Morgunblaðið - 17.05.2018, Qupperneq 75

Morgunblaðið - 17.05.2018, Qupperneq 75
runir.com) með frumsömdum fræði- legum textum um myndlist og heim- speki og með þýðingum sínum á fræðitextum erlendra heimspekinga sem hann hefur notað við kennslu sína. Þar má m.a.finna þýðingar hans á grundvallartextum eftir höf- unda á borð við Hans Georg Gada- mer, Umberto Galimberti, Carlo Sini, Giorgio Agamben, Maurice Merleau-Ponty, Jean Baurillard, Jean-Luc Nancy, Gaston Bachelard, Walter Benjamin o.fl. Ólafur hefur verið lánsamur í gegnum tíðina með áhugamál sín. „Ég hef alla tíð fengist við það sem ég hef áhuga á og þarf því ekki að skipta tímanum í vinnustundir og svokallaðar tómstundir,“ segir Ólaf- ur, en þegar hann fær frístundir leggst hann í bóklestur. „Ég ligg mikið í bókum, einkum um heim- speki og listasögu, undanfarið hef ég verið upptekinn af 1.000 blaðsíðna risaverki ítalska heimspekingsins Carlo Sini um hverfulleika sannleik- ans, „Transito verità“, frá 2012, en það er fimmta bindið í heildarútgáfu þessa merka heimspekings um „Al- fræði heimspekinnar“, „Figure del- l‘Enciclopedia Filosofica“, segir Ólafur en hann stefnir að því að sitja námskeið hjá Carlo Sini á Sikiley í sumar. Fjölskylda Kona Ólafs er Una Sigurð- ardóttir, f. 5. júní 1948. Una hefur starfað sem yfirflugfreyja, kennari og fararstjóri erlendis. Börn Ólafs og Unu eru Helga (f. 18.8. 1982), mannfræðingur starf- andi hjá hjá UNICEF, búsett í Reykjavík. Sambýlismaður hennar er Barði Stefánsson kvikmynda- gerðamaður, og eiga þau saman Brynhildi Unu (f. 30.12.2015). Barði á einnig soninn Patrek (f.13.01.2010) Sonurinn Gísli, (f. 12.11. 1986), er forstöðumaður Tómstundaheimilis í Reykjavík. Sambýliskona Gísla er Helena Guðrún Guðmundsdóttir mannfræðingur. Gísli á soninn Þórð Óla (f. 9.02.2013) með Örnu Þórð- ardóttur, en stjúpdóttir hans er Viktoría Dís Þorsteinsdóttir (f. 16.02.2011). Systkini Ólafs eru Jóhannes, f. 26.4. 1950, lífeðlisfræðingur búsett- ur í Danmörku, og Gunnhildur, f. 21.4. 1956, lífefnafræðingur, búsett í Reykjavík. Foreldrar Ólafs: Gísli Ólafsson, f. 3.1. 1912, d. 10.12. 1995, ritstjóri, og Hólmfríður Jóhannesdóttir, f. 18.12. 1919, d.12.01.2018. Úr frændgarði Ólafs Gíslasonar Ólafur Gíslason Björn Pétursson hreppstj. á Hofsstöðum Jóhannes Björnsson hreppstj. á Hofsstöðum í Skagafirði Kristrún Jósefsdóttir húsfr. á Hofsstöðum Hólmfríður Jóhannesdóttir húsfr. í Rvík Hólmfríður Björnsdóttir húsfr. á Hólum Gísli Högnason b. á Búðum í Fáskrúðsfirði, af ætt Presta-Högna, bróðursonur Kristínar, langömmu Sigurðar Þórarins- sonar jarðfræðings Björn Ólafur Gíslason framkvæmdastj. í Viðey Jakobína Davíðsdóttir húsfr. í Viðey og Rvík Gísli Ólafsson ritstjóri í Rvík Margrét Thorlacius Hallgrímsdóttir húsfr. á Akureyri, bróðurdóttir Þorsteins, afa Vilhjálms Þór ráðherra, og bróðurdóttir Jóns Thorlacius, afa Kristjáns Thorlacius, formanns BSRB og Birgis Thorlaius ráðuneytisstjóra Þorbjörg Magnúsdóttir húsfr. á Búðum Eiríkur Magnússon fræðim. og bókavörður í Cambridge Magnús Gíslason sýslum. í Heydölum Gísli Magnússon píanóleikari Davíð Ólafsson seðla- bankastjóri Ólafur Davíðsson fyrrv. ráðuneytis- stjóri Sigrún Davíðsdóttir fréttaritari