Læknablaðið - 01.04.2018, Page 48
208 LÆKNAblaðið 2018/104
Nýjar reglur um
lyfjaávísanir
Magnús Jóhannsson læknir magnus@landlaeknir.is, Anna Björg Aradóttir sviðsstjóri,
Jón Pétur Einarsson lyfjafræðingur, Ólafur B. Einarsson sérfræðingur
F R Á E M B Æ T T I L A N D L Æ K N I S 2 3 . P I S T I L L
Á næstu mánuðum mun ganga í gildi ný
reglugerð um lyfjaávísanir og afhendingu
lyfja nr. 1266/2017.1 Ýmsar breytingar eru
frá eldri reglugerð og segja má að þessar
nýju reglur veiti læknum meira aðhald
í lyfjaávísunum en þær eldri. Þessum
breytingum er ætlað að stuðla að skyn-
samlegri, markvissari og öruggari lyfja-
notkun í landinu.
Stefnt er að því að innan fárra ára verði
allar lyfjaávísanir rafrænar. Þess vegna
eru þær takmarkanir á notkun pappírslyf-
seðla (á nýju eyðublaði; sjá viðauka við
reglugerðina) að einungis má ávísa einu
lyfi á hverjum lyfseðli og bara fyrir eina
afgreiðslu. Með gildistöku síðar á árinu
verður að ávísa ávana- og fíknilyfjum til
afgreiðslu hér á landi á pappírsformi. Frá
1. september 2018 má aðeins ávísa eftir-
ritunarskyldum lyfjum til 30 daga notkun-
ar í senn.
Nokkrar nýjar takmarkanir eru settar
á lyfjaávísanir. Ef fyrir er gild ávísun í
lyfjaávísanagátt fyrir ávana- og fíkni-
lyfi er einungis heimilt að útbúa aðra
ávísun á sama lyf ef ávísað er á annan
styrkleika eða ef fella á úr gildi gildandi
lyfjaávísun og útbúa nýja. Ennfremur er
einungis heimilt að afgreiða metýlfenídat
(ATC flokkur N06BA04) eða amfetamín
(flokkur N06BA01) ef sjúklingur er með
gilt lyfjaskírteini frá Sjúkratryggingum
Íslands. Áfram verður heimilt að ávísa
lyfjum í síma en þó ekki til skömmtunar,
ekki ávana- og fíknilyfi og einungis einni
pakkningu í senn.
Embættinu hafa borist ábendingar frá
heilsugæslulæknum um að þeir hafi ver-
ið settir á lyfjaskírteini sjúklinga vegna
ADHD-greininga sérfræðinga að þeim for-
spurðum. Embættið vill benda á að það sé
eðlilegt að læknar séu spurðir áður hvort
þeir vilji taka að sér að sjá um ávísanir
ADHD-lyfja. Nokkuð hefur borið á því að
fólk sé að fá örvandi lyf umfram hámarks-
skammta og jafnvel á sama tíma og við-
komandi er að fá önnur ávanabindandi lyf
sem ekki eru æskileg með örvandi lyfjum.
Heilsugæslulæknar sem taka að sér ávís-
anir ADHD-lyfja þurfa að vera tilbúnir að
stýra meðferð þannig að ávísanir fari eftir
klínískum leiðbeiningum.
Lengi hefur verið í gildi sú regla að sá
sem leysir út eftirritunarskylt lyf í lyfjabúð
þarf að sýna skilríki og kvitta fyrir mót-
töku. Ekki eru nærri öll ávanabindandi
lyf eftirritunarskyld og nokkuð hefur
borið á því að lyf hafi verið svikin út á
nafn annarra. Til að hamla gegn slíkri
misnotkun er nú tekin upp sú regla að
allir sem leysa út lyf í lyfjabúð, óháð lyfi
og pakkningastærð, skuli sýna skilríki.
Ef grunsemd um misferli vaknar, eftir að
apótek afgreiðir lyfið, er því hægt að fletta
upp hver leysti út viðkomandi lyf.
Embætti landlæknis rekur lyfjaávís-
anagátt sem tekur við rafrænum lyfja-
ávísunum og heldur utan um afgreiðslur
þeirra. Þessi ávísanagátt tekur við rafræn-
um lyfjaávísunum sem læknar senda úr
sínum sjúkraskrárkerfum eða af vefsvæði
Embættis landlæknis (lyfsedlar.landlaeknir.
is/). Viðmót lyfjaávísanagáttar er í stöðugri
þróun og ný virkni verður þróuð og virkj-
uð eftir því sem efni standa til. Einnig má
minna á að almenningur hefur aðgang að
sinni eigin lyfjasögu og hvaða lyf viðkom-
andi á óútleyst í gáttinni, á vefsvæðinu
heilsuvera.is/
Mjög mikilvægt er að læknar noti
lyfjagagnagrunn landlæknis (lyfjaávís-
anagáttina) sem mest en upplýsingar þar
eru uppfærðar í rauntíma. Þetta er mikil-
vægt til að sjá hvaða lyfjum aðrir læknar
eru að ávísa á sjúklinginn, til að forðast
óheppilegar lyfjablöndur og almennt til
að fá yfirsýn yfir lyfjasögu. Læknar geta
einnig séð hvaða lyf skjólstæðingar þeirra
eiga óútleyst í lyfjagátt og geta þeir fellt út
sínar ávísanir og annarra lækna ef ástæða
er til.
Mikilvægi lyfjagagnagrunnsins er
ótvírætt og eins og áður segir eru læknar
hvattir til að nota hann alltaf þegar til
meðhöndlunar skjólstæðinga kemur en
ónauðsynleg notkun er bönnuð (það að
einhverjum sé flett upp sem ekki er til
skoðunar/meðhöndlunar hjá viðkomandi
lækni) og er Embætti landlæknis með
eftirlitshlutverk gagnvart því. Nú eru í
þróun aðferðir við það eftirlit og er rétt að
læknar og heilbrigðisstarfsfólk viti af því.
Heimildir
1. reglugerd.is/reglugerdir/eftir-raduntum/velferdar-
raduneyti/nr/1266-2017
Ertu með hugmynd
að dagskrá fyrir
Læknadaga
21.-25. janúar 2019?
Þeir sem vilja leggja til efni í dagskrá Læknadaga eru beðnir að fylla út
umsóknarblað á innra neti Læknafélagsins og senda til
Margrétar Aðalsteinsdóttur margret@lis.is fyrir 10. maí næstkomandi.