina útsendingu Magasínsins, færandi hendi með gjafabréf upp á glæsilega viku- langa fimm stjörnu dekurferð til Grikk- lands. Hulda átti hugmyndina að því að gefa Hvata og konunni hans ferðina í tilefni brúðkaupsafmælis þeirra í tilefni af bón- orðsleik sem útvarpsstöðin stendur fyrir um þessar mundir. Þar eru hlustendur hvattir til að deila sögum af einni stærstu stund sambandsins. Hvati og Dóra Hanna, eiginkona hans, hafa verið í fjarbúð í vetur, hann hér í bæn- um og hún í Vestmannaeyjum. Því þótti til- valið að gleðja hjónakornin á 21 árs brúð- kaupsafmælisdeginum. „Hulda kom mér svo sannarlega á óvart með þessari gjöf frá Heimsferðum. Ég var nýbúinn að segja við hana eftir útsendingu á dögunum að við hjónin gætum vel hugsað okkur að komast í sólina til að slaka á, það hefur verið mikið að gera á mörgum víg- stöðvum í okkar lífi undanfarin misseri. Við náum að skella okkur til Grikklands rétt á milli flutninga hjá okkur, gæti ekki passað betur,“ segir Hvati kampakátur með gjöf- ina. Hvata komið á óvart með ferð til Grikklands Hissa Það kom Hvata og eigin- konu hans, Dóru Hönnu, verulega á óvart að fá glaðninginn. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018 Tjarnargata 4, 3. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is Fyrirtæki til sölu • Steypuframleiðsla og flutningastarfsemi • Veitingastaður í miðborg Reykjavíkur • Lífstílsverslun með fatnað og gjafavöru • Iðnfyrirtæki með málmsmíði og innflutning • Gistihús í miðborginni • Jeppaferðir um hálendið • Heildsala með hárvörur og tengda vöruflokka • Ísbúðir á Reykjavíkursvæðinu • Heildverslun með fæðubótarefni • Öflugar verslanir í Kringlunni Hér eru nokkur dæmi um fyrirtæki til sölu hjá okkur: Investis er með yfir 50 fyrirtæki á sölulista. Um er að ræða fyrirtæki í verslun, iðnaði, ferðaþjónustu og veitinga- starfsemi. Einnig rekstrareiningar úr fyrirtækjum auk sameiningatækifæra. Um 500 fjárfestar eru á póstlista okkar, þeir fá vikulega upplýsingar um fjárfestingar- tækifæri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.