Morgunblaðið - 31.05.2018, Qupperneq 70
70 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018
Amino bitar
Í 30 g pokanumer
passlegur skammur af
próteini (26,4 g í poka).
Inniheldur 88%prótei
og engin aukaefni.
88%prótein
100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Einfaldle a hollt
og gott
snakk
Það er allt áfullu hérna,en útskriftin
hjá okkur í skól-
anum er 9. júní, Svo
hefur hluti af nem-
endahópnum okkar
verið valinn til að
fara á hátíð í Hol-
landi og við erum
m.a. að ganga frá
því,“ segir Vigdís
Másdóttir, verk-
efnastjóri í sviðs-
listadeild Listahá-
skóla Íslands, en
hún á 40 ára afmæli
í dag.
Vigdís hefur ver-
ið verkefnastjóri
frá 2014, en hún
lauk BA-námi í
leiklist árið 2009 og
MA-gráðu í list-
kennslu árið 2014.
„Ég geri alltaf
minna og minna af því að leika, er alveg hætt í leikhúsunum því það
tekur svo mikinn tíma og ekki hægt meðfram þeim störfum sem ég
sinni í dag, en ég hef tekið að mér smáhlutverk í kvikmyndum. Það
fer bara einn til tveir tökudagar í slíkt og það hentar mér vel.“
Þess í stað hefur Vigdís lagt meiri áherslu á kennslu en hún er
skólastjóri Leiklistarskóla Borgarleikhússins. Hún var ráðin til þess
að smíða námið og stýra því, og var skólinn að ljúka sínu öðru starfs-
ári. „Skólinn hefur gengið mjög vel og eru í kringum 50 nemendur í
honum. Nemendur eru frá 8 til 14 ára og námið er byggt upp á aðal-
námskrá grunnskólanna. Þetta er því ekki eins og námskeið heldur
líkt og tónlistarskólarnir þá er þetta anna- og færniskipt.“
Aðaláhugamál Vigdísar er matargerð. „Svo vorum við fjölskyldan
að flytjast í draumahúsið og erum að gera það upp. Mér finnst það
sjúklega gaman, fékk draumaeldhúsið mitt. Við eigum líka hlut í húsi
á Patreksfirði og reynum að fara þangað eins oft og við getum,“ en
sambýlismaður Vigdísar, Bergsteinn Sigurðsson, sjónvarpsmaður á
Rúv, er þaðan.
Vigdís og Bergsteinn eiga eina dóttur saman, Iðunni, sem er 6 ára,
en fyrir á Bergsteinn soninn Sigurð Elí sem er 18 ára.
„Ég verð í vinnunni í dag en ætla líka að leyfa mér smá dekur í til-
efni dagsins. Svo ætla ég að halda partí um helgina.“
Afmælisbarnið Vigdís Másdóttir hefur í nógu
að snúast fyrir útskrift og fyrirhugaða leiklist-
arh́átíð sem heldin verður í Hollandi bráðlega.
Stýrir leiklistar-
skóla fyrir börn
Vigdís Másdóttir er fertug í dag
H
alla Lovísa Loftsdóttir
fæddist í Reykjavík
31.5. 1943 og ólst þar
upp og í Kópavogi.
Hún lauk gagnfræða-
prófi frá Núpi í Dýrafirði 1959 og
prófi frá Húsmæðraskóla Reykjavík-
ur 1961, sótti námskeið fyrir fram-
reiðslufólk í Húsmæðraskólanum á
Laugum1972 og vann við matreiðslu-
og framreiðslustörf við mötuneyti,
veiðihús og hótel.
Halla Lovísa var um skeið heimilis-
fræðikennari við Hafralækjarskóla í
Aðaldal, kennari við Húsmæðraskól-
ann á Laugum 1980-87, lauk réttinda-
námi fyrir grunnskólakennara frá
KHÍ og var kennari við Gagnfræða-
og Barnaskóla Húsavíkur (nú
Borgarhólsskóli) 1987-2013.
Halla Lovísa sat í sveitarstjórn
Aðaldæla 1982-90, sat í stjórn og for-
svari fyrir Ungmennafélagið Geisla,
Kvenfélag Nessóknar og Kirkjukór
Nessóknar í Aðaldal, hefur starfað í
Soroptimistaklúbbi Húsavíkur og ná-
grennis frá 1987, sat í stjórn Lands-
sambands Soroptimista í fjögur ár,
og var forseti sambandsins 2000-
2002. Hún hefur nú umsjón með
starfi eldri borgara á vegum Þing-
eyjarsveitar. Þá er hún félagi í kór
eldri borgara, Sólseturkórnum á
Húsavík, og sat í stjórn kórsins sl.
fimm ár.
Halla Lovísa kynntist eiginmann-
inum á Hvanneyri, 1959, er hún var
þar við störf en hann við nám: „Við
hófum okkar búskap í Reykjavík á
veturna en dvöldum með börnin tvö á
Halla Lovísa Loftsdóttir, kennari á Húsavík – 75 ára
Í London Hjónin með Völundi Snæ, Steinunni og Viðari er Völundur fékk verðlaun fyrir bókina, Delicious Iceland.
Njótum lífsins meðan
heilsa og kraftar leyfa
Skólabílstjórinn Halla Lovísa með
nemendur frá Húsavík í skóla-
ferðalagi á Austurlandi, en Halla
Lovísa og Völundur óku lengi skóla-
bílnum.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.