RÚV í London Jósef Björnsson skólastj. og alm. á Hólum í Hjaltadal Hallur Björnsson b. á Syðstu- Görðum á Snæfellsnesi Ingibjörg Ásta Hallsdóttir húsfr. í Rvík Hallur Símonars. blaðam. Hallur Hallsson fram- kvæmdastjóri Símon Hallsson borgarend- urskoðandi Björn Jóhannesson verkfræðingur Einar Jóhannesson yfirlæknir Una Jóhannesdóttir af Harðabónda ætt og ætt Presta-Högna, systurdóttir Þorvaldar, langafa Gylfa Þ. Gíslasonar ráðherra Davíð Ketilsson framkvæmdastj. Pöntunarfélags Eyfirðinga Kristinn Ketilsson b. í Miklagarði í Eyjafirði Hallgrímur Kristinsson fyrsti forstjóri SÍS Sigurður Kristinsson ráðherra og forstjóri SÍS sr. Jakob Kristinsson fræðslumálastj. og forseti Guðspekifélagsins Sigurður Ketilsson b. í Miklagarði Aðalbjörg Sigurðardóttir húsfr. í Rvík Jónas Haralz bankastjóri Pálína Björnsd. ljósm. á Syðri- Brekkum Hermann Jónasson forsætisráðh. Steingrímur Hermannsson forsætisráðh. Guðmundur Steingrímss. alþm. ÍSLENDINGAR 75 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018 101 árs Helga Guðmundsdóttir 90 ára Emil Hans Petersen Sigrún Sæmundsdóttir 85 ára Eiríkur Sigurður Ormsson Klara Haraldsdóttir Sonja Hulda Einarsdóttir Örn Eriksen 80 ára Erna Kristjánsdóttir 75 ára Kristján Óskarsson Vilhjálmur Ísaksson 70 ára Inga Hanna Kjartansdóttir Jónína Guðrún Einarsdóttir Pétur Reynir Björnsson Sigrún Þ. W. Friðgeirsdóttir Sigurður Friðrik Lúðvíksson Vigfús Ásgeirsson Þóra Egilsdóttir 60 ára Arnfríður Þráinsdóttir Ásdís Andrésdóttir Berglind Einarsd. Blandon Guðfinna Nanna Gunnarsd. Guðmundur Geir Sigurðs- son Guðrún Erla Guðjónsdóttir Júlíus Aðalsteinsson Knútur Einarsson Knudsen Marianna Budzinska Sigríður Ingibjörg Karlsd. Sverrir Harðarson Vildís Búadóttir Þröstur Óskar Kolbeins 50 ára Antonio Passero Árni Guðmundur Hauksson Einar Áki Valsson Hólmfríður Þórdís Jónsd. Kristján E. Möller Krzysztof Baginski Maciej Grzegorz Sawukinas Marinó Ellertsson Vilhjálmur Jónsson 40 ára Ásta Rut Hjartardóttir Birgir Axelsson Freydís Helga Árnadóttir Inese Kuciere Magndís A. Waage Kolbeinsdóttir Mariusz Neter Morna Lawrie Manekeller Pawel Arkadiusz Migas Unnur Sigurðardóttir 30 ára Adam El Bouazzati Alexander Rafn Gíslason Arnór Snorri Gíslason Árni Ólafsson Áróra Sigurjónsdóttir Fanney Viktoría Kristjánsdóttir Fee Zanke Gunnar Páll Gunnarsson Haukur Ingi Sigurðsson Helga Einarsdóttir Hildur Þóra Magnúsdóttir Hulda Snorradóttir Ísak Óli Sigurjónsson Jón Örn Sigurðsson Kristjana H. Maack Sigurjónsdóttir Magnús Ingi Gunnlaugsson Marika Mokwa Ragnhildur Sylvía Óskarsdóttir Tinna Ingimarsdóttir Tómas Guðmundsson Þórður Ásþórsson Til hamingju með daginn 30 ára Ragnhildur ólst upp á Fáskrúðsfirði en hefur verið búsett á Eski- firði í tíu ár. Hún er núna í fæðingarorlofi. Maki: Rafn Helgason, f. 1988. Starfar hjá Eskju. Börn: Helgi, f. 2013 og Veigar f. 2017. Foreldrar: Óskar Marinó Sigurjónsson, f. 1965, bú- settur á Fáskrúðsfirði, og Eybjörg Guðný Guðna- dóttir, f. 1968, búsett í Borgarnesi. Ragnhildur Sylvía Óskarsdóttir 30 ára Tinna ólst upp í Ytra-Skörðugili í Skaga- firði og býr nú í Reykja- vík. Hún starfar sem gervahönnuður fyrir kvikmyndir og leikhús. Maki: Ingimar Heiðar Eiríksson, f. 1982, starf- ar við gangagerð í Nor- egi. Foreldar: Ingimar Ingi- marsson, f. 1951, bóndi og Kolbrún Ingólfs- dóttir, f. 1951, hár- greiðslukona. Tinna Ingimarsdóttir 40 ára Unnur ólst upp í Bakkaflöt í Skagafirði, en býr núna í Mosfellsbæ. Hún er vélfræðingur. Maki: Gunnar Freyr Þrast- arson, f. 1977, vélstjóri. Börn: Brynja Nótt, f. 2008, Klara Hvönn, f. 2011 og Sólbjört Salka, f. 2015. Foreldrar: Sigurður Hörð- ur Friðriksson, f. 1949 og Klara Sólveig Jónsdóttir, f. 1952. Þau reka saman ferðaþjónustuna Bakka- flöt. Unnur Sigurðardóttir  María Dóra Björnsdóttir hefur varið doktorsritgerð sína í náms- og starfs- ráðgjöf við Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið Mat á áhrifum náms- og starfsráðgjafar fyrir framhalds- skólanema (e. Evaluation of career interventions. Short- and long-term outcomes for students finishing upp- er secondary school in Iceland). Dokt- orsvörnin markar ákveðin tímamót því hún er sú fyrsta sem haldin hefur ver- ið í náms- og starfsráðgjöf. Leiðbein- endur voru dr. Sif Einarsdóttir og dr. Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, prófessorar í náms- og starfsráðgjöf við HÍ. Megintilgangur rannsóknarinnar var að meta áhrif tveggja nálgana í náms- og starfsfræðslu fyrir fram- haldsskólanemendur. Önnur nálgunin (IDI) nýtti þekktar aðferðir hérlendis en hin nálgunin (CIP) byggist á kenn- ingu um hugræna úrvinnslu upplýs- inga með áherslu á ákvörðunartöku- ferlið. Nemendur í útskriftar- og lokaáföngum í fjórum framhalds- skólum fengu náms- og starfsfræðslu í fjórum kennslustundum en nem- endur þriggja skóla voru í samanburð- arhópi. Viku eftir að fræðslu lauk höfðu þátttakendur í CIP hópi meira sjálfstraust varðandi ákvarðanatöku um nám og störf heldur en sam- anburðarhópurinn og almenn lífs- ánægja þeirra var meiri en í IDI hópi. Við eins árs eft- irfylgd reyndust þátttakendur í CIP og IDI hópum ekki frábrugðnir samanburðarhópnum. Þessi fyrsta rannsókn á árangri náms- og starfsfræðslu meðal fram- haldsskólanema veitir náms- og starfsráðgjöfum, menntastofnunum og stjórnvöldum mikilvægar upplýs- ingar. Svo virðist sem framhaldsskóla- nemendur þurfi skipulagðari náms- og starfsfræðslu en útskriftar- og loka- áfangar innihalda. Þá lítur út fyrir að ráðgjafarlíkan um hugræna úrvinnslu upplýsinga sé gagnlegt á Íslandi fyrir verðandi stúdenta. Sú staðreynd að ekki tókst að staðfesta langtímaáhrif styður við þá ályktun að nemendur þurfi meiri ráðgjöf. Kerfisbundin náms- og starfsfræðsla í gegnum skólakerfið myndi styðja nemendur við að verða sjálfstæðari í náms- og starfsvali og auðvelda þeim að stjórna eigin náms- og starfsferli út lífið. María Dóra Björnsdóttir María Dóra Björnsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1963. Hún lauk BA-prófi í sál- fræði frá Háskóla Íslands árið 1997, diplóma í námsráðgjöf árið 1999 og meist- araprófi í náms- og starfsráðgjöf árið 2007 frá sama skóla. María hefur gegnt stöðu deildarstjóra náms- og starfsráðgjafar Háskóla Íslands frá 2011. María er gift Guðmundi H. Gunnarssyni lögfræðingi og lögreglumanni og eiga þau tvö uppkomin börn, Diljá Guðmundardóttur og Breka Guðmundsson. Doktor
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.