Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2018, Síða 56

Læknablaðið - 01.04.2018, Síða 56
216 LÆKNAblaðið 2018/104 Stjórn Öldungadeildar Kristófer Þorleifsson formaður, Jóhannes M. Gunnarsson ritari, Guðmundur Viggósson gjaldkeri, Kristrún Benediktsdóttir, Margrét Georgsdóttir. Öldungaráð Hörður Alfreðsson, Magnús B. Einarson, Reynir Þorsteinsson, Snorri Ingimarsson, Þórarinn E. Sveinsson. Umsjón síðu Páll Ásmundsson Vefsíða: http://innri.lis.is/oldungadeild-li Ö L D U N G A D E I L D Á þessu ári er fagnað 100 ára afmæli Læknafélags Íslands sem stofnað var 14. janúar 1918, mitt í kuldakastinu sem gaf þeim vetri viðurnefnið „Frostaveturinn mikli“. Síðasta ár heimsstyrjaldarinnar fyrri var þá einnig runnið upp en henni lauk í nóvember 1918. Þótt Íslendingar hafi sloppið við bein stríðsátök sluppum við ekki við fylgifiska stríðsins svo sem vöru- skort og dýrtíð. Í 4. tbl. Læknablaðsins 1918, aprílblaðinu, skrifar Guðmundur Hannesson formaður grein um félagið þar sem hann lýsir megin- verkefni þess sem var úrbætur í kjaramálum. Hér fylgir greinin sem fjallar um bág kjör lækna og hugsanlegar úrbætur. Borin eru saman kjör íslenskra og norskra lækna og ætla má að gengi íslenskrar og norskrar krónu hafi verið svipað um þessar mundir, sú íslenska raunar bundin hinni dönsku. PÁ Guðmundur Hannesson formaður. Guðmundur Magnússon. Sæmundur Bjarnhéðinsson. Matthías Einarsson. Fyrstu skref Læknafélags Íslands Þess er tæpast að vænta, að stjórn Lf. Ísl. hafi komið miklu í verk á þeim stutta tíma sem fél. var stofnað, en aðgerðalaus hefir hún þó ekki verið. Helstu málin, sem hún hefir tekið til athugunar eru þessi: 1. Hækkun ferðataxta og gjaldskrár. Eins og allir vita, er öll borgun fyrir læknis- verk hér á landi langt fyrir neðan alt það, sem dæmi eru til í nágrannalöndunum.* Ákvæði gjaldskrárinnar eru flest óhæfi- lega lág og annars lítið samræmi í þeim, t.d. að 2 kr. skuli borgaðar fyrir að taka þvag af manni, en að eins 220 kr. fyrir stærstu og vandasömustu handlæknis- aðgerðir. Þó tekur ferðataxtinn út yfir: 30 aura borgun fyrir hverja klukkustund, oft í illviðrum og nokkurri lífshættu. Læknunum er goldið nálega þrefalt minna en óbrotnum handverksmönnum. Ofan á alt þetta hefir bætst verðfall peninga, sem hefir rýrt þennan lága taxta um fullan helming. Þetta ástand alt hefir leitt til þess, eink- um nú í dýrtíðinni, að allmargir læknar hafa sett nokkru meira upp fyrir verk sín en gjaldskrá ákveður og styðjast þar við I. gr. hennar og skýringar landlæknis á henni. Aftur fylgja aðrir læknar nákvæm- lega ákvæðum gjaldskrár og læknaskip- unarlaga. Engum getur dulist, að hér er í óefni komið, sem þarf bráðra endurbóta við. Lagaákvæðin eru svo ósanngjörn, að bæði læknar og alþýða hætta að skeyta um þau. Á þessu verður ekki bót ráðin með neinu öðru en að hækka borgun fyrir læknisverk á einhvern hátt, en hvernig það sé heppilegast - um það eru skiftar skoðanir. Sumir vilja koma hér á sama skipulagi og erlendis, að læknar ákveði sjálfir borgun fyrir læknisverk. Séu þá launin þóknun fyrir störf í landsins þágu „fyrir að líta eftir að heilbrigðislöggjöf landsins sé fylgt, fyrir ráðstafanir til þess að verja almenning sóttum og ekki síst fyrir að vera tjóðraðir hver í sínu horni, skyldugir til að láta siga sér, nótt sem nýt- an dag, út í veður og vind og svo ekki að gleyma öllum skýrslum og skriftum, sem af okkur eru heimtaðar“. Þessi leið væri ákjósanlegust fyrir lækna að ýmsra áliti og mætti, ef til vill, breyta henni á þá leið, að stjórn Lf. Ísl., landlæknir og landsstjórn kæmu sér Læknafélag Íslands Fyrsta stjórn LÍ

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.