Læknablaðið - 01.09.2018, Qupperneq 31
LÆKNAblaðið 2018/104 411
og skömm en það er alveg ljóst að strákar
eru ekki síður útsettir fyrir útlitsdýrkun
nútímans og kröfum um að vera grannir
og stæltir. Við höfum fengið marga karl-
menn til meðferðar en þó alltof fáa og ég
held að þeir séu í felum með þetta þar sem
þetta er álitinn stelpusjúkdómur fyrst og
fremst.“
Vantar sólarhringsúrræði og áfangaheimili
Átröskunarteymi Landspítala var sett á
laggirnar árið 2006 og Guðlaug hefur verið
læknir teymisins frá upphafi. „Teymið var
sett á stofn eftir þrýsting frá samtökum
sjúklinga og aðstandenda og Jón Krist-
jánsson þáverandi heilbrigðisráðherra
veitti sérstaka fjárveitingu til verkefnisins.
Frá 2009 höfum við verið á Hvítabandinu
við Skólavörðustíg og rekum göngudeild
og dagdeild. Húsnæðið er of lítið og lítið
svigrúm til að þróa meðferðina, fyrir
utan skort á viðhaldi hússins eins og víða
á Landspítala. Það sem mest vantar er
sérhæft sólarhringsúrræði fyrir veikustu
einstaklinga. Þeir þurfa nú að leggjast
inn á almenna bráðageðdeild, sem getur
ekki boðið upp á gott meðferðarumhverfi
eða prógram meðan á innlögn stendur.
Við höfum reynslu af að senda sjúklinga
til Norðurlanda í innlagnarmeðferð og
draumurinn er að geta boðið upp á svipuð
úrræði hér á Íslandi. Það er í raun með
ólíkindum að við getum ekki boðið okkar
veikustu sjúklingum sérhæfða endurhæf-
ingu eða dvöl á áfangaheimili. Við erum
eina landið í Skandinavíu sem ekki getur
boðið þessa þjónustu. Síðan eru þeir sem
búa „úti á landi“ og koma til okkar og
nauðsynlega þurfa athvarf meðan á með-
ferð stendur.
Líkamlegar afleiðingar af átröskunum
eru margvíslegar og alvarlegar. Sjúklingar
leita mikið til almennra lækna vegna
maga og ristilvandamála, hjartsláttar-
truflana, svima og slappleika, ófrjósemi,
hárloss og fleira. Það sem er alvarlegast
er beinþynning sem fylgir langvinnri
vannæringu og er lúmsk. Við höfum séð
ungar stúlkur um tvítugt með beinþéttni
á við níræðar konur. Geðrænu þættirnir
eru kvíði, þunglyndi, þreyta, orkuleysi
og stundum vonleysi um bata. Það er þó
ljóst að öllum getur batnað, þó bataleiðin
sé mislöng og flókin eins og við segjum,
þýðir ekki að gefast upp. Við skoðuðum
hjá okkur að meðallengd veikinda var 8 ár
áður en fólk kom til okkar. Veikindi byrja
oft á unglingsárum og geta haft verulega
neikvæð áhrif á skólagöngu, félagsþroska
og fjölskyldulíf.“
Íþróttir, orkudrykkir og fæðubótarefni
Afreksíþróttafólki er hættara við átrösk-
unum þar sem kröfur um þyngd til að
ná árangri eru miklar. Guðlaug segir að
Norðmenn hafi náð góðum árangri í að
fást við þetta. „Þeir hafa sett saman flott
prógramm með fræðslu um forvarnir
til þjálfara og hvernig á að grípa inn í ef
vandamál koma upp. Þetta kom í kjölfar
þess að nokkrir af íþróttamönnum þeirra
í fremstu röð létust vegna átröskunar. Við
sjáum þetta hjá okkar íþróttafólki og það
er nánast sama hvaða íþróttagrein um
ræðir, ballett, fimleikar, fótbolti, lyftingar.
Petra Lind Sigurðardóttir sálfræðingur í
HR gerði meistararitgerð um líkamsímynd
og átraskanir hjá íslensku íþróttafólki og
sýndi að 25% kvenna höfðu neikvæða lík-
amsímynd og átröskunareinkenni og 14%.
Ekki hefur verið skoðað algengi í fitness,
en ljóst að þar er fólk í mikilli áhættu á að
fá átröskun.“
Guðlaug segir orkudrykki og fæðubót-
arefni aldrei koma í stað matar og bendir
á að alþjóðaólympíunefndin hafi gefið út
það álit að börn og unglingar sem stundi
íþróttir eigi aldrei að nota fæðubótarefni.
„Þau eiga eingöngu að borða góðan og
heilnæman mat. Orkudrykkir og fæðubót-
arefni eru of einhæf orkuinntaka og geta
haft slæm áhrif á þroska barna og ung-
linga. Fyrir fullorðna einstaklinga er mik-
ilvægt að átta sig á því að orkudrykkir og
fæðubótarefni geta aldrei komið í staðinn
fyrir mat. Það er ekki hægt að lifa á slíku.“
Guðlaug segir að lokum að hún vildi
gjarnan sjá fleiri úrræði fyrir átröskunar-
sjúklinga og aukna meðvitund meðal heil-
brigðisstarfsfólks um að þetta geti verið
undirliggjandi. Það er í sjálfu sér ekki flók-
ið að greina átraskanir og mikilvægt að
benda fólki á að leita sér aðstoðar. Fyrir þá
sem eru yngri en 18 ára er meðferðarteymi
á BUGL en fullorðnir geta leitað aðstoðar
til átröskunarteymis geðdeildar Landspít-
ala. Sjúklingar geta líka leitað aðstoðar úti
í bæ, hjá sálfræðingum og geðlæknum, en
flóknari vandi ætti að koma til spítalans.
„Við viljum hafa aðgengið sem einfaldast
og fæstar girðingar. Fólk getur sent okkur
tölvupóst á atroskun@landspitali.is eða
fengið tilvísun frá fagfólki. Fjöldi einstak-
linga sem hingað koma er breytilegur, um
80-100 árlega. Á hverjum tíma eru á milli
50-60 einstaklingar í meðferð hjá okkur.
Brottfall úr meðferð er svipað og annars
staðar, eða um 40-50% ,en margir koma
aftur þegar þeir hafa hugsað málið og
við tökum vel á móti öllum sem til okkar
leita.“
„Átröskun er ekki bara „eitthvað félagslegt“ heldur alvarlegur langvinnur sjúkdómur samsettur úr geðrænum og lík-
amlegum þáttum,“ segir Guðlaug Þorsteinsdóttir geðlæknir.