Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.09.2018, Page 19

Læknablaðið - 01.09.2018, Page 19
LÆKNAblaðið 2018/104 399 Heimilislæknaþingið 2018 í Borgarnesi 5.-6. október Heimilislæknaþing Félags íslenskra heimilislækna verður haldið á Hótel B-59 í Borgarnesi 5. og 6. október 2018. Eins og á fyrri þingum verða kynntar rannsóknir, rannsóknaráætlanir og þróunarverkefni í erind- um og veggspjöldum. Útdráttum (sjá leiðbeiningar) skal skila til Emils L. Sigurðssonar á emil- sig@hi.is og er skilafrestur til 10. september næstkomandi. Ágripin verða birt í sérstöku riti þingsins. • Útdráttur úr rannsókn skal rúmast á einu A4-blaði með hefðbundnum spássíum og hægri jöfnun. Texti getur að jafnaði verið um 300-350 orð. • Letur: Times New Roman. • Leturstærð 16 í fyrirsögn og 14 í megintexta. • Nota skal lágstafi í fyrirsögn. • Á eftir fyrirsögn koma nöfn höfunda. • Undirstrikið nafn flytjanda/aðalhöfundar ásamt vinnustað hans og tölvupóstfangi. • Ef um hefðbundna megindlega rannsókn er að ræða skal megintexta skipt í: • Bakgrunnur; Tilgangur; Efniviður og aðferðir; Niðurstöður og Ályktanir. Framsetning eigindlegra rannsókna getur verið frjálslegri, en kaflaskipti æskileg. Að jafnaði er ekki gert ráð fyrir heimilda lista í útdrætti. Þinginu lýkur með aðalfundi Félags íslenskra heimilislækna laugardaginn 6. október. Nánari dagskrá verður send í tölvupósti til félagsmanna þegar nær dregur. Fyrir hönd undirbúningsnefndar, Emil L. Sigurðsson

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.