Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 81

Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 81
Menning MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018 Glæpasagan Merkt komEmelie Schepp á kortiðog ekki er spennan minnií Kaldri slóð. Sænski rit- höfundurinn heldur sig enda við vinningsformúluna, veltir við mörg- um steinum í átt að lausn gát- unnar, en heldur nokkrum endum lausum með framhaldið í huga. Sænska borgin Norrköping er helsti vettvangur sögusviðsins. Sem fyrr er Jana Berzilius sak- sóknari í aðalhlutverki. Miðað við stöðu hennar fær hún að leika ótrú- lega lausum hala en tilgangurinn á að helga meðalið. En ekki er sama hver á í hlut og ýmsar spurningar vakna um spillingu á ólíklegustu stöðum. Engum dylst að í raunveruleik- anum er öllum brögðum beitt í hin- um harða heimi eiturlyfjanna. Lýs- ingarnar á smygli og afleiðingum þess í bókinni koma því ekki á óvart, en vissulega má ætla að les- andinn fyllist viðbjóði við lesturinn. Til þess er líka leikurinn gerður. Spennuþráðurinn er vel ofinn og kryddaður með frásögnum af einkalífi helstu persóna. Sambönd ganga misjafnlega eins og gengur, sumar uppákomur eru vægast sagt broslegar en aðrar kalla vafalaust fram tár á hvarmi einhverra. Til þess að fá niðurstöðu í glæpa- málum þarf stundum að beita óvanalegum brögðum og það er á stundum gert í þessari frásögn. Sumt orkar tvímælis og er ótrú- verðugt fyrir vikið, en er það ekki einmitt gjarnan tilfellið, þegar flett er ofan af óþægilegum málum? Glæpasagan Köld slóð gerist í aðdraganda jóla. Fátt minnir á fæðingu frelsarans í bókinni og jafnvel jólagjöfum er ekki beint fagnað, en ætla má að nýtt líf boði bætta tíma, jafnt í skáldskap sem raunheimum. Þriðja bókin hlýtur að binda enn fleiri hnúta. Ljósmynd/Helén Karlsson Höfundurinn Emelie Schepp. Viðbjóðurinn á sér engin takmörk Spennusaga Köld slóð bbbbn Eftir Emelie Schepp. Kristján H. Kristjánsson þýddi. mth 2018. Kilja, 396 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Tom Wolfe, einn áhrifamesti og virtasti rithöfundur og blaðamaður Bandaríkjanna í meira en hálfa öld, er látinn 88 ára að aldri. Fyrsta skáldsaga Wolfe, The Bonfire of the Vanities, kom út árið 1987 og í kjölfarið fylgdu A Man in Full (1998), I Am Charlotte Simm- ons (2004) og Back to Blood (2012). Áður hafði Wolfe sent frá sér tíu greina- og ritgerðasöfn, ferðasögur og verk sem mætti kenna við heim- ildaskrif unnin út frá forsendum og með aðferðum skáldskapar en þær fyrstu, The Kandy-Kolored Tan- gerine-Flake Streamline Baby (1965) og The Electric Kool-Aid Acid Test (1968) slógu í gegn. Sú síðarnefnda hefur verið kölluð eitt af lykilverkum sjöunda áratugarins í bandarísku menningarlífi. Önnur þekkt bók Wolfe er geimfarafrá- sögnin The Right Stuff (1979) sem vinsæl kvikmynd var gerð eftir. Eftir háskólanám buðust Wolfe störf við kennslu en hann kaus að gerast blaðamður og starfaði frá sjötta áratugnum við virt blöð og tímarit. Hann varð afar áhrifamik- ill á því sviði og átti stóran þátt í að móta nýja frásagnartækni á prent- miðlum sem kennd er við „nýja blaðamennsku“, þar sem aðferðum úr skáldskaparskrifum er beitt við greinaskrif um veruleikann. AFP Virtur Tom Wolfe hafði mikil áhrif sem blaðamaður og höfundur ólíkra bóka. Rithöfundurinn Tom Wolfe látinn PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 22. maí. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími 569 1105, kata@mbl.is Blaðið verður með góðum upplýsingum um garðinn, pallinn, heita potta, sumarblómin, sumar- húsgögn og grill ásamt girnilegum uppskriftum. Garðar &grill fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 25. maí SÉRBLAÐ Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.isAPOTEK KITCHEN+BAR Borðapantanir á apotek.is og í síma 551 0011 HÁDEGIS POP UP fimmtudag til laugardags frá kl. 11.30–14.30 Hrikalega spennandi réttir „Spicy“ Kock súpa & mini humarloka 1.990 kr. Reykt ýsa, skelfiskur, kartöflur, grasker og tómatar Tilboð framtíðarinnar 2.900 kr. Ostborgari og Grískar franskar „Philly cheese steak“ samloka 2.900 kr. Kartöfluhleifur, rib eye, jalapeno relish, súrar gúrkur, reyktur ostur og „Magic“ kartöflur „Magic“ kartöflur 1.000 kr. Smælki, pikklað chillí, kock-sósa og vorlaukur Grískar kartöflur 1.000 kr. Smælki, fetaostur, vínber, hnetur og ranch-dressing
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.