Morgunblaðið - 17.05.2018, Page 74

Morgunblaðið - 17.05.2018, Page 74
74 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018 Birgir Axelsson skrúðgarðyrkjumeistari á 40 ára afmæli í dag.Birgir rekur sitt eigið fyrirtæki, Brústein ehf., og hefur sér-hæft sig í að gera grjóthleðslur úr náttúrugrjóti og laugar en sinnir einnig hellulögnum og annarri skrúðgarðyrkjutengdri starf- semi. Höfuðstöðvar hans eru í Hafnarfirði og í Neskaupstað. „Ég bý að mestu leyti yfir veturinn fyrir sunnan en mitt aðalstarfs- tímabil, á vorin og fram á haust, er fyrir austan. Ég byrjaði fyrst að vinna þar í kringum 2011 við Laugarfell en fór svo 2013/2014 í Nes- kaupstað þegar við Guðmundur í Allraverk gerðum minningarreit um þá sem hafa farist í snjóflóðum þar. Síðan hef ég verið þar meira og minna. Núna er ég að hlaða sáluhlið við kirkjugarðinn á Fáskrúðsfirði ásamt öðrum verkum í yfirborðsfrágangi.“ Birgir er líka einn af skipuleggjendum tónlistarhátíðarinnar Eistnaflug í Neskaupstað. Skipulagningin fyrir næstu hátíð er vel á veg komin og dagskráin er tilbúin. „Þar verður fullt af rosalegu þungarokki. Hátíðin endar samt með þvílíku balli með Gusgus á laug- ardagskvöldinu, en við endum hana alltaf með annarri tónlist en þungarokki. Þegar fólk er búið að hlusta á þungarokk í fjóra daga þá er gott að breyta til og fá almennilegan dans í lokin.“ Tónlist og mótorhjól eru mikið áhugamál hjá Birgi. „Ég reyni alltaf að fara á mótorhjóli á Eistnaflug og taka hringinn um Ísland í leið- inni. fertugsgleðin byrjaði síðasta sumar með mótorhjólaferð til Mexíkó en þetta sumar verður ferðast bæði um landið og erlendis með syni mínum, Adrían Snæ, sem er sex ára, og ætlum við að njóta þess sem mest.“ Í tilefni fertugsafmælisins ætlar Birgir að halda heljarinnar veislu í kvöld fyrir vini og ættingja í Elliðaárdalnum. „Ég vona að sem flestir hafi fengið frí í vinnunni á morgun.“ Tveir flottir Birgir með afa sínum, Þorgeiri, á 90 ára afmæli hans 2016. Veislugestir taki sér frí á morgun Birgir Axelsson er fertugur í dag Ó lafur Gíslason, listfræð- ingur og fararstjóri, fæddist í Reykjavík 17. maí 1943 og ólst þar upp á Leifsgötunni. Hann var auk þess í sveit á sumrin, frá fimm til tólf ára aldurs, í gamla torfbænum á Hofsstöðum í Skaga- firði sem Björn Pétursson, langafi hans, byggði á sínum tíma. Ólafur var í Austurbæjarskóla, lauk stúdentsprófi frá MR 1963, stundaði nám við háskólann í Lundi í Svíþjóð 1963-64 og við Listaaka- demíuna í Kaupmannahöfn 1964-66. Þá dvaldi hann við nám og störf á Ítalíu 1966-67, 1968-69 og 1985-86. Ólafur starfaði við kennslu á ung- lingasviði með hléum á árunum 1967-74. Hann starfaði einnig við gróðurrannsóknir á hálendi Íslands hjá Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins á sumrin frá 1964 til 1979, var blaðamaður við Þjóðviljann 1981-92 og fréttaritari RÚV á Ítalíu 1985-86. Ólafur hefur verið fararstjóri er- lendis frá 1979, einkum á vegum Samvinnuferða og Heimsferða, oft- ast á Ítalíu, en einnig á Grikklandi, Tyrklandi, Króatíu, Kúbu og víðar. Ólafur stundar enn fararstjórn í ígripum á vegum Heimsferða, þar sem Róm og Sikiley hafa m.a. verið árlegir viðkomustaðir hans. Ólafur var einn af stofnendum myndlistarhópsins SÚM 1967, tók virkan þátt í starfsemi þess fé- lagsskapar og skrifaði sögu hans í SÚM-bókinni sem Listasafn Reykjavíkur gaf út 1989. Ólafur hefur kennt listheimspeki og listasögu við Listaháskólann frá stofnun hans, haldið fjölda nám- skeiða hjá Endurmenntun HÍ frá 1990, og komið að stundakennslu hjá Myndlistarskólanum í Reykjavík. Þá hefur hann skipulagt og stjórnað fjölda námsferða um sögustaði og á listasöfn, einkum á Ítalíu, í Grikk- landi og Tyrklandi í tengslum við kennslu sína við Listaháskólann og Endurmenntun HÍ. Ólafur stendur enn fyrir árlegum námskeiðum í listheimspeki við Listaháskólann. Ólafur er höfundur fræðitexta í bókunum um allmarga íslenska myndlistarmenn, þar á meðal Gret- ar Reynisson, útg. 2000, Kristján Guðmundsson, 2001, Guðjón Ket- ilsson, 2010, Rósu Gísladóttur, 2012, Kees Visser, 2013, og Arnar Her- bertsson, 2016. Hann hefur skrifað fræðitexta um samtímalist og lista- sögu í bækur, tímarit, sýningarskrár og dagblöð, og skrifaði lengi list- gagnrýni fyrir Þjóðviljann og DV. Ólafur heldur úti vefsíðu (hug- Ólafur Gíslason, listfræðingur og fararstjóri – 75 ára Heimspeki og list Ólafur Gíslason, listfræðingur og fararstjóri, í rústum grísk-rómversku borgarinnar Pergamon í Tyrklandi árið 2009. Alltaf fengist við áhugamál sín Reykjavík Tvíburarnir Lilja Þorgrímsdóttir og Þór Þorgrímsson fæddust 17. maí 2017 og eiga því eins árs afmæli í dag. Lilja fæddist kl. 14.28, þyngd hennar var 2.182 g og lengd 45 cm. Þór fæddist kl. 14.44, þyngd hans var 2.284 g og lengd 45 cm. Foreldrar Lilja og Þórs eru Lydía Grétarsdóttir og Þorgrímur Andri Ein- arsson. Nýir borgarar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is ALLTAF KLÁRT Í ÞRIFINAJAX NÚ FÆRÐU AJAX með matarsóda og sítrónu og AJAX með ediki og eplum Hjálpar þérað gera heimiliðskínandi hreint

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.