Morgunblaðið - 31.05.2018, Blaðsíða 35
FRÉTTIR 35Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Borgarráð hefur samþykkt tillögur
skrifstofu eigna og atvinnuþróunar
um kaup á tveimur húseignum, ann-
ars vegar í Safamýri og hins vegar
við Þönglabakka.
Óskað var eftir að borgarráð stað-
festi kaup á eignarhluta Áss styrkt-
arfélags í fasteigninni Safamýri 5.
Kaupverð eignarinnar er krónur
177.475.000. Húsnæðið verður nýtt
fyrir skóla- og frístundastarf.
Þá var óskað eftir að borgarráð
samþykkti að kaupa eignarhlut
Strætó bs. í Þönglabakka 4 á krónur
100.000.000.
Í greinargerð kemur fram að
Strætó bs. sé eigandi að hluta í
Þönglabakka 4. Um er að ræða 326,7
fermetra skrifstofurými á efri hæð
og sameign, sem er rúmlega 22%
eignahluta í húsnæðinu. Borgarráð
samþykkti hinn 14. desember 2017
að kaupa eignarhlutinn á krónur
89.850.000. Stjórn Strætó Bs. kom
með gagntilboð upp á krónur
100.000.000. Bókfært verð þeirra sé
nálægt þeirri upphæð. Lagt var fyr-
ir mat tveggja fasteignasala, annars
vegar kr. 98.000.000 og hins vegar
kr. 81.700.000.
Eftir kaupin verður Reykjavíkur-
borg með rúmlega 79% eignarhlut í
húsnæðinu á móti Íslandspósti ohf.
Kaupin eru liður í því að færa Þjón-
ustumiðstöð Breiðholts á einn stað í
Þönglabakka 4. sisi@mbl.is
Borgin
kaupi tvær
húseignir
Safamýri 5 og
Þönglabakki 4
Morgunblaðið/Eggert
Mjóddin Strætó er með starfsemi í
Þönglabakka, aðallega á neðri hæð.
Íslandsmótið í skák, Icelandic Open, fer
fram í Valsheimilinu í Reykjavík dagana
1.-9. júní. Það verður sett á morgun, föstu-
dag, klukkan 16.30.
Mótið nú er jafnframt minningarmót um
Hermann Gunnarsson fjölmiðalamann.
„Hermann reyndist skákhreyfingunni ávallt
drjúgur og ómetanlegur liðsauki,“ segir
Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Ís-
lands.
Mótið fer fram með óvenjulegu fyrir-
komulagi en teflt verður í einum opnum
flokki en ekki með hinu hefðbundna fyrir-
komulagi lokaðs landsliðs- og opins áskor-
2000. Þá er mögulegt að stórmeistarinn
Héðinn Steimgrímsson verði með. Núver-
andi Íslandsmeistari, Guðmundur Kjart-
ansson, mun ekki verja titilinn.
Lenka Ptácníková er langsigurstrangleg-
ust í baráttunni um Íslandsmeistaratitil
kvenna en auk hennar eru Guðlaug Þor-
steinsdóttir og Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir
líklegastar til þess að blanda sér í baráttuna.
Tefldar verða 10 umferðir og hefjast
skákirnar klukkan 16.30. Góð aðstaða verð-
ur fyrir gesti þar sem boðið verður upp á
skákskýringar og heitt kaffi á könnunni.
sisi@mbl.is
Rúmlega 50 keppendur eru skráðir til
leiks, þar af sjö erlendir. Í þeim hópi eru þrír
alþjóðlegir meistarar sem gætu blandað sér
í toppbaráttuna.
Flestir sterkustu skákmenn landsins eru
skráðir til leiks. Hannes Hlífar Stefánsson,
tólffaldur Íslandsmeistari í skák, er stiga-
hæstur skráðra keppenda. Auk hans eru
stórmeistararnir Bragi Þorfinnsson og
Þröstur Þórhallsson skráðir til leiks. Þrír
fyrrverandi Íslandsmeistarar eru með. Auk
Hannesar eru það Þröstur sem varð Íslands-
meistari árið 2012 og alþjóðlegi meistarinn
Jón Viktor Gunnarsson sem vann sigur árið
endaflokks. Mótið er jafn-
framt Íslandsmót kvenna
og unglingameistaramót
Íslands.
Íslandsmótið í skák var
haldið fyrst með samskon-
ar fyrirkomulagi árið
2013 – þá í tilefni 100 ára
afmælis Íslandsmótsins í
skák. Þótti það takast vel.
Erlendum skákmönnum
er heimil þátttaka en þeir
geta eðli málsins samkvæmt ekki orðið Ís-
landsmeistarar.
Erlendir keppendur á Íslandsmótinu
Skákmenn setjast að tafli í Valsheimilinu á morgun Minningarmót um Hermann Gunnarsson
Hermann
Gunnarsson
Kona sem flutt
var á sjúkrahús í
Reykjavík í gær
vegna höfuð-
áverka við fall á
göngustíg sem
liggur frá bíla-
stæði niður í
Reynisfjöru er
látin. Hún var er-
lendur ferða-
maður, fædd 1938, á ferð með fjöl-
skyldunni, skv. vef lögreglunnar á
Suðurlandi. Slysatilkynning barst
neyðarlínu um kl. 14.30 í gær og
var konan flutt með sjúkrabifreið
til móts við þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar, sem flaug með hana til
Reykjavíkur.
Erlendur ferðamað-
ur lést eftir fall
Reynisfjara.