Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.2018, Side 24

Læknablaðið - 01.04.2018, Side 24
184 LÆKNAblaðið 2018/104 Hjá eftirfarandi sjúklingahópum er ábending fyrir þvagsýru- lækkandi lyfjum við fyrstu liðbólgu vegna þvagsýrugigtar: yngri en 40 ára, þvagsýra hærri en 480µmól/L, þvagsýrugigtarhnútar til staðar, liðskemmdir á röntgenmynd, fjölliðasjúkdómur, þvagsýru- nýrnasteinn, aðrir sjúkdómar (nýrnabilun, hár blóðþrýstingur, blóðþurrðarhjartasjúkdómur, hjartabilun). Fyrsta val á meðferð Allópúrínól Allópúrínól er xanthine-oxidasa hemill og er fyrsta lyf í þvag- sýrulækkandi meðferð (mynd 4). Lágur upphafsskammtur, 100 mg daglega, dregur úr líkum á liðbólgu í upphafi meðferðar. Mæla ætti þvagsýru í sermi á eins til þriggja mánaða fresti og auka skammtinn um 100 mg í hvert skipti þar til meðferðarmarkmiðum er náð eða komið er upp í hámarksskammt (900 mg á dag). Auka- verkanir allópúrínóls eru sjaldgæfar en það getur valdið útbrotum og möguleiki er á Steven-Johnson heilkenni, eitrunardreplosi húð- þekju (toxic epidermal necrolysis) og DRESS heilkenni. Hærri upp- hafsskammtar auka líkur á alvarlegum húðviðbrögðum.54 Við skerta nýrnastarfsemi ætti að minnka upphafsskammt allópúrínóls í 50 mg á sólarhring og hækka skammta hægar, í mesta lagi á 4-8 vikna fresti. Annað val á meðferð Febúxóstat (Uloric, Adenuric) Febúxóstat er xanthine-oxidasa hemill (Uloric®, Adenuric®) og er öflugt þvagsýrulækkandi lyf sem nota mætti í stað allópúrínóls ef áhrif þess eru of lítil eða sjúklingur hefur óþol. Ekki er krossof- næmi þar á milli.55 Febúxóstat ætti í flestum tilvikum að vera annað val og þannig ná fleiri sjúklingar meðferðarmarkmiðum.56 Upphafsskammturinn er 80 mg einu sinni á dag sem hækka má í 120 mg daglega. Þvagsýruræsandi lyf Ef allópúrínól og febúxóstat hafa ekki nægileg áhrif má reyna þvagsýruræsandi lyf, bæði eitt og sér eða til viðbótar við xant- hine-oxidasa hemla. Þessi lyf eru lítið notuð í dag vegna tíðra aukaverkana en hafa enn ábendingu og eru fáanleg, auk þess sem þau eru ódýr. Helst má nefna próbenesíð, en einnig benzbrómarón og sulfínpyrazón.6 Önnur lyf með þvagsýruræsandi hliðarverkun eru amlódípín, atorvastatín, fenófíbrat, lósartan, ACTH og corti- són. Nýlega hefur lesínúrad (Zurampic®) bæst við í vopnabúrið en það er sértækur URAT1 hemill sem gefið hefur góða raun ef notað með xanthine-oxidasa hemli.57 Pegloticase Nota má undanþágulyfið pegloticase (Krystexxa) hjá sjúklingum með staðfesta kristallagigt og mikla sjúkdómsbyrði með þvag- sýrugigtarhnútum, þar sem þvagsýra lækkar ekki með öðrum ráð- um. Hjá tæplega helmingi sjúklinga lækkar þvagsýra niður fyrir 360 µmól/L en um fjórðungur fær aukaverkanir. Meðferðarlengd er óviss en ACR/EULAR leiðbeiningarnar mæla með að skipt sé í annað lyf þegar sjúkdómsbyrði er minni og þvagsýrugigtarhnútar horfnir.6 Þvagsýrugigtarliðbólga við innleiðslu þvagsýrulækkandi meðferðar Við lækkun þvagsýru í blóði minnka þvagsýrugigtarhnútar og kristallasöfn liða leysast út í blóðið. Það leiðir til aukinnar hættu á þvagsýrugigtarbólgu fyrstu 3-6 mánuðina við upphaf meðferðar. Vara skyldi sjúklinginn við þessari auknu hættu en leggja áherslu á mikilvægi þvagsýrulækkunar og bjóða lyf til forvarnar. Þá er notast við colchicine 0,5-1 mg/dag eða lágskammta NSAID en sjúklingar kjósa oft sjálfir þvagsýrulækkun án forvarnar og eru þá meðvitaðir um af hverju þvagsýrulækkandi lyfin séu aukin yfir langan tíma.6,41 Ef til liðbólgu kemur er veitt sama meðferð og við bráða þvag- sýrugigtarliðbólgu. Þá er mikilvægt að stöðva ekki gjöf þvagsýru- lækkandi lyfja á meðan þar sem núverandi liðbólga getur versnað. Þessar liðbólgur eru stundum illviðráðanlegar samanborið við einfaldar þvagsýrugigtarbólgur og geta verið fjölliða. Mataræði og lífsstíll Skiptar skoðanir eru um mataræðisráðleggingar til þvagsýrugigt- arsjúklinga. Hingað til hafa ráðleggingarnar einblínt á takmörkun púrína í fæðu. Vandamál við púrínsnauða fæðu er að hún inni- heldur oft mikið af unnum sykri (meðal annars frúktósa) og mett- aðri fitu. Þessi næringarefni hafa tengsl við aukna hættu á insúlín- ónæmi auk þess sem hærra insúlínmagn í blóði minnkar útskilnað þvagsýru um nýru.12 Næringarviðmið til almennings miða að því að auka fiskneyslu en hjá sjúklingum með þvagsýrugigt hefur þótt Allir sjúklingar með þvagsýrugigt ættu að fá ráðgjöf um lífsstíl, svo sem mataræði, áfengisneyslu og þyngdartap ef við á. Y F I R L I T Mynd 4. Sýnir púrín efnaskipti og möguleika lyfjameðferða til lækkunar þvagsýru. Mynd unnin að fyrirmynd Schlee og félaga 2017.5 ALMENNT RÁÐ 3.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